Innlent | mbl | 15.4.2026 | 11:45 Vill smærri nemendahópa og einkunnir í tölustöfum Inga Sæland ræddi hitt og þetta í ræðu sinni. mbl.is/Árni Sæberg Elínborg Una Einarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Börn lýsa óöryggi og vilja læra sjálfsvörn Ofbeldið fer fram hjá fullorðnum Fjarveran áhyggjuefni Bæta nemendum ekki upp tímann þrátt fyrir skýr lög Miklu færri kennsludagar hér á landi » Fleiri tengdar fréttir Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, fór um víðan völl þegar hún ávarpaði þing Kennarasambands Íslands í morgun. Þar boðaði hún ýmsar breytingar á sviði menntamála, mögulega fjölgun kennslustunda, hækkun aldurstakmarks á samfélagsmiðlum, endurskoðun einkunnakerfis grunnskóla, smærri nemendahópa og byltingu í námsgagnagerð. Í upphafi ræðu sinnar sagði Inga að kennarar væru á meðal mikilvægustu fagstétta landsins og þakkaði þeim fyrir sitt framlag til samfélagsins. „Virðing við kennara felst ekki aðeins í fallegum orðum. Virðing felst í því að horfast í augu við hlutina og að við séum tilbúin að setja spurningarmerki við kerfið og breyta því ef við finnum betri leiðir. Við eigum að tala hreint út því það er börnunum okkar fyrir bestu,“ sagði Inga og bætti við að íslenska menntakerfið stæði frammi fyrir ýmsum áskorunum. Frétt af mbl.is Beint: Inga Sæland ávarpar kennara Árangurinn ekki nógu góður „Árangurinn er ekki alltaf í samræmi við þá fjármuni sem samfélagið leggur til menntunar. Árangur nemenda í PISA hefur versnað og árangur barna hér í alþjóðlegum samanburði er ekki nógu góður,“ sagði Inga Í þessu samhengi benti hún á að aðeins 60% nemenda á Íslandi næðu viðmiðum OECD um grunnfærni í lesskilningi í PISA-prófinu og að hlutfall nemenda sem velur svokallaðar STEM-greinar í háskóla væri „allt of lágt“. Þá sagði Inga að of stór hluti nemenda ljúki námi aðeins með grunnskólaprófi. „Það er ýmislegt og annað sem bendir til þess að það þurfi að styrkja grunnstoðir menntakerfisins okkar,“ sagði ráðherrann. Inga snerti á mörgum viðfangsefnum sem eru afar umdeild innan kennarasamfélagsins. mbl.is/Árni Sæberg Hugsanleg fjölgun kennslustunda Næst vék hún máli sínu að umræðunni um skóladaga og kennsludaga sem hefur verið nokkuð áberandi innan skólasamfélagsins síðustu vikur. „Gott og vel, en það er munur á þessu tvennu. Og sá munur er dreginn fram í alþjóðlegum samanburði,“ sagði Inga. Hún bætti við að kennsludagar og kennslutímar væru færri hér á landi en annars staðar þó að skólaárið væri sums staðar jafn langt á blaði. Frétt af mbl.is Miklu færri kennsludagar hér á landi „Þetta eru staðreyndir sem við þurfum að vera óhrædd við að ræða. Þessi umræða gefur ekki til kynna að kennarar hafi brugðist eða séu ekki að sinna vinnunni sinni. Það er langt því frá. Þetta þýðir að kerfið í heild sinni þarf að skoða af heiðarleika og ábyrgð,“ sagði Inga. „Hér er ekki endilega verið að tala um lengingu skólaársins því að við vitum það að magn er ekki endilega það sama og gæði. En kannski getum við sammælst um að leggja meiri áherslu á faggreinakennslu og fleiri kennslustundir á kostnað annarra vinnustunda sem ýmsir kennarar hafa bent á að megi hugsanlega endurskoða og auðvitað gerum við það þá saman.“ „Ég er ein eyru. Ég er bara hér fyrir ykkur, fyrir börnin okkar, foreldrana. Ég er bara verkfæri eins og þið,“ bætti ráðherrann við. Rænum æskunni frá börnunum Þá vék Inga að símanotkun í skólum og sagði að barni sem líður illa gangi illa í öllu námi. „Það eru engar fréttir. Þess vegna boðaði hún samræmda löggjöf um símafrí í skólum,“ sagði Inga sem mun funda með ungmennum á fimmtudaginn til að útfæra löggjöfina. „Samhliða þessu vil ég hækka aldursmörk barna á samfélagsmiðlum en það er alveg ljóst að samfélagsmiðlar eru að ræna æskunni frá börnunum okkar,“ bætti hún við. Þarf kjark til að ræða óskir foreldra Næst ræddi Inga óskir foreldra. „Við verðum líka að hafa kjark til að ræða það sem foreldrar hafa kallað eftir í langa hríð. Það er meira gagnsæi,“ sagði hún. „Foreldrar eiga rétt á skýrum upplýsingum um stöðu barna sinna í náminu. Í þessu sambandi hafa foreldrar bent á að það geti verið bagalegt að geta ekki farið yfir próf barna sinna nema kannski í heimsókn hjá kennaranum þar sem maður lítur kannski snögglega yfir prófið.