Innlent | mbl | 18.3.2026 | 18:22 Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Skjáskot sem tekið var um það bil sekúndu eftir frammíkall Ingu á þingi fyrr í dag er Guðlagur var í ræðustól Alþingis. Skjáskot/Alþingi Setja bókamerki Tengdar fréttir Alþingi Hvað ef við gætum afkastað á við 4 milljónir? Fyrri umræðu um ESB-tillögu lokið Þórdís myndi vilja þétta samstarf við ESB Vill fella brott línuívilnanir og skel- og rækjubætur Segir Kristrúnu ekki svara spurningum » Fleiri tengdar fréttir „Hæstvirtur ráðherra fær níu af tíu mögulegum fyrir þetta frammíkall,“ sagði sprenghlæjandi Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, um frammíkall Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, á Alþingi fyrr í dag. Til að setja ummælin í samhengi fyrir lesendur hófst umræðan á fyrirspurn Diljár Mistar Einarsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, til Ingu um áhrif loftgæða í Reykjavík á útivist leikskólabarna. Vildi Diljá í fyrirspurn sinni fá að vita hvort Inga hygðist í krafti stöðu sinnar grípa til einhverra aðgerða þar sem útivist leikskólabarna væri reglulega skert vegna slæmra loftgæða í borginni og benti Diljá á að slíkt hafi t.a.m. gerst fyrir ekki svo löngu. Í svari sínu sagði Inga ábyrgðina um útiveru leikskólabarna, til dæmis þegar loftgæði væru slæm, liggja hjá sveitarfélögum en ekki ráðherra. Þá myndi hún ekki grípa til sérstakra aðgerða en að hins vegar yrði m.a. tekið til skoðunar hvort tilefni væri til að afla frekari upplýsinga frá Reykjavíkurborg um verklag við útiveru barna vegna loftgæða. Viðbrögð Ingu ekki nógu „Sælands-leg“ Guðlaugur Þór steig í ræðustól Alþingis stuttu síðar og þakkaði Diljá fyrir að taka málið upp sem og Ingu fyrir viðbrögð hennar. Tók hann þó fram að sér hefði ekki fundist viðbrögð ráðherrans nógu „Ingu Sælands-leg.“ Ekki vinsælt þegar Inga tekur upp símann „Ég var að vonast til þess að hæstvirtur ráðherra myndi nú gera eins og hæstvirtur ráðherra gerir stundum og sé bara ákveðinn og segi: Að sjálfsögðu tek ég upp símann, hringi í mitt fólk í ráðhúsinu og segi þeim að laga þetta.“ „Hæstvirtur ráðherra myndi fá stuðning við það. Þetta er nú ekki flókið. Þetta er eitt af þessu mörgu í grunnþjónustu Reykjavíkurborgar sem er ekki sinnt,“ bætti Guðlaugur við áður en Inga skaut inn í: „Það er ekki vinsælt þegar ég tek upp símann.“ Frétt af mbl.is Ársæll um símtalið: „Hún var ekki í neinu jafnvægi“ Fær níu af tíu í einkunn frá Guðlaugi Hlaut það frammíkall ráðherrans mikla kátínu þeirra þingmanna sem staddir voru í þingsalnum, þar á meðal Guðlaugs sem skellti allrækilega upp úr og sagði ummælin vera með betri frammíköllum sem höfðu komið fram lengi á þinginu. „En ég stend við áskorunina og hvet hæstvirtan ráðherra til að taka upp símann eða þá bara ganga yfir Vonarstrætið ef síminn er vesen. En hæstvirtur ráðherra fær níu af tíu mögulegum fyrir þetta frammíkall.“ Tengdar fréttir Alþingi Hvað ef við gætum afkastað á við 4 milljónir? Fyrri umræðu um ESB-tillögu lokið Þórdís myndi vilja þétta samstarf við ESB Vill fella brott línuívilnanir og skel- og rækjubætur Segir Kristrúnu ekki svara spurningum » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Fimm sveitir eftir í úrvalsdeildinni Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Hefur ekki áhrif á ákvörðun Jóhanns og fjölskyldu Á förum frá sænska félaginu Óvissa með einn besta leikmann heims Umræðan „Skjólið“ í ESB Byggjum brýr í stað veggja Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Flugskeyti hæfði íranskt kjarnorkuver „Ömurlegt fyrir okkur í Eflingu“ „Við freistuðumst til að fagna of snemma“ Öll merki um að of mikið hafi verið tekið út Mest lesið Í gær Í vikunni „Fundum manninn hálfsturlaðan“ „Stærsta bylting sem við höfum séð“ Stefnir í öngþveiti að óbreyttu Réðst á einn á Landspítala og tók af honum farsíma Gular viðvaranir á stórum hluta landsins Hefði verið hægt að fyrirbyggja mannslát Seðlabankinn hafi misst tökin Ísaksskóli á leið í Kópavog Rannsókn lokið og ákæra gefin út í dag Væri góð hugmynd að hætta að deila um tölurnar Sjö handteknir vegna meiri háttar líkamsárásar Næsta gossprunga gæti legið frá Grindavík Loka einni hæð á spítalanum vegna myglu Hviður geta náð allt að 35 m/s Arndís Bára fær ár til viðbótar Ferlið geti verið neikvætt og niðurlægjandi Heilbrigðisyfirvöld taka sýni vegna dularfullrar ólyktar Ætla að læra af mistökum sínum Felldi ljón með skammbyssu á 40 metrum Skoða veggjöld á öllum leiðum frá höfuðborgarsvæðinu Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Borga ekki umferðarsektir Nýjast á mbl.is » Fimm sveitir eftir í úrvalsdeildinni Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Hefur ekki áhrif á ákvörðun Jóhanns og fjölskyldu Á förum frá sænska félaginu Óvissa með einn besta leikmann heims Umræðan „Skjólið“ í ESB Byggjum brýr í stað veggja Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fara fram á rúmlega sjö ára dóm yfir Høiby „Mjög skrýtið ef við værum öll sammála“ Frumvarpið hjálpar ekki til Alvarlegir annmarkar á brunavörnum Mest lesið Í gær Í vikunni „Fundum manninn hálfsturlaðan“ „Stærsta bylting sem við höfum séð“ Stefnir í öngþveiti að óbreyttu Réðst á einn á Landspítala og tók af honum farsíma Gular viðvaranir á stórum hluta landsins Hefði verið hægt að fyrirbyggja mannslát Seðlabankinn hafi misst tökin Ísaksskóli á leið í Kópavog Rannsókn lokið og ákæra gefin út í dag Væri góð hugmynd að hætta að deila um tölurnar Sjö handteknir vegna meiri háttar líkamsárásar Næsta gossprunga gæti legið frá Grindavík Loka einni hæð á spítalanum vegna myglu Hviður geta náð allt að 35 m/s Arndís Bára fær ár til viðbótar Ferlið geti verið neikvætt og niðurlægjandi Heilbrigðisyfirvöld taka sýni vegna dularfullrar ólyktar Ætla að læra af mistökum sínum Felldi ljón með skammbyssu á 40 metrum Skoða veggjöld á öllum leiðum frá höfuðborgarsvæðinu Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Borga ekki umferðarsektir