Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp

Read Full Article →

Innlent | mbl | 15.4.2026 | 14:11 Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Magnús Þór hlustaði á ræðu Ingu af athygli. mbl.is/Árni Sæberg Elínborg Una Einarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Vill smærri nemendahópa og einkunnir í tölustöfum Börn lýsa óöryggi og vilja læra sjálfsvörn Ofbeldið fer fram hjá fullorðnum Fjarveran áhyggjuefni Bæta nemendum ekki upp tímann þrátt fyrir skýr lög » Fleiri tengdar fréttir „Það er greinilega orðið vinnulag í ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur að kasta sprengjum á vettvang launafólks,“ sagði Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, þegar hann ávarpaði þing sambandsins í morgun. Í ræðunni skaut hann föstum skotum á Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, sem hafði ávarpað samkomuna fyrr um morguninn, en hún er þriðji ráðherra Flokks fólksins til að gegna embættinu frá upphafi árs 2025. Í ræðu sinni, sem virðist ekki hafa fallið sérlega vel í kramið hjá fundargestum, fór Inga yfir víðan völl og boðaði ýmsar breytingar á sviði menntamála: mögulega fjölgun kennslustunda, hækkun aldurstakmarks á samfélagsmiðlum, endurskoðun einkunnakerfis grunnskóla, smærri nemendahópa og byltingu í námsgagnagerð. Frétt af mbl.is Vill smærri nemendahópa og einkunnir í tölustöfum „Skólakerfið þráir langtímasýn“ Ljóst er að Magnús Þór var hvorki sérlega hrifinn af öllum hugmyndum Ingu né stöðunni þegar kemur að stjórn menntamála í landinu. „Við getum ekki horft fram hjá því að pólitískt umhverfi menntamála hefur verið ansi óstöðugt,“ sagði Magnús í ræðu sinni og benti á að frá síðasta Kennarasambandsþingi fyrir fjórum árum hafi fjórir menntamálaráðherrar setið. „Það er ekki bara staðreynd sem við nefnum oft í einhverju framhjáhlaupi. Þetta er auðvitað veruleiki sem hefur áhrif. Með hverjum ráðherra koma nýjar áherslur, ný orð og stundum ný verkefni,“ sagði hann. „Þess vegna skiptir stöðugleiki í stjórnmálum máli, ekki vegna stjórnmálanna sjálfra heldur vegna barnanna, nemendanna og þess starfs sem við erum að sinna. Skólakerfið þráir langtímasýn, það þarf þolinmæði og ákvarðanir sem lifa lengur en einn ráðherra. Og rödd okkar þarf að vera öflug við borðin þar sem pólitískar ákvarðanir eru teknar.“ Líti upp úr Excel-skjalinu sínu Næst vék Magnús að orðræðu um skólakerfið í samfélaginu og á vettvangi stjórnmála. „Orðræða um skólakerfið þarf að byggjast á virðingu fyrir því verkefni sem þar fer fram. Það þarf vissulega að horfa til þess að rýna til gagns en það er ekki síður mikilvægt að lyfta upp því fjölmarga á vettvangi barnanna okkar í öllum skólagerðum sem vel er gert,“ sagði hann. „Við viljum auðvitað gera betur en við gerum líka þá kröfu til stjórnmálamannanna að þeir fari inn í skólana okkar, kynni sér skólastarfið, líti upp úr Excel-skjalinu sínu eða einhverjum sambærilegum heimildum sem eiga að setja upp einhverja mynd, mynd sem er af allt öðru en því sem fer fram í skólunum okkar.“ Magnús sagði að fundargestir hefðu síðast orðið vitni að slíkum misskilningi áðan en þar má ætla að hann hafi vísað í ræðu Ingu Sæland. Inga Sæland í pontu. mbl.is/Árni Sæberg Munu standa í lappirnar „Það er algjörlega óþolandi ef það er komið á þann stað að til að árangur náist þurfi að byggja ákvarðanatöku á samtali við aðra en það fólk sem leggur sig fram við að ná árangri hvern dag,“ sagði Magnús síðar í ræðu sinni. „Auðvitað eiga aðrir og mega koma að umræðunni en í hvernig heim erum við komin þegar fagfólkið er ekki við borðið eða hefur þar veika rödd?“ Þá tók Magnús fram að í þessari umræðu væri mikilvægt að bera virðingu fyrir vinnutíma og kjarasamningum en í ræðu sinni lagði Inga til fjölgun kennslustunda. „Það er ólíðandi að heyra túlkanir úti í bæ um eitthvað allt annað sem þar fer fram og við hjá KÍ munum að sjálfsögðu standa fast í lappirnar ef umræðan mun fara að snúast um það,“ sagði Magnús. Sveitastjórnarkosningar á næsta leiti Loks benti Magnús á að sveitarstjórnarkosningar væru rétt handan við hornið og mikilvægt væri að skólafólk tæki þátt í umræðunni í aðdraganda þeirra. „Ef við setjum ekki skólamál á dagskrá þá gera aðrir það fyrir okkur með töluvert minni þekkingu en við höfum að bera. “ Uppskar standandi lófatak „Við heyrðum á erindi ráðherra hérna áðan að það er verk að vinna við að verja fagmennsku í okkar störfum,“ sagði Magnús undir lok erindis síns og bætti við: „Það er greinilega orðið vinnulag í ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur að kasta sprengjum á vettvang launafólks og þá er það okkar að sýna það með styrk og samstöðu að við erum tilbúin að taka á móti slíkum vinnubrögðum. Ég er alveg sannfærður um það að við erum öll tilbúin til að takast á við það verkefni. Ég hlakka allavega til að standa vörð um fagmennskuna á okkar forsendum til framtíðar með ykkur í liði því við sýndum hversu sterk við erum þegar við stöndum saman.“ Það var greinilegt að þessi eldræða Magnúsar fékk góðan hljómgrunn meðal ráðstefnugesta sem að risu úr sætum sínum og klöppuðu að henni lokinni. Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Vill smærri nemendahópa og einkunnir í tölustöfum Börn lýsa óöryggi og vilja læra sjálfsvörn Ofbeldið fer fram hjá fullorðnum Fjarveran áhyggjuefni Bæta nemendum ekki upp tímann þrátt fyrir skýr lög » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » „Allt selt fyrir leiðina til Brussel“ Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Frá Króatíu til Akureyrar Lambaskankar á fjóra vegu Loka Levi's á Hafnartorgi Umræðan Sköpum borg sem virkar fyrir alla Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fær falleinkunn hjá fjármálaráði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Um 25 milljónir rúmmetra af kviku undir Svartsengi Flugvélin „hvarf“ í fjórar mínútur Tekjurnar drógust saman um milljarð á einu ári Loftbrú breytt peninganna vegna Mest lesið Í gær Í vikunni Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Loftbrú breytt peninganna vegna Hitinn allt að 10 stigum Sækir um eigið embætti eftir „leikritið“ í haust Öllum ljóst að breytingarnar misheppnuðust Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt Níu vilja verða skólameistarar eða rektor „Hörmum að þetta hafi átt sér stað“ Enn lagði Dista ÁTVR Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Flugvélin „hvarf“ í fjórar mínútur Urðu að stöðva hann með öllum tiltækum ráðum Segir ekkert barn orðið fyrir ofbeldi á heimilinu Myndskeið sýnir lögreglu keyra utan í bílinn Jón Baldvin: Íslendingar þurfa hjálp Lést eftir fall í Ölfusá Framvísaði fölsuðu ökuskírteini frá Úkraínu Stórmynd í tökum hér á landi í sumar Trans fangi afplánaði með konum á Sogni Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Nýjast á mbl.is » „Allt selt fyrir leiðina til Brussel“ Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Frá Króatíu til Akureyrar Lambaskankar á fjóra vegu Loka Levi's á Hafnartorgi Umræðan Sköpum borg sem virkar fyrir alla Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fær falleinkunn hjá fjármálaráði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Loftbrú breytt peninganna vegna Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Þríhliða samtal við vinnumarkaðinn komið af stað Mest lesið Í gær Í vikunni Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Loftbrú breytt peninganna vegna Hitinn allt að 10 stigum Sækir um eigið embætti eftir „leikritið“ í haust Öllum ljóst að breytingarnar misheppnuðust Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt Níu vilja verða skólameistarar eða rektor „Hörmum að þetta hafi átt sér stað“ Enn lagði Dista ÁTVR Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Flugvélin „hvarf“ í fjórar mínútur Urðu að stöðva hann með öllum tiltækum ráðum Segir ekkert barn orðið fyrir ofbeldi á heimilinu Myndskeið sýnir lögreglu keyra utan í bílinn Jón Baldvin: Íslendingar þurfa hjálp Lést eftir fall í Ölfusá Framvísaði fölsuðu ökuskírteini frá Úkraínu Stórmynd í tökum hér á landi í sumar Trans fangi afplánaði með konum á Sogni Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“

Share this article