Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir manndráp vegna andláts karlmanns á fertugsaldri í heimahúsi á Kársnesi í Kópavogi í nóvember. Þetta staðfestir Karl Ingi Vilbergsson, héraðssaksóknari. Gæsluvarðhald hefur verið framlengt um fjórar vikur. Sakborningurinn, sem er af grískum uppruna, er ákærður fyrir að hafa veist með ofbeldi að öðrum manni og svipt hann lífi. Ákærða er gert að sök að hafa stungið manninn þrisvar sinnum í kviðinn með hníf, skorið hann, stungið með egghvössu áhaldi í hálsinn og slegið hann með þeim afleiðingum að hann lést. Héraðssaksóknari gaf út ákæruna í dag og verður málið tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness. Hinn látni lætur eftir sig tvö ung börn. Farið er fram á miskabætur fyrir þeirra hönd vegna dauða föður þeirra, annars vegar 9,6 milljónir og hins vegar 5 milljónir. Sleppt úr gæsluvarðhaldi og handtekinn á nýjan leik Rannsókn lögreglu er lokið en fyrstu daga hennar var ýmislegt á huldu hvað atvikið varðaði. Í nóvember barst lögreglu tilkynning um meðvitundarlausan mann í íbúð á Kársnesi. Maðurinn, sem var Portúgali um fertugt, var látinn þegar lögregla kom á staðinn. Hann var með fjölda stunguáverka og lögreglan virtist í fyrstu telja líklegt að hann hefði veitt sér áverkana sjálfur. Í desember var síðan grískur félagi hans handtekinn í tengslum við andlátið en þeir látni höfðu verið saman kvöldið sem andlátið bar að garði. Karlmanninum var sleppt úr haldi þegar gæsluvarðhaldið rann út og tjáði lögregla fjölmiðlum að ekki væri talin ástæða til þess að krefjast áframhaldandi varðhalds. Nýjar vendingar urðu svo til þess að maðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald á nýan leik og verður hann í haldi lögreglu þar til ákæran hefur farið fyrir dómstóla.