Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Hiti á þingi: „Þetta er til skammar“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 18.3.2026 | 19:21 Hiti á þingi: „Þetta er til skammar“ Frá Alþingi. Mynd úr safni. mbl.is/Eyþór Setja bókamerki Tengdar fréttir Vextir á Íslandi „Við freistuðumst til að fagna of snemma“ Öll merki um að of mikið hafi verið tekið út „Þetta er alvarlegt óveðursský“ Kalla eftir þjóðarsátt til að ná niður verðbólgu „Mjög skrýtið ef við værum öll sammála“ » Fleiri tengdar fréttir Alþingi Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Hvað ef við gætum afkastað á við 4 milljónir? Fyrri umræðu um ESB-tillögu lokið Þórdís myndi vilja þétta samstarf við ESB Vill fella brott línuívilnanir og skel- og rækjubætur » Fleiri tengdar fréttir Þingmenn ríkisstjórnar og stjórnarandstöðunnar tókust á við upphaf þingfundar á Alþingi í dag undir fundarstjórn forseta. Kölluðu þar Sjálfstæðismenn eftir því að forseti Alþingis myndi ræða við ríkisstjórnina um að fresta atkvæðagreiðslu um almannatryggingamálið. Forseti Alþingis benti þingmönnum á að af fjölmörgum ræðum sem fluttar voru í fundarliðnum ættu fæstar þeirra við. Jens Garðar Helgason, þingmaður og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, hóf umræðuna og sagði í ræðu sinni að seðlabankastjóri hefði í dag varað við því að almannatryggingamálið, sem snýr að því að tengja almannabætur við launavísitölu, yrði afgreitt. Hann varaði við því og sagði að það yrði verðbólguhvetjandi og myndi „kynda verðbólgubálið.“ Bætti Jens Garðar við að þingmenn ríkisstjórnarinnar ættu að hugsa sig vel um áður en málið kæmi til atkvæðagreiðslu. „Forseti er nú reyndar að velta því fyrir sér hvernig þessi mál tengjast fundarstjórn forseta á þessum fundi. En látum þar við sitja,“ sagði Þórunn Sveinbjarnardóttir forseti Alþingis eftir að Jens Garðar lauk máli sínu. Jens Garðar Helgason, varaformaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Eggert Johannesson „Með ólíkindum ef ekki á að staldra við“ Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, tók næst til máls og beindi því til Þórunnar Sveinbjarnardóttur að spyrja ríkisstjórnina hvort hún myndi ekki vilja endurskoða, eða þó allavega hinkra með, atkvæðagreiðsluna þar sem það myndi m.a. auka verðbólguþrýsting. „Það er með ólíkindum ef ekki á að staldra við.“ „Þetta er til skammar“ Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksmaður Samfylkingarinnar, fylgdi á eftir Hildi og sagði áframhaldandi andstöðu Sjálfstæðisflokksins við að bæta almannatryggingar á Íslandi ekki koma á óvart. Þá sagði hann Jens Garðar hafa farið með rangt mál er hann vitnaði í seðlabankastjóra og að Jens hefði túlkað fyrirsögn netfréttar með vitlausum hætti. „Þetta er til skammar, háttvirtur þingmaður, og ég bið hæstvirtan forseta að stíga inn í þegar þingmenn fara svo með rangt mál undir þessum lið.