“ Meðal þess sem Inga lagði til voru einkunnir í tölustöfum og fleiri kennslustundir. mbl.is/Árni Sæberg Einkunnir í litum henta litblindum illa Þá lagði Inga til að aftur yrði byrjað að nota tölustafi við einkunnagjöf eins og í framhaldsskólum og háskólum en ekki bókstafi eða önnur form eða liti „Ég er nú ekki að gera þetta fyrir mig þó að ég sé staurlitblind og hefði aldrei séð hvaða litir væru á blaðinu. Það eru til litblindir,“ sagði Inga og tók fram að hún vissi að þetta væri umdeilt innan kennarasamfélagsins. Hún sagði hins vegar að meirihluti foreldra og samfélagsins, eða 88%, vildi sjá einkunnir í tölustafaformi og að á það þyrfti að hlusta. Vill minni nemendahópa Loks sagði Inga mikilvægt að ræða fjölda nemenda í bekkjum því að of stórir nemendahópar gerðu einstaklingamiðað nám erfitt. „Það er aukið álag, það dregur úr svigrúmi til að sinna hverju barni og þetta þarf að vera skoðað af fullri alvöru.“ Hún sagði þetta líka lið í því að skapa betra vinnuumhverfi fyrir kennara sem væri nauðsynlegt verkefni. Sjálf sagðist Inga vera búin að fá bréf frá nokkrum ungum kennurum sem væru við það að gefast upp. Í lok ræðu sinnar sagði Inga ástandið þó ekki alslæmt, víða vinna kennarar kraftaverk og almennt líður nemendum á Íslandi nokkuð vel. Þá ítrekaði hún að brestir í kerfinu væru ekki kennurum að kenna og að stjórnvöld þyrftu að axla ábyrgð. Tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Börn lýsa óöryggi og vilja læra sjálfsvörn Ofbeldið fer fram hjá fullorðnum Fjarveran áhyggjuefni Bæta nemendum ekki upp tímann þrátt fyrir skýr lög Miklu færri kennsludagar hér á landi » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » HK komið yfir í úrslitaeinvíginu „Hörmum að þetta hafi átt sér stað“ Vill smærri nemendahópa og einkunnir í tölustöfum Halla tók á móti forseta Slóveníu á Bessastöðum 36 tónleikar á þremur dögum Umræðan Sköpum borg sem virkar fyrir alla Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fær falleinkunn hjá fjármálaráði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sveitarstjórnar að ákveða um skólastarf Loftbrú breytt peninganna vegna Þríhliða samtal við vinnumarkaðinn komið af stað Kristrún staðið sig best en Inga verst Mest lesið Í gær Í vikunni Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Loftbrú breytt peninganna vegna Hitinn allt að 10 stigum Öllum ljóst að breytingarnar misheppnuðust Lætur gott af sér leiða í La Marina Mikil fólksfjölgun í Bláskógabyggð „Bæjarbíó þyrfti að brenna“ Framvísaði fölsuðu ökuskírteini frá Úkraínu Ásmundur hættur hjá Domino's Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Flugvélin „hvarf“ í fjórar mínútur Urðu að stöðva hann með öllum tiltækum ráðum Segir ekkert barn orðið fyrir ofbeldi á heimilinu Myndskeið sýnir lögreglu keyra utan í bílinn Jón Baldvin: Íslendingar þurfa hjálp Lést eftir fall í Ölfusá Framvísaði fölsuðu ökuskírteini frá Úkraínu Stórmynd í tökum hér á landi í sumar Trans fangi afplánaði með konum á Sogni Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Nýjast á mbl.is » HK komið yfir í úrslitaeinvíginu „Hörmum að þetta hafi átt sér stað“ Vill smærri nemendahópa og einkunnir í tölustöfum Halla tók á móti forseta Slóveníu á Bessastöðum 36 tónleikar á þremur dögum Umræðan Sköpum borg sem virkar fyrir alla Fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fær falleinkunn hjá fjármálaráði Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Mánaðarleg hækkun leigu gerð óheimil Fjármagnar ekki kosningaloforð Samfylkingar Urðu að stöðva hann með öllum tiltækum ráðum Myndskeið: Telja svigrúm til að lækka álögur á íbúa Mest lesið Í gær Í vikunni Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Loftbrú breytt peninganna vegna Hitinn allt að 10 stigum Öllum ljóst að breytingarnar misheppnuðust Lætur gott af sér leiða í La Marina Mikil fólksfjölgun í Bláskógabyggð „Bæjarbíó þyrfti að brenna“ Framvísaði fölsuðu ökuskírteini frá Úkraínu Ásmundur hættur hjá Domino's Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Flugvélin „hvarf“ í fjórar mínútur Urðu að stöðva hann með öllum tiltækum ráðum Segir ekkert barn orðið fyrir ofbeldi á heimilinu Myndskeið sýnir lögreglu keyra utan í bílinn Jón Baldvin: Íslendingar þurfa hjálp Lést eftir fall í Ölfusá Framvísaði fölsuðu ökuskírteini frá Úkraínu Stórmynd í tökum hér á landi í sumar Trans fangi afplánaði með konum á Sogni Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá