- What: Political commentary
- Impact: No direct security impact
200 mílur | mbl | 7.3.2026 | 10:28 | Uppfært 10:46 „Ríkisstjórnin glutraði niður tækifæri“ Eggert Skúlason [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Dagmál Segir Davíð ekki hafa notið sannmælis „Svo var mér sagt upp í gegnum símann“ „Ég var bara að mæta í partí“ Ég hefði aldrei valið hana aftur í landsliðið Þurftu að bíða eftir þunnum landsliðskonum » Fleiri tengdar fréttir „Mér fannst hreinlega klaufalega að þessu staðið. Þessu var bara skellt á borðið og sagt. Þið malið gull og komið með peninginn og ekkert röfl. Ég hugsaði með mér, óskaplega er þetta óheppilegt. Þetta minnti mig á til sveita í gamla daga þegar tamningamenn byrjuðu á því að berja klárinn áður en þeir fóru að temja hann. Svo auðvitað gerðu þeir aldrei almennilegan hest, eftir að þeir gerðu þetta,“ segir Stefán Þórarinsson, alþjóðlegur fiskveiðiráðgjafi um hvernig ríkisstjórnin fór að því að gera breytingu á lögum um sjávarútveg sem sneri að veiðigjaldi. Stefán er gestur Dagmála Morgunblaðsins í dag og ræðir þar ýmis hitamál er brenna á sjávarútvegi. Stefán var í viðtali í sama þætti fyrir tæplega ári þar sem hann varaði sterklega við því að menn tækju ekki peningaprentvélina úr sambandi og vísaði þá til sjávarútvegsins. Nú er Stefán mættur á nýjan leik til að ræða hvernig að málum var staðið. Hann segir að það hafi hvorki verið óraunhæft eða ósanngjarnt markmið að setja þá kröfu á sjávarútvegsfyrirtæki að auka framlög til sjávarútvegs. Aðferðin hafi hins vegar verið klaufalega. „Mér finnst ríkisstjórnin hafa glutrað niður alveg stórkostlegu tækifæri til þess að segja, nú skulum við setjast hérna niður, greinin og við. Við viljum fá meiri peninga og meiri framlög frá ykkur til samfélagsins. Hvernig gerum við það? Hvernig vinnum við úr því skynsamlega? Það voru svo margir leikir í stöðunni,“ segir Stefán og vitnar meðal annars til þess að í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar var rætt um að auka gagnsæi og tryggja betri sýn á hverjir væru tengdir aðilar. Hann heldur áfram. „Þarna var hægt að pakka þessu öllu saman í einn pakka og auðvitað hefði líka þurft að hjálpa sjávarútveginum að ráða við að skapa meiri auð úr auðlindinni. Við verðum líka að skilja að hærri krafa um framlög er líka krafa um hagræðingu. Hún er líka krafa um samþjöppun. Það bara þýðir ekkert að horfa framhjá því. Það er raunverulega þannig. Það er ekkert hægt að segja þið takið bara af arðgreiðslunum en allt annað óbreytt. Nei. Það er bara alls ekki þannig. Það er enginn í bisness með það að markmiði að allt sé óbreytt en hann fái ekki neitt út úr því.“ Stefán segir að það hefði verið mjög skynsamlegt að horfa til þess að þjappa fyrirtækjum í greininni meira saman og opna á slíka möguleika á borð við það að rýmka kvótaþakið. Af því hefði orðið hagræðing. Hann nefnir líka að til að auka gagnsæi væri langbest að sem flest þeirra yrðu skráð í kauphöll. „Gagnsæi kemur ekki út úr einhverjum stofnunum. Best er að þessi fyrirtæki, þessi stóru og helst sem flest séu í Kauphöllinni, séu á markaði. Og það vinnst með því að þar verður gegnsæið miklu betra en heldur en einhver stofnun getur gert." Að sama skapi segir hann að þá fæst líka dreifðari eignaraðild á þessum fyrirtækjum, hvort sem það eru lífeyrissjóðir eða einstaklingar sem geti þá fjárfest í greininni í gegnum markaðinn. Ef við horfum til lengri tíma hvernig líst þér á þetta? Stefán segir eðlilegt að gripið hafi verið til samdráttar. Hann bendir á að menn geti ekki hækkað verð. Það séu kaupendur á hinum alþjóðlega markaði sem stjórni því. Að sama skapi sé það okkar lán að verð á okkar aðaltegundum eins og þorskinum sé í hæstu hæðum. Það megi rekja til þess að þorskkvótar í Norður Atlantshafi séu almennt litlir og framboðið því lítið. Það mun breytast segir hann. Annað hvort fellur verðið eða kaupendur finna aðrar og ódýrari tegundir á borð við lýsing sem þeir geti notað í stað þorsk. Hann bendir á að flestir rekstrarþættir séu niðurnjörvaðir. Menn geta ekki minnkað frystihúsin. Togaraflotinn sé lítill og ekki gerlegt að selja skip. „Hvar á þrýstingurinn að koma út? Jú. Það er á launum fólksins í fiskvinnslunni. Það er á launum sjómanna. Það eru helstu leiðirnar. Þú ræður ekki við olíuverðið. Það verður að skoða þetta í samhengi. Þetta er mjög flókið mál,“ segir Stefán í viðtalinu. Fjölmörg önnur atriði ber á góma en áskrifendur Morgunblaðsins geta horft á viðtalið í heild sinni með því að smella á hlekkinn hér að neðan. Tengdar fréttir Dagmál Segir Davíð ekki hafa notið sannmælis „Svo var mér sagt upp í gegnum símann“ „Ég var bara að mæta í partí“ Ég hefði aldrei valið hana aftur í landsliðið Þurftu að bíða eftir þunnum landsliðskonum » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Mest lesið Í gær Í vikunni „Það er fiskur úti um allt núna“ Verðmætur túr hjá Sólbergi Biðstaða í loðnuveiðunum og bræluspá fram undan Methiti mældist í sjó við Ísland Helgafellið vélarvana og dregið til hafnar Myndir: Loðnuveiðar við Snæfellsnes Tífalt dýrari en lax Ríkar kröfur um varfærna stjórnun Lönduðu fullfermi í Hafnarfirði Ekki vaxið jafn mikið og erlendis Verðmætur túr hjá Sólbergi „Það er fiskur úti um allt núna“ Biðstaða í loðnuveiðunum og bræluspá fram undan Methiti mældist í sjó við Ísland Myndir: Loðnuveiðar við Snæfellsnes Helgafellið vélarvana og dregið til hafnar Tífalt dýrari en lax Ríkar kröfur um varfærna stjórnun Grásleppufrumvarpið samþykkt Ómerkir dóm Landsréttar í máli sjómanns sem lést Tífalt dýrari en lax Helgafellið vélarvana og dregið til hafnar Verðmætur túr hjá Sólbergi Myndir: Loðnuveiðar við Snæfellsnes Ómerkir dóm Landsréttar í máli sjómanns sem lést Síðasti Japanstogarinn brátt falur Lönduðu fullfermi í Hafnarfirði Stefna á 1.000 tonna abalónuframleiðslu „Það er fiskur úti um allt núna“ Segir komið til móts við áhyggjur yfir frumvarpi Fleira áhugavert Einn dalur verðmætari en hundrað Borgin kreistir markaðinn Beint: Sprengt víða við Persaflóa Boða þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 6.3.26 626,73 kr/kg Þorskur, slægður 6.3.26 666,66 kr/kg Ýsa, óslægð 6.3.26 409,45 kr/kg Ýsa, slægð 6.3.26 264,36 kr/kg Ufsi, óslægður 6.3.26 262,60 kr/kg Ufsi, slægður 6.3.26 247,84 kr/kg Undirmálsufsi, óslægður 13.2.26 214,00 kr/kg Djúpkarfi 6.3.26 238,00 kr/kg Gullkarfi 6.3.26 236,04 kr/kg Litli karfi 17.2.26 25,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 6.3.26 Fanney EA 48 Línutrekt Þorskur 5.659 kg Ýsa 710 kg Hlýri 185 kg Steinbítur 68 kg Karfi 24 kg Samtals 6.646 kg 6.3.26 Fjóla SH 7 Plógur Ígulker Hvf C 1.040 kg Samtals 1.040 kg 6.3.26 Hafey SK 10 Grásleppunet Grásleppa 407 kg Þorskur 111 kg Samtals 518 kg 6.3.26 Ágústa EA 16 Þorskfisknet Ufsi 942 kg Þorskur 157 kg Samtals 1.099 kg Skoða allar landanir » Mest lesið Í gær Í vikunni „Það er fiskur úti um allt núna“ Verðmætur túr hjá Sólbergi Biðstaða í loðnuveiðunum og bræluspá fram undan Methiti mældist í sjó við Ísland Helgafellið vélarvana og dregið til hafnar Myndir: Loðnuveiðar við Snæfellsnes Tífalt dýrari en lax Ríkar kröfur um varfærna stjórnun Lönduðu fullfermi í Hafnarfirði Ekki vaxið jafn mikið og erlendis Verðmætur túr hjá Sólbergi „Það er fiskur úti um allt núna“ Biðstaða í loðnuveiðunum og bræluspá fram undan Methiti mældist í sjó við Ísland Myndir: Loðnuveiðar við Snæfellsnes Helgafellið vélarvana og dregið til hafnar Tífalt dýrari en lax Ríkar kröfur um varfærna stjórnun Grásleppufrumvarpið samþykkt Ómerkir dóm Landsréttar í máli sjómanns sem lést Tífalt dýrari en lax Helgafellið vélarvana og dregið til hafnar Verðmætur túr hjá Sólbergi Myndir: Loðnuveiðar við Snæfellsnes Ómerkir dóm Landsréttar í