Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Forseti Alþingis kanni möguleg umboðssvik

Read Full Article →

200 mílur | mbl | 12.3.2026 | 10:15 Forseti Alþingis kanni möguleg umboðssvik Eggert Skúlason [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Dagmál Fjarsambandið getur oft verið krefjandi 21 þúsund atkvæði í súginn „Þetta er sukk og spilling“ „Ríkisstjórnin glutraði niður tækifæri“ Segir Davíð ekki hafa notið sannmælis » Fleiri tengdar fréttir „Það er ljótt mál,“ segir Stefán Þórarinsson fiskveiðiráðgjafi um grásleppufrumvarpið sem samþykkt var á Alþingi fyrr í vikunni. Stefán er gestur Dagmála Morgunblaðsins í dag. Viðtalið við hann var tekið upp degi áður en frumvarpið var samþykkt á Alþingi. Þannig að nú er þetta frumvarp sem Stefán gagnrýnir harðlega í þættinum orðið að lögum. „Þetta er knúið áfram af tveimur einstaklingum á þingi. Lilju Rafneyju Magnúsdóttur og Sigurjóni Þórðarsyni í Flokki fólksins. Þetta er fólk sem hefur alla tíð verið á móti kvótakerfinu og fólk sem var í öðrum flokkum og var hafnað í kosningum en hefur svo dottið aftur inn á þing í gegnum þennan Flokk fólksins. Þetta fólk hefur þetta á dagskrá sinni. Sigurjón er líka að pota í Hafrannsóknastofnun og gefa í skyn að þeir viti ekkert hvað þeir eru að gera. Mér finnst svona stjórnmálamenn ekki vera farsælir fyrir þjóðina. Ég bara skil þetta ekki, skil ekki svona fólk,“ segir Stefán. En geta þessir tveir einstaklingar haft þessi miklu áhrif? „Já. Einhvern veginn stendur þetta þannig að þessu fólki hefur verið trúað fyrir þessum þætti í stjórnarsamstarfinu. Hann Sigurjón var formaður Atvinnumálanefndar og nú held ég að Lilja Rafney sé orðin það. Bæði tvö hafa líka persónulegra hagsmuna að gæta. Bæði eru tengd útgerðum smábáta. Mér sýnist þarna vera dæmi um klárlega umboðsvanda. Hún situr í stjórn félags sem heitir Sæmundur Fróði og á bát sem heitir Ingimar ÍS 650 minnir mig og er svona lítill plastbátur, kannski svona tíu metrar eða svo og ber nafn afa hennar. Ingimars Magnússonar og er líklega í eigu eiginmanns hennar. Mér sýnist þetta vera þannig tengslin. Þessi hálf kvótalausi bátur en er samt með öll veiðileyfi og er eitthvað að skakast pínulítið í strandveiðinni. Það er alveg augljóst mál að verðmæti þessa báts mun vaxa við það að hann hafi aðgang í grásleppuna líka,“ staðhæfir Stefán. Frétt af mbl.is Grásleppufrumvarpið samþykkt Þannig að þú ert að segja að hún ætti ekki að koma nálægt þessu? „Að mínu viti er það þannig. Þetta er umboðsvandi fyrir hana. Það sem með Sigurjón.“ Stefán rekur í þættinum það sem Sigurjón hefur sagt í þessu máli með sín tengsl við smábátinn Sigurlaugu SK sem nú er orðin ÓF. Stefán vitnar til ummæla Sigurjóns um að hann hafi selt meirihluta í bátnum. „Hann hefur líka verið sakaður um að þetta væri svokallaður málamyndasamningur. Það er að segja að það var farið að bera á því að menn væru að kaupa báta og gera þá út marga. Þá kom þessu regla að það þurfti að vera meirihlutaeigandi sem þurfti að vera líka um borð. Þá komu menn með þessa 51 prósent reglu og þá kom auðvitað krókur á móti bragði og menn gerðu bara þessa málamyndasamninga.