Innlent | mbl | 14.4.2026 | 12:14 Segir úrsögnina liggja þungt á flokknum Ragnar Þór, Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra, og Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður og fyrrverandi menntamálaráðherra. Samsett mynd/mbl.is/Anton Brink/Eggert Elínborg Una Einarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Alþingi Kristrún staðið sig best en Inga verst Krefur ráðherra svara um ESB-aðlögun „Áhugaverð skilaboð frá hinni samheldnu ríkisstjórn“ Alveg skýrt um hvað verður kosið Inga: „Mikil eftirsjá að Guðmundi Inga“ » Fleiri tengdar fréttir Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra og þingmaður Flokks fólksins, segir úrsögn Guðmundar Inga Kristinssonar úr flokknum hafa komið sér á óvart og að hún liggi þungt á flokknum. Hann segist ekki vita ástæðu úrsagnarinnar en segir hana þó ekki koma til vegna málefnalegs ágreinings. Guðmundur Ingi var þingflokksformaður Fólks flokksins frá því flokkurinn komst fyrst inn á þing árið 2018 og gegndi því starfi þar til hann varð menntamálaráðherra í upphafi árs 2025. Inga Sæland, formaður flokksins, tók við því ráðherraembætti þegar Guðmundur Ingi þurfti frá að hverfa vegna veikinda en síðan hann sneri aftur úr veikindaleyfi hefur hann setið sem óbreyttur þingmaður. Í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í gær segir Guðmundur að úrsögnin komi til vegna trúnaðarbrests „sem varðar persónuleg samskipti innan flokksins.“ Frétt af mbl.is Guðmundur Ingi segir skilið við Flokk fólksins Getur ekki svarað fyrir yfirlýsingu Guðmundar Ragnar Þór segir í samtali við mbl.is að hann hafi fyrst fengið tíðindin í gær og að þau hafi komið sér á óvart. „Það gerði það og þetta hefur legið auðvitað mjög þungt á okkur, þessi tíðindi sem okkur bárust í gær. Við hugsum bara mjög hlýtt til Guðmundar. Hann er náttúrulega bara góður vinur minn. Við erum búin að þekkjast í miklu lengri tíma heldur en vera mín í flokknum. Þannig að ég sé mikið eftir honum en hann tekur þessa ákvörðun. Ég verð auðvitað að virða hana.“ Í yfirlýsingu talar hann um trúnaðarbrest innan flokksins. Veistu í hvað hann vísar með því? „Nei, ég veit það ekki og ég get ekki svarað fyrir þá yfirlýsingu,“ segir Ragnar. Ágreiningurinn ekki af málefnalegum toga Guðmundur Ingi hefur gefið út að hann muni sitja áfram sem þingmaður Suðvesturkjördæmis utan flokka. Spurður hvort honum þætti eðlilegra að Guðmundur myndi segja af sér og gefa sæti sitt eftir til varaþingmanns flokksins segir Ragnar Þór: „Á meðan við búum við kosningafyrirkomulag eins og er núna þá er ekkert óeðlilegt að hann geri þetta með þessum hætti. Málefnalega fara hugir okkar algjörlega saman. Hann hefur lýst því yfir að hann styðji ríkisstjórnina og það skiptir auðvitað okkur mjög miklu máli að við séum saman í liði þegar kemur að málefnum og við erum það.“ Telur þú sem sagt að ágreiningurinn sem verður til þess að hann gengur úr flokknum sé ekki að neinu leyti af málefnalegum toga? „Nei, alls ekki. Hann er af einhverjum öðrum toga sem ég get ekki svarað fyrir.“ Frétt af mbl.is Kristrún: Fyrst og fremst leiðinlegt Frétt af mbl.is Inga: „Mikil eftirsjá að Guðmundi Inga“ Tengdar fréttir Alþingi Kristrún staðið sig best en Inga verst Krefur ráðherra svara um ESB-aðlögun „Áhugaverð skilaboð frá hinni samheldnu ríkisstjórn“ Alveg skýrt um hvað verður kosið Inga: „Mikil eftirsjá að Guðmundi Inga“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Starf Arteta í hættu Samfelldar upplýsingar um stöðu barna aðgengilegar Frosti Logason sameinar tvö fyrirtæki Segir úrsögnina liggja þungt á flokknum Búa sig undir tvær myrkar mínútur Umræðan Tækifærið er núna til alvöru breytinga „Þú gengur ekki svo auðveldlega út úr ESB“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Inga: „Mikil eftirsjá að Guðmundi Inga“ Kristrún staðið sig best en Inga verst Lofað upp í ermina á Alþingi Fangaverðir krefjast tafarlausra aðgerða Mest lesið Í gær Í vikunni Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Segir ekkert barn orðið fyrir ofbeldi á heimilinu Lést eftir fall í Ölfusá Stórmynd í tökum hér á landi í sumar Áhyggjur af mikilli slysahættu og skora á ríkið Hagur verkafólks að standa utan ESB Lögregla setur einstefnu á valda vegi Krefur ráðherra svara um ESB-aðlögun Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn Þjónusta milljónir manna í Kína Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Lést eftir fall í Ölfusá MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Lögregla keyrði inn í hlið bifreiðar í íbúðahverfi Dæmd eftir að grín fór úr böndunum Guðmundur Ingi segir skilið við Flokk fólksins Listi Miðflokksins ólögmætur: „Svæsin niðurstaða“ Þjóðaratkvæðagreiðsla í uppnámi Lágflugið í Eyjum: „Hún sleikir þökin á húsunum“ Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Lést eftir fall í Ölfusá Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Þekkt leikkona styður Grindavík Nýjast á mbl.is » Starf Arteta í hættu Samfelldar upplýsingar um stöðu barna aðgengilegar Frosti Logason sameinar tvö fyrirtæki Segir úrsögnina liggja þungt á flokknum Búa sig undir tvær myrkar mínútur Umræðan Tækifærið er núna til alvöru breytinga „Þú gengur ekki svo auðveldlega út úr ESB“ Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Guðmundur Ingi segir skilið við Flokk fólksins Lofað upp í ermina á Alþingi Hagur verkafólks að standa utan ESB Fangaverðir krefjast tafarlausra aðgerða Mest lesið Í gær Í vikunni Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Segir ekkert barn orðið fyrir ofbeldi á heimilinu Lést eftir fall í Ölfusá Stórmynd í tökum hér á landi í sumar Áhyggjur af mikilli slysahættu og skora á ríkið Hagur verkafólks að standa utan ESB Lögregla setur einstefnu á valda vegi Krefur ráðherra svara um ESB-aðlögun Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn Þjónusta milljónir manna í Kína Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Lést eftir fall í Ölfusá MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Segist hafa flogið með „íslenska Maverick“ Lögregla keyrði inn í hlið bifreiðar í íbúðahverfi Dæmd eftir að grín fór úr böndunum Guðmundur Ingi segir skilið við Flokk fólksins Listi Miðflokksins ólögmætur: „Svæsin niðurstaða“ Þjóðaratkvæðagreiðsla í uppnámi Lágflugið í Eyjum: „Hún sleikir þökin á húsunum“ Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Lést eftir fall í Ölfusá Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Þekkt leikkona styður Grindavík