Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News RÚV

Framlengja gæsluvarðhald í Kársnesmálinu

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 24 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Fram­lengja gæslu­varð­hald í Kárs­nes­mál­inu Mist Þormóðsdóttir Grönvold Gæsluvarðhald yfir manni vegna andláts karlmanns í heimahúsi í Kársnesi í Kópavogi í nóvember hefur verið framlengt til 18. mars. Í tilkynningu lögreglu segir að varðhaldið hafi verið framlengt á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Maðurinn, sem er grískur, hefur verið í gæsluvarðhaldi síðan í desember. Hann var handtekinn eftir að félagi hans fannst látinn með stunguáverka. Varðhaldið hefur verið framlengt á grundvelli rannsóknarhagsmuna. RÚV / Ragnar Visage NýttERLENDAR FRÉTTIR Noregur Marius Høiby: „Ég hef aldrei slegið nokk­urn mann“ Marius Høiby neitar að hafa beitt fyrrverandi kærustu sína ofbeldi eins og hún heldur fram. Hann viðurkennir þó að eiga í vandræðum með skap sitt. Fyrir 33 mínútumMENNING OG DÆGURMÁL Bókmenntagagnrýni Synda­fall: „Hún er bara svo snilld­ar­lega flétt­uð“ Í nýjustu spennusögu Yrsu Sigurðardóttur, Syndafalli, fléttast saman þrír ólíkir söguþræðir sem gagnrýnendur Kiljunnar furða sig yfir hvernig henni hafi tekist að tengja saman. Bókin sé „dæmigerð Yrsa“ en þó ekki jafn óhugnanleg og oft áður. Fyrir 40 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Ást­ar­svik­arar höfðu 70 millj­ón­ir af Ís­lend­ing­um í fyrra Ástarsvikarar á netinu höfðu 70 milljónir króna af Íslendingum í fyrra. Aðstoðaryfirlögregluþjónn fjármunabrotadeildar segir líklegt að slík brot færist í aukana hér á landi. Þrjú slík mál hafa komið upp það sem af er þessu ári. Fyrir 46 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Utanríkismál Beint: Fundur Krist­rún­ar Frosta­dótt­ur og Don­alds Tusks Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hittir starfsbróður sinn Donald Tusk í Varsjá. Fyrir 51 mínútuINNLENDAR FRÉTTIR Atvinnulíf Tólf sagt upp hjá Sjúkra­trygg­ing­um Tólf var sagt upp hjá Sjúkratryggingum Íslands í dag. Uppsagnirnar eru liður í að bæta starfsemi stofnunarinnar, segir í tilkynningu. Fyrir 51 mínútuINNLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Lang­þreytt­ir Rússar vilja samt sigur Um þriðjungur Rússa kveðst hafa orðið fyrir beinum áhrifum af stríðinu í Úkraínu, segir yfirmaður EBU í Moskvu. Mannfallið sé áþreifanlegt og almenningur farinn að finna fyrir efnahagslegum afleiðingum stríðsrekstursins. Fyrir 51 mínútuINNLENDAR FRÉTTIR Veður „Menn keyri bara eftir að­stæð­um og fari var­lega“ Gul veðurviðvörun vegna talsverðrar eða mikillar snjókomu tók gildi á höfuðborgarsvæðinu klukkan tvö og gildir til sjö í kvöld . Viðbúið er að veðrið geti valdið umferðartruflunum. Veðrið á að ganga niður í kvöld. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Veður Gul við­vör­un á höf­uð­borg­ar­svæð­inu Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun á höfuðborgarsvæðinu fram yfir kvöldmat vegna mikillar snjókomu. Viðbúið er að hún geti truflað umferð. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Pír­at­ar næðu á þing en Flokk­ur fólks­ins dytti út Fylgi Miðflokksins minnkar milli kannana en fylgi Sjálfstæðisflokksins eykst í nýrri könnun Maskínu. Píratar myndu ná inn á þing en Flokkur fólksins detta út. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Brunavarnir Hafa áhyggj­ur af bruna­vörn­um á yf­ir­fullri bráða­mót­töku Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins vinnur með Landspítalanum við að bæta brunavarnir á yfirfullri bráðamóttöku. Veitingahús fengi ekki að vera í rekstri undir sömu kringumstæðum, segir sviðsstjóri forvarnarsviðs Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Gæti orðið blint í skaf­renn­ingi og mik­illi snjó­komu Færð gæti spillst á Vesturlandi síðdegis og akstursskilyrði gætu orðið krefjandi á nokkrum stöðum. Úrkomubakki gengur inn yfir vestanvert landið upp úr hádegi. Fyrir 3 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Bókmenntagagnrýni Þegar hún hló: Ást­ar­sag­an besti þáttur glæpa­sög­unn­ar Gagnrýnendur Kiljunnar eru sammála um að Þegar hún hló sé kraftmikil glæpasaga og þægileg lesning en úrlausn hennar ekki nógu sterk. Kolbrún segir ástarsöguna það sem sitji eftir. „Hún er svo falleg. Hún er eitthvað svo rétt.“ Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Þunnt og þrúg­andi loft í Qu­er­et­aro fyrir leik Ís­lands Það er óhætt að segja að íslenska karlalandsliðið í fótbolta sé að fara inn í verkefni við skrýtnar aðstæður þegar liðið mætir Mexíkó í nótt. Ofan á það bætist svo við að leikurinn er spilaður í tæplega 2000 metrum yfir sjávarmáli. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Trump fór með stað­reynd­ar­vill­ur og stóð í stappi við Demó­krata Stefnuræða Donalds Trump forseta Bandaríkjanna í nótt var uppfull af staðreyndarvillum um efnahagsmál, landamæri og kosningar. Stemningin varð á tímabili spennuþrungin, einkum þegar rætt var um innflytjendamál. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Rúmenía 10% op­in­berra starfs­manna verður sagt upp Þorgils Jónsson Ilie Bolojan tekur ríkisreksturinn í Rúmeníu föstum tökum. EPA / CLEMENS BILAN Ilie Bolojan forsætisráðherra Rúmeníu tilkynnti í dag að 10% allra opinberra starfsmanna yrði sagt upp störfum fyrir lok árs. Þetta er hluti af hagræðingaraðgerðum stjórnvalda. Fjárlagahalli er hvergi meiri í Evrópusambandinu en einmitt í Rúmeníu. Bolojan tók við embætti síðasta sumar og hefur ráðist í ýmiss konar aðgerðir, meðal annars hækkað skatta, að því er AFP segir frá. Uppsagnirnar munu taka til um 13 þúsund manns, allt frá efstu lögum embættismannakerfisins niður í lögreglu og heilbrigðisstarfsfólk. Bolojan hefur sagst vilja snúa landinu frá neyslu og hallarekstri yfir í fjárfestingu, framleiðni, útflutning og ábyrgan ríkisrekstur. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Ákæra menn í annað sinn fyrir að kveikja í bíl lög­reglu­konu Héraðssaksóknari hefur ákært þrjá karlmenn fyrir að kveikja í bíl. Þetta er í annað sinn sem ákært er vegna sama brots. Fyrri ákæru var vísað frá dómi þar sem embættið hafði ekki vald til að ákæra vegna svona brota. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Zimbabwe Slíta samn­ing­um og segja vegið að full­veldi lands­ins Stjórnvöld í Simbabve segja vegið að sjálfstæði ríkisins í samningum við Bandaríkin um heilbrigðisaðstoð og hafa slitið viðræðum. Undanfarið ár hafa bandarísk stjórnvöld samið við ríki í Afríku um aðstoð í stað USAID sem forsetinn lagði niður. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Henry lof­syng­ur Bodø/Glimt sem gæti sett byrjun tíma­bils­ins í uppnám Eftir frækinn sigur á Inter Milan í Meistaradeild Evrópu í gær keppast sérfræðingar um allan heim við að hrósa Bodø/Glimt. Velgengni liðsins gæti komið knattspyrnusambandinu í erfið mál. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Flóttafólk Vill að þing­nefnd banni vistun barna í brott­vís­un­ar­búð­um Mannréttindastjóri Evrópuráðsins hefur sent erindi til allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis. Hann fer fram á að ákvæði um vistun barna í brottvísunarbúðum verði tekið út úr frumvarpi dómsmálaráðherra. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Leggja til eigna­skatt á rík­ustu Danina Þorgils Jónsson Danski einingarlistinn, Enhedslisten, vill leggja eins prósents skatt á eignir yfir 35 milljónum danskra króna, sem jafngildir um 700 milljónum íslenskra. Danska ríkisútvarpið segir frá. Flokkurinn, sem er yst til vinstri af flokkum á Þjóðþinginu, segir misskiptingu auðs allt of mikla. Ríkisstjórnin verði að taka fast á ójöfnuði þar sem fátækt fólk neyðist til að kaupa útrunninn mat á meðan þau ríkustu skreppi í helgarferðir til Dúbaí. Einingarlistanum reikast til að skatturinn leggist á 14 þúsund ríkustu Danina. Skattamálaráðuneytinu reiknast til að skatturinn geti skilað um tíu milljörðum danskra króna í ríkissjóð, 200 milljörðum íslenskra. Fátækustu Danirnir þurfa að sýna mikla ráðdeild á meðan þeir ríkustu stunda lúxusferðalög, segir Einingalistinn. DR Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Stór­fellt smygl á ket­am­íni og MDMA komið til kasta hér­aðs­dóms Aðalmeðferð hófst í morgun, fyrir Héraðsdómi Reykjaness, í máli sem varðar stórfellt smygl á ketamíni og MDMA-töflum til landsins. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Bjarki býður sig fram til vara­for­manns Brynjólfur Þór Guðmundsson Bjarki Hjörleifsson, stjórnarmaður í Vinstri grænum í Reykjavík, býður sig fram í embætti varaformanns flokksins á landsfundi um þarnæstu helgi. Bjarki hefur tvívegis verið kosningastjóri flokksins í Norðvesturkjördæmi og skipaði annað sæti á lista flokksins í kjördæminu fyrir síðustu þingkosningar. Hann hefur jafnframt unnið á flokksskrifstofu og fyrir þingflokk Vinstri grænna. Hann var aðstoðarmaður Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur matvælaráðherra 2024. Hann segist hafa ákveðið framboð eftir hvatningar frá flokksmönnum víða um land. Markmiðið sé að efla innra starf hreyfingarinnar og takast á við verkefni sem vinstrið standi frammi fyrir. Bjarki Hjörleifsson. Aðsend / Haukur Sigurðsson Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Landbúnaður ESA vill betra eft­ir­lit með græn­met­is- og ávaxta­fram­leiðslu Veikleikar eru fólgnir í eftirliti með framleiðslu grænmetis, ávaxta og baunaspíra hér á landi að mati Eftirlitsstofnunar EFTA. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Samn­inga­menn Úkra­ínu og Banda­ríkj­anna hitt­ast á morgun Hallgrímur Indriðason Rustem Umerov í ræðustól í Instanbul í Tyrklandi í sumar, að loknum friðarviðræðum þar. EPA / TOLGA BOZOGLU Rustem Umerov samningamaður Úkraínu hittir Steve Witkoff erindreka Bandaríkjastjórnar í Genf á morgun. Þetta upplýsti Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu í samtali við fréttamenn í morgun. Tilgangur fundarins er að undirbúa þríhliða viðræður þeirra við Rússa um frið í Úkraínu, en þær viðræður eiga að hefjast í byrjun mars. Úkraínumenn gerðu í nótt drónaárás á verksmiðju í Smolensk-héraði í Rússlandi. Fjórir voru drepnir og tíu særðir, að sögn Vasily Anokhin héraðsstjóra Smolensk. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Srí Lanka Fyrrum yf­ir­mað­ur leyni­þjón­ust­unn­ar hand­tek­inn Fyrrum yfirmaður leyniþjónustunnar á Srí Lanka er grunaður um samsæri og tengsl við sjálfsmorðssprengjuárásirnar á páskadag 2019. 279 létu lífið og um 500 særðust í árásum á þremur hótelum og í þremur kirkjum. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Fer að snjóa á hö

Share this article