“ Hann segir þetta hafa virkað þannig að gerðir voru tveir samningar. Annar var um sölu á 51 prósent í bátnum og svo var gerður annar samningur milli sömu aðila um sölu á bátnum á sama verði eftir vertíðina. Engar greiðslur voru inntar af hendi og með þessu móti var komist hjá þessari reglu. Var þetta gert svona? „Já. Já. Ég veit það. Menn hafa sagt mér það sjálfir sem hafa gert þetta. Ég þekki marga í þessari grein og ég veit það að þetta hefur verið gert.“ Til tals kom að breyta þessari reglu þannig 100 prósent eigandi þyrfti að vera um borð. Stefán segir að þá hafi allt farið á hvolf og frá því var horfið. Það hefði hins vegar verið til mikilla bóta. Varðandi Sigurjón Þórðarson segir Stefán að hann hafi séð haft eftir þeim fyrrnefnda að hann væri alveg frír þegar kæmi að þessum báti, þó svo að kona hans ætti helming í honum. Er þetta fólk sem þú ert búinn að vera að tala um Lilja Rafney og Sigurjón Þórðarson óhæft til að koma að þessari ákvörðunartöku? „Já. Ég tel vel við hæfi að forseti þingsins skoðaði þetta sem umboðsvanda eða forsætisnefndin sem á að fjalla um störf þingsins. Lilja Rafney gefur þetta upp í sínu hagsmunayfirliti. Ég skoðaði það á síðum Alþingis í gærkvöldi. Þetta er umboðsvandi klárlega.En sko umboðsvandi ef ekki er rétt að málum staðið hann getur snúist upp í umboðssvik. Það eru umboðssvik ef að fólk er að stuðla að einhverjum almennum aðgerðum sem leiða til þess að það auðgist sjálft með einhverjum hætti.“ Stefán bætir því við að í hruninu hafi bankamenn sem hlutu dóma hafi verið teknir vegna slíkra mála og dæmdir fyrir umboðsvanda og umboðssvik. Svo heldur hann áfram. „Ég hef ekkert á móti þessu fólki. Mér finnst þetta bara prýðisfólk, bæði Sigurjón og Lilja Rafney og þau standa fyrir sinn málstað og hafa sínar skoðanir sem fara ekki saman við mínar og ég virði það. Og ég virði þau fyrir það sem þau hafa gert á sínum vettvangi í gegnum tíðina en ég vil ekki að stjórnsýslan á Íslandi sé svona. Ég vil ekki að Alþingi skoði það bara ekkert, er umboðsvandi er á ferðinni?“ Rétt er að ítreka að þetta viðtal var tekið degi áður en Alþingi samþykkti svokallað Grásleppufrumvarp. Fyrsti flutningsmaður þess frumvarps var Lilja Rafney og var frumvarpið þingmannafrumvarp. Í ljósi tímasetningar mun það þó ekki koma til framkvæmda fyrr en á næstu vertíð. Viðtalið við Stefán Þórarinsson geta áskrifendur Morgunblaðsins nálgast með því að smella á hlekkinn hér að neðan. Klúðruðu gullnu tækifæri Tengdar fréttir Dagmál Fjarsambandið getur oft verið krefjandi 21 þúsund atkvæði í súginn „Þetta er sukk og spilling“ „Ríkisstjórnin glutraði niður tækifæri“ Segir Davíð ekki hafa notið sannmælis » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Mest lesið Í gær Í vikunni „Þetta er sukk og spilling“ Vertíð gæti skilað 30 milljörðum Myndir: Risalúðu landað í Reykjavík Brotalamir í stjórnun Hafrannsóknastofnunar „Komið með peninginn og ekkert röfl“ Enn vex Wisefish í Kanada Útflutningur ógnar góðu orðspori Fékk nótina í skrúfuna Farþegamiðstöðin komin með nafn „Ríkisstjórnin glutraði niður tækifæri“ Myndir: Risalúðu landað í Reykjavík Brotalamir í stjórnun Hafrannsóknastofnunar „Komið með peninginn og ekkert röfl“ Enn vex Wisefish í Kanada Helgafellið í viðgerð Útflutningur ógnar góðu orðspori „Þetta er sukk og spilling“ Útflutningsverðmæti 30 milljarðar í febrúar Fékk nótina í skrúfuna Rúm sex þúsund tonn af hrognaloðnu Fisk rekur á land á Stokkseyri Farþegamiðstöðin komin með nafn Myndir: Risalúðu landað í Reykjavík Fékk nótina í skrúfuna Helgafellið