Innlent | mbl | 16.4.2026 | 17:10 Kennarar æfir út í Ingu Inga Sæland í pontu á þingi Kennarasambands Íslands. mbl.is/Árni Sæberg Setja bókamerki Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Seljaskóli leysir Ölduselsskóla af hólmi Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Vill smærri nemendahópa og einkunnir í tölustöfum Börn lýsa óöryggi og vilja læra sjálfsvörn Ofbeldið fer fram hjá fullorðnum » Fleiri tengdar fréttir Kennarar hafa miklar áhyggjur af framgöngu Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, á þingi Kennarasambands Íslands í gær. Í yfirlýsingu sem samþykkt var á þinginu í dag segir að þingið hafi áhyggjur af þeim viðhorfum sem Inga hefur sýnt í garð skólasamfélagsins og þeirrar fagþekkingar sem menntakerfið byggir á. Inga ávarpaði þingið í gær og sagðist ætla að gera breytingar sem kallað hefur verið eftir. Til dæmis ætlaði hún að breyta einkunnakerfinu svo nemendur fengju einkunnir í tölustöfum. Þá vill hún hafa smærri nemendahópa og styrkja grunnstoðir menntakerfisins. „Við verðum líka að hafa kjark til að ræða það sem foreldrar hafa kallað eftir í langa hríð. Það er meira gagnsæi,“ sagði Inga. Þessar yfirlýsingar Ingu hafa farið öfugt ofan í kennara. Frétt af mbl.is Vill smærri nemendahópa og einkunnir í tölustöfum Stöðugleika hafi skort „Mikilvægt er að ræða stöðu skólakerfisins af hreinskilni en slík umræða verður að byggja á staðreyndum, vandvirkni og raunverulegu samtali við kennara og annað fagfólk sem ber uppi skólastarf á hverjum degi,“ segir í yfirlýsingunni sem samþykkt var á þinginu. Þá er bent á að skort hafi á stöðugleika í menntamálum að undanförnu. „Þrír mennta- og barnamálaráðherrar á rúmlega ári er fáheyrð staða og eitthvað sem þekkist ekki í samanburðarlöndum okkar. Til að innleiða breytingar eru kennarar og annað fagmenntað starfsfólk á öllum skólastigum og skólagerðum grundvallaratriði. Stefnumörkun á grundvelli popúlískra, pólitískra slagorða er hvergi líkleg til árangurs,“ segir í yfirlýsingunni. Þingið lýsir sérstökum áhyggjum af ummælum Ingu um skóla án aðgreiningar. „Ísland hefur, með lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, skuldbundið sig til að starfa á grundvelli réttinda fatlaðs fólks. Skóli án aðgreiningar þarf aukinn stuðning, eflingu úrræða og fleira fagfólk. Samfélagið þarf alls ekki umræðu sem ýtir undir aðgreiningu.“ Frétt af mbl.is Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Kalla eftir breyttum vinnubrögðum Telur þingið áskoranir menntakerfisins vera fjölmargar, svo sem „breytt samfélagsgerð, skortur á úrræðum, kennurum og öðru fagmenntuðu starfsfólki, vönduðum námsgögnum og aðstöðu, til dæmis til verknáms.“ Kennarar segja stjórnvöld verða að leggja traustan grunn undir metnaðarfull pólitísk markmið eigi þau að ná fram að ganga. Tryggja þurfi jafnt aðgengi nemenda að námi, óháð búsetu, svo allir fái metnaðarfull tækifæri til náms þar sem hæfni þeirra, áhuga og þörfum er mætt. „Níunda þing Kennarasambands Íslands kallar eftir breyttum vinnubrögðum, meiri vandvirkni og nýjum tóni í stefnumörkun stjórnvalda og samskiptum við skólasamfélagið og lýsir sig reiðubúið, hér eftir sem hingað til, til faglegs samráðs og samvinnu við mennta- og barnamálaráðherra,“ segir í niðurlagi yfirlýsingar kennara. Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Seljaskóli leysir Ölduselsskóla af hólmi Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Vill smærri nemendahópa og einkunnir í tölustöfum Börn lýsa óöryggi og vilja læra sjálfsvörn Ofbeldið fer fram hjá fullorðnum » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Innbrotsþjófur reyndist vera saklaus iðnaðarmaður Virða vopnahléið ef Ísrael hættir árásum Ísland leikur í Rúmeníu í lokakeppni EM Tækifæri í ESB fyrir hluthafa í sjávarútvegsfyrirtækjum Kennarar æfir út í Ingu Umræðan Það er svo margt hægt að gera strax Gullkista útflutnings á Austurlandi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir engin áform um að hætta með loftbrúna Sigmundur Davíð lét ekki segjast Lokaðir inni um óákveðinn tíma Andstaða við inngöngu snareykst milli ára Mest lesið Í gær Í vikunni Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Tíu látnir í langan tíma áður en þeir fundust Andlát: Svavar Sigmundsson Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Telur nóg komið og hættir sem skólameistari Sigmundur Davíð lét ekki segjast „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Hækkar byggingarkostnað Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Loftbrú breytt peninganna vegna Hitinn allt að 10 stigum Sækir um eigið embætti eftir „leikritið“ í haust Óboðlegt að framkvæmdastjóri fari svona fram Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Nýjast á mbl.is » Innbrotsþjófur reyndist vera saklaus iðnaðarmaður Virða vopnahléið ef Ísrael hættir árásum Ísland leikur í Rúmeníu í lokakeppni EM Tækifæri í ESB fyrir hluthafa í sjávarútvegsfyrirtækjum Kennarar æfir út í Ingu Umræðan Það er svo margt hægt að gera strax Gullkista útflutnings á Austurlandi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Bændur með harða gagnrýni Úrelt fjarskiptakerfi fær senn að víkja Ísrael og Líbanon hafa samþykkt tíu daga vopnahlé Kann ekki að meta að vera sökuð um blekkingar Mest lesið Í gær Í vikunni Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Tíu látnir í langan tíma áður en þeir fundust Andlát: Svavar Sigmundsson Handtekinn við að þvo föt eftir árásina Telur nóg komið og hættir sem skólameistari Sigmundur Davíð lét ekki segjast „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Hækkar byggingarkostnað Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Loftbrú breytt peninganna vegna Hitinn allt að 10 stigum Sækir um eigið embætti eftir „leikritið“ í haust Óboðlegt að framkvæmdastjóri fari svona fram Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn