Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Hver einasta mæling étur upp ráðstöfunartekjur“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 26.2.2026 | 12:25 „Hver einasta mæling étur upp ráðstöfunartekjur“ Vilhjálmur segir að verðbólgan hækki skuldir, éti kaupmátt og grafi undan trausti. Samsett mynd/ Setja bókamerki Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu efnahagsmála Ásgeir: „Það eru ekki til neinar patentlausnir“ Ásgeir: „Við finnum til ábyrgðar“ Telur hættuna meiri nú Spá 4,9% verðbólgu » Fleiri tengdar fréttir „Fyrir suma eru þetta bara tölur í fréttum. Fyrir heimilin í landinu hefur þetta bein áhrif á skuldir, afborganir og afkomu. Á síðustu þremur mánuðum hafa verðtryggðar skuldir heimilanna hækkað um tæpa 50 milljarða króna.“ Þetta segir Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, um þær verðbólgutölur sem Hagstofan birti í morgun. Stóð verðbólgan í stað, þvert á spár um hjöðnun, og nemur nú 5,2% á ársgrundvelli. „Heimili með 60 milljóna króna verðtryggt lán mun sjá höfuðstól sinn hækka um 564 þúsund krónur vegna þessara hækkunar á neysluvísitölunni,“ skrifar Vilhjálmur í færslu á Facebook. Á aðeins þremur mánuðum nemi hækkunin um 1,5 milljónum króna, án þess að ein króna hafi verið tekin að láni. Hann segir að þetta séu ekki fræðilegar sveiflur. Þetta sé raunveruleiki fólks sem standi í skilum og horfi samt á skuldir sínar vaxa. Frétt af mbl.is Verðbólgan stendur í stað þvert á spár Hver einasta mæling hækkar höfuðstólinn „Forsætisráðherra hefur sagt að hún horfi ekki á einstaka mælingar neysluvísitölunnar. En heimili með verðtryggð lán hafa ekki þann lúxus. Hver einasta mæling hækkar höfuðstólinn. Hver einasta mæling étur upp ráðstöfunartekjur. Desember var sögð vond mæling. Janúar var sögð vond mæling. Nú er febrúar líka vond mæling. Þegar „vondar mælingar“ koma hver á fætur annarri er það ekki lengur frávik – þá er það þróun,“ segir Vilhjálmur í færslunni. Hann segir að þegar kjarasamningar voru gerðir hafi þeir byggt á skýrum forsendum. Ein meginforsendan hafi verið að verðbólgan færi hratt lækkandi og yrði komin fyrir tiltekin viðmið innan ákveðins tíma. „Launafólk samþykkti hófstilltar launahækkanir á þeirri forsendu að verðbólgan yrði brotin á bak aftur og kaupmáttur tryggður. Nú er staðan sú að verðbólgan er enn 5,2% og hækkar um nær eitt prósentustig á einum mánuði. Það veikir forsendur samninganna verulega,“ segir verkalýðsleiðtoginn frá Akranesi. Bítur harðast á tekjulægstu heimilin Vilhjálmur segir að verðbólgan bíti harðast á tekjulægstu heimilin og þau sem eru skuldsett. Hún hækki skuldir, éti kaupmátt og grafi undan trausti. „Ef enginn ætlar að axla ábyrgð á því að ná henni niður þá getur verkalýðshreyfingin ekki setið hjá. Ef ekki verður gripið til raunverulegra og samræmdra aðgerða til að tryggja að forsendur kjarasamninga haldi þá ber að segja samningunum upp í haust. Launafólk getur ekki verið tryggingakerfi fyrir aðgerðarleysi stjórnvalda.“ Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu efnahagsmála Ásgeir: „Það eru ekki til neinar patentlausnir“ Ásgeir: „Við finnum til ábyrgðar“ Telur hættuna meiri nú Spá 4,9% verðbólgu » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Yfirgaf völlinn í sjúkrabíl Trump um De Niro: „Sjúkur og siðspilltur“ Mikið áhyggjuefni sem taka beri alvarlega Kosningum flýtt í Danmörku Trump neitaði að skila ólympíugullinu Umræðan Gagnsæi í verðlagningu í vinnslu og útgerð Óhagkvæm borgarlína Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Versta veðrið á Reykjanesi og í Borgarfirði „Auðvitað er þessi staða ekki góð“ Grásleppukarlarnir nýttir sem skiptimynt Minntust Kjartans í Garðakirkju Mest lesið Í gær Í vikunni Smjörva skipt út á Landspítalanum Glerbrotum rigndi inn í bílinn Varar við inngöngu Íslands í ESB Andlát: Víglundur Þór Þorsteinsson Eina tilboðið langt yfir áætlun Minntust Kjartans í Garðakirkju Vara Íslendinga við strangari skilyrðum í Bretlandi Líkir borginni við ofskreytt jólatré Fullyrðingar standast ekki Myndskeið: Kristrún nefndi uppáhaldskennara dóttur sinnar Verður blint í skafrenningi og talsverðri ofankomu Útskrifaður af sjúkrahúsi Fangavörður grunaður um brot í starfi Gunnar Smári dregur sig í hlé vegna veikinda Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu Fylgstu með veðrinu ganga yfir Rúta með 53 farþegum hafnaði utan vegar Þýskur skíðagöngumaður gerði allt rétt Þrjár stúlkur réðust á eina Mannslát á Kársnesi: Telur myndina vera að skýrast Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Talinn vera undir mölinni „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Andlát: Ellen Margrét Ingvadóttir Nýjast á mbl.is » Yfirgaf völlinn í sjúkrabíl Trump um De Niro: „Sjúkur og siðspilltur“ Mikið áhyggjuefni sem taka beri alvarlega Kosningum flýtt í Danmörku Trump neitaði að skila ólympíugullinu Umræðan Gagnsæi í verðlagningu í vinnslu og útgerð Óhagkvæm borgarlína Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kanadískir hermenn og íslenskir námsmenn takast á Kosningum flýtt í Danmörku Minntust Kjartans í Garðakirkju Fer fram á Íslandi í fyrsta skipti Mest lesið Í gær Í vikunni Smjörva skipt út á Landspítalanum Glerbrotum rigndi inn í bílinn Varar við inngöngu Íslands í ESB Andlát: Víglundur Þór Þorsteinsson Eina tilboðið langt yfir áætlun Minntust Kjartans í Garðakirkju Vara Íslendinga við strangari skilyrðum í Bretlandi Líkir borginni við ofskreytt jólatré Fullyrðingar standast ekki Myndskeið: Kristrún nefndi uppáhaldskennara dóttur sinnar Verður blint í skafrenningi og talsverðri ofankomu Útskrifaður af sjúkrahúsi Fangavörður grunaður um brot í starfi Gunnar Smári dregur sig í hlé vegna veikinda Gul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu Fylgstu með veðrinu ganga yfir Rúta með 53 farþegum hafnaði utan vegar Þýskur skíðagöngumaður gerði allt rétt Þrjár stúlkur réðust á eina Mannslát á Kársnesi: Telur myndina vera að skýrast Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Talinn vera undir mölinni „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Andlát: Ellen Margrét Ingvadóttir

Share this article