vélarvana og dregið til hafnar Brotalamir í stjórnun Hafrannsóknastofnunar Verðmætur túr hjá Sólbergi „Það er fiskur úti um allt núna“ „Ríkisstjórnin glutraði niður tækifæri“ Myndir: Loðnuveiðar við Snæfellsnes Fleira áhugavert „Ósatt, bara lygar“ Dómar Landsréttar í hryðjuverkamálinu ómerktir „Hefði verið fínt að ljúka þessu máli“ Verulegir annmarkar á dómi Landsréttar Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 11.3.26 699,35 kr/kg Þorskur, slægður 11.3.26 719,20 kr/kg Ýsa, óslægð 11.3.26 380,89 kr/kg Ýsa, slægð 11.3.26 427,94 kr/kg Ufsi, óslægður 11.3.26 369,70 kr/kg Ufsi, slægður 11.3.26 463,13 kr/kg Undirmálsufsi, óslægður 13.2.26 214,00 kr/kg Djúpkarfi 11.3.26 317,00 kr/kg Gullkarfi 11.3.26 351,05 kr/kg Litli karfi 17.2.26 25,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 11.3.26 Hafnarey SU 706 Línutrekt Þorskur 13.160 kg Ýsa 1.284 kg Langa 61 kg Steinbítur 54 kg Keila 48 kg Hlýri 4 kg Samtals 14.611 kg 11.3.26 Þrasi VE 20 Handfæri Þorskur 1.354 kg Ufsi 509 kg Ýsa 16 kg Samtals 1.879 kg 11.3.26 Sædís AK 121 Handfæri Þorskur 2.819 kg Samtals 2.819 kg 11.3.26 Adda VE 282 Línutrekt Langa 1.289 kg Ýsa 678 kg Þorskur 532 kg Steinbítur 162 kg Keila 140 kg Samtals 2.801 kg Skoða allar landanir » Mest lesið Í gær Í vikunni „Þetta er sukk og spilling“ Vertíð gæti skilað 30 milljörðum Myndir: Risalúðu landað í Reykjavík Brotalamir í stjórnun Hafrannsóknastofnunar „Komið með peninginn og ekkert röfl“ Enn vex Wisefish í Kanada Útflutningur ógnar góðu orðspori Fékk nótina í skrúfuna Farþegamiðstöðin komin með nafn „Ríkisstjórnin glutraði niður tækifæri“ Myndir: Risalúðu landað í Reykjavík Brotalamir í stjórnun Hafrannsóknastofnunar „Komið með peninginn og ekkert röfl“ Enn vex Wisefish í Kanada Helgafellið í viðgerð Útflutningur ógnar góðu orðspori „Þetta er sukk og spilling“ Útflutningsverðmæti 30 milljarðar í febrúar Fékk nótina í skrúfuna Rúm sex þúsund tonn af hrognaloðnu Fisk rekur á land á Stokkseyri Farþegamiðstöðin komin með nafn Myndir: Risalúðu landað í Reykjavík Fékk nótina í skrúfuna Helgafellið vélarvana og dregið til hafnar Brotalamir í stjórnun Hafrannsóknastofnunar Verðmætur túr hjá Sólbergi „Það er fiskur úti um allt núna“ „Ríkisstjórnin glutraði niður tækifæri“ Myndir: Loðnuveiðar við Snæfellsnes Fleira áhugavert Segja víðtækar árásir hafnar Ferðamenn lentu á kafi í vatni Mál tveggja fjölskyldna í Íran í vinnslu Edition-málið aftur til saksóknara á næstu dögum Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 11.3.26 699,35 kr/kg Þorskur, slægður 11.3.26 719,20 kr/kg Ýsa, óslægð 11.3.26 380,89 kr/kg Ýsa, slægð 11.3.26 427,94 kr/kg Ufsi, óslægður 11.3.26 369,70 kr/kg Ufsi, slægður 11.3.26 463,13 kr/kg Undirmálsufsi, óslægður 13.2.26 214,00 kr/kg Djúpkarfi 11.3.26 317,00 kr/kg Gullkarfi 11.3.26 351,05 kr/kg Litli karfi 17.2.26 25,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 11.3.26 Hafnarey SU 706 Línutrekt Þorskur 13.160 kg Ýsa 1.284 kg Langa 61 kg Steinbítur 54 kg Keila 48 kg Hlýri 4 kg Samtals 14.611 kg 11.3.26 Þrasi VE 20 Handfæri Þorskur 1.354 kg Ufsi 509 kg Ýsa 16 kg Samtals 1.879 kg 11.3.26 Sædís AK 121 Handfæri Þorskur 2.819 kg Samtals 2.819 kg 11.3.26 Adda VE 282 Línutrekt Langa 1.289 kg Ýsa 678 kg Þorskur 532 kg Steinbítur 162 kg Keila 140 kg Samtals 2.801 kg Skoða allar landanir »

Share this article