Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Fyrrverandi samherjar Guðmundar Inga undrast brotthvarf hans

Read Full Article →

Úrsögn Guðmundar Inga Kristinssonar úr Flokki fólksins og afsögn hans sem varaformanns flokksins komu flokksbræðrum hans sem eiga sæti í ríkisstjórn mjög á óvart. Þeir segja söknuð að Guðmundi Inga en þvertaka fyrir að ágreiningur sé innan flokksins. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra sá brotthvarf Guðmundar Inga ekki fyrir. „Það er mikil eftirsjá að honum. Ég bara skil þetta ekki. Hann verður bara að útskýra þennan trúnaðarbrest. Ég veit ekki hvaða trúnaðarbrests hann er að vísa til. Hann er alltaf velkominn til og kannski hann komi til baka ef það er hægt að laga þennan trúnaðarbrest sem hann talar um.“ Eyjólfur segir ekkert ósætti innan flokksins. Eyjólfur segir óljóst hver taki við sem varaformaður flokksins. „Það hefur allavega enginn hringt í mig ennþá,“ Ráðherrar Flokks fólksins segja eftirsjá að Guðmundi Inga Kristinssyni sem gekk í gær úr flokknum. Þeir segjast ekki vita hvaða trúnaðarbrests hann vísaði til og segja að ekki sé ágreiningur í flokknum. „Ég átti ekki von á því að hann myndi fara þessa leið,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðisráðherra. „Það hafa ekki verið átök innan flokksins.“ Ragnar Þór segir ákvörðun Guðmundar Inga vera sér mikil vonbrigði. Þeir hafi lengi starfað saman og það áður en þeir urðu samþingmenn í Flokki fólksins. Hann segir þetta hafa komið sér og öðrum í þingflokknum mjög á óvart, að það sé alls ekki ósætti innan flokksins. Ragnar Þór segir að baráttumál flokksins hafi verið baráttumál Guðmundar Inga. „Hann á mikinn þátt í þeim sigrum sem við höfum náð, bæði varðandi launavísitölu, samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og þær breytingar sem voru gerðar á frítekjumörkum í desember. Þetta eru allt risastór mál sem hann á þátt í.“ Ragnar Þór segist ekki geta svarað því hver verði næsti formaður. Hann vísar á formann flokksins um næstu skref. Hann tjáir sig ekki um hvort hann sjái fyrir sér að verða varaformaður Flokks fólksins. Ráðherrar Flokks fólksins segja eftirsjá að Guðmundi Inga Kristinssyni sem gekk í gær úr flokknum. Þeir segjast ekki vita hvaða trúnaðarbrests hann vísaði til og segja að ekki sé ágreiningur í flokknum.

Share this article