“ Benti Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á í næstu ræðu að umsögn frá Seðlabankanum við frumvarpið liggi fyrir þar sem segir að verði frumvarpið samþykkt ýti það undir verðbólgu. Guðmundur Ari Sigurjónsson þingflokksformaður Samfylkingarinnar. Eggert Jóhannesson Heyrði beiðnina líka í ellefu endurtekin skipti Umræða hélt áfram þar sem þingmennirnir Njáll Trausti Friðbertsson, Jón Gunnarsson og Jón Pétur Zimsen, meðal annarra, tóku til máls. Steig svo Jens Garðar á ný í ræðustól Alþingis og biðlaði til forseta Alþingis að ræða við ríkisstjórnina um atkvæðagreiðslu varðandi almannatryggingamálið. „Forseti vill í tilefni orða þingmannsins taka fram að hún heyrði beiðnina þegar hún var fyrst flutt hér í þingsal og líka í þau ellefu skipti sem hún var endurtekin,“ svaraði Þórunn. „Heimatilbúið“ vandamál ríkisstjórnarinnar „Virðulegi forseti. Ég geri áfram athugasemdir við það að hér undir liðnum fundarstjórn forseta eru þingmenn farnir að ræða mál sem tengjast ekki fundarstjórn forseta. Hér höfum við þingmenn þurft að sitja undir því að þingmenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks ætli að útskýra fyrir okkur hversu erfitt það sé fyrir þjóðina að búa við hátt vaxtastig og verðbólguástand. Hv. þingmenn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks vil ég upplýsa um að þjóðin þekkir það mætavel, enda var verðbólga um 10% á síðasta kjörtímabili og vextir fóru langt upp – og þeir hafa nú lækkað um tæp 2%. Það er ástæðan fyrir því að þessi ríkisstjórn lækkaði halla ríkissjóðs um helming í fyrstu fjárlögum og stefnir að fyrstu hallalausu fjárlögunum í tíu ár strax á næsta ári,“ sagði Guðmundur Ari í sinni næstu ræðu og mátti þá heyra háreysti og frammíköll í þingsalnum. Tóku á eftir Guðmundi til máls þingmenn Sjálfstæðisflokksins, þau Bryndís Haraldsdóttir og Njáll Trausti, og bentu á að síðasta ríkisstjórn hefði þurft að glíma við ytri aðstæður, á borð við fall WOW air og jarðhræringar í Grindavík, sem gerðu henni erfitt fyrir efnahagslega séð. Sagði Bryndís að á meðan ytri aðstæðum væri að kenna um hátt vaxtastig á síðasta kjörtímabili væri vandamál núverandi ríkisstjórnar „heimatilbúið.“ Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Eyþór „Kemur ekki til greina“ Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, tók stuttu síðar til máls og sagði ákvörðun peningastefnunefndarinnar í morgun vera afleit tíðindi og bakslag í þróun vaxtaþróunar. Þá gæti ríkisstjórnin gert betur til að halda vaxtastigi niðri. „En ætlum við að hverfa aftur til þeirrar efnahagsstjórnar og þeirrar stefnu sem færði okkur 9,25% stýrivexti og 10% verðbólgu? Nei, það kemur ekki til greina. Það kemur ekki til greina. Eigum við að dusta rykið kannski af fjármálaáætlun fyrri ríkisstjórnar sem vildi reka ríkissjóð lengur með halla, sem ætlaði að reka ríkissjóð líka með halla árið 2028? Eigum við að dusta rykið af þeirri fjármálaáætlun og fylgja henni? Væri það gott fyrir verðbólguvæntingar og vaxtastigið í landinu? Nei, það kemur ekki til greina að við höldum okkur við planið og rétt eins og fólk getur treyst því að sólin kemur upp á morgun þá getur fólk treyst því að aðhaldsstig ríkisins muni herðast“, sagði Jóhann Páll. Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. mbl.is/Eyþór „Fæstar snúist um fundarstjórn forseta“ Á eftir honum tók til máls Þorgrímur Sigmundsson, þingmaður Miðflokksins, sem tók upp hanskann fyrir forseta Alþingis sem hafði beint því til þingmanna að gæta að því að halda sig við efni fundarstjórnar forseta. „Vissulega er oft og tíðum flókið að lesa í hvernig umræðan þróast en hér stóð hæstv. ráðherra í pontunni rétt í þessu og var ekki að fjalla um fundarstjórn forseta, fékk engar ofanígjafir. Hér verður jafnt yfir alla ganga, frú forseti.“ „Forseti vill af þessu tilefni taka fram að af þeim tuttugu og eitthvað ræðum sem hér hafa verið haldnar hafa fæstar snúist um fundarstjórn forseta,“ sagði Þórunn í sínum síðustu skilaboðum til þingmanna í fundarliðnum. Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis. mbl.is/Eggert Jóhannesson Tengdar fréttir Vextir á Íslandi „Við freistuðumst til að fagna of snemma“ Öll merki um að of mikið hafi verið tekið út „Þetta er alvarlegt óveðursský“ Kalla eftir þjóðarsátt til að ná niður verðbólgu „Mjög skrýtið ef við værum öll sammála“ » Fleiri tengdar fréttir Alþingi Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Hvað ef við gætum afkastað á við 4 milljónir? Fyrri umræðu um ESB-tillögu lokið Þórdís myndi vilja þétta samstarf við ESB Vill fella brott línuívilnanir og skel- og rækjubætur » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Enn einn skellurinn fyrir Sævar Faraldur í Bretlandi rakinn til skemmtistaðar Halda vöxtum óbreyttum Hiti á þingi: „Þetta er til skammar“ Íslendingaliðið í undanúrslit Umræðan „Skjólið“ í ESB Byggjum brýr í stað veggja Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Alvarlegir annmarkar á brunavörnum Flugskeyti hæfði íranskt kjarnorkuver Varað við snjóflóðum, krapaflóðum og grjóthruni „Ömurlegt fyrir okkur í Eflingu“ Mest lesið Í gær Í vikunni „Fundum manninn hálfsturlaðan“ „Stærsta bylting sem við höfum séð“ Stefnir í öngþveiti að óbreyttu Hefði verið hægt að fyrirbyggja mannslát Réðst á einn á Landspítala og tók af honum farsíma Gular viðvaranir á stórum hluta landsins Öll merki um að of mikið hafi verið tekið út Seðlabankinn hafi misst tökin Rannsókn lokið og ákæra gefin út í dag Ísaksskóli á leið í Kópavog Sjö handteknir vegna meiri háttar líkamsárásar Næsta gossprunga gæti legið frá Grindavík Loka einni hæð á spítalanum vegna myglu Hviður geta náð allt að 35 m/s Arndís Bára fær ár til viðbótar Ferlið geti verið neikvætt og niðurlægjandi Heilbrigðisyfirvöld taka sýni vegna dularfullrar ólyktar Ætla að læra af mistökum sínum Felldi ljón með skammbyssu á 40 metrum Skoða veggjöld á öllum leiðum frá höfuðborgarsvæðinu Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Borga ekki umferðarsektir Nýjast á mbl.is » Enn einn skellurinn fyrir Sævar Faraldur í Bretlandi rakinn til skemmtistaðar Halda vöxtum óbreyttum Hiti á þingi: „Þetta er til skammar“ Íslendingaliðið í undanúrslit Umræðan „Skjólið“ í ESB Byggjum brýr í stað veggja Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ómerkir dóm Landsréttar í nauðgunarmáli „Við freistuðumst til að fagna of snemma“ Frumvarpið hjálpar ekki til Varað við snjóflóðum, krapaflóðum og grjóthruni Mest lesið Í gær Í vikunni „Fundum manninn hálfsturlaðan“ „Stærsta bylting sem við höfum séð“ Stefnir í öngþveiti að óbreyttu Hefði verið hægt að fyrirbyggja mannslát Réðst á einn á Landspítala og tók af honum farsíma Gular viðvaranir á stórum hluta landsins Öll merki um að of mikið hafi verið tekið út Seðlabankinn hafi misst tökin Rannsókn lokið og ákæra gefin út í dag Ísaksskóli á leið í Kópavog Sjö handteknir vegna meiri háttar líkamsárásar Næsta gossprunga gæti legið frá Grindavík Loka einni hæð á spítalanum vegna myglu Hviður geta náð allt að 35 m/s Arndís Bára fær ár til viðbótar Ferlið geti verið neikvætt og niðurlægjandi Heilbrigðisyfirvöld taka sýni vegna dularfullrar ólyktar Ætla að læ

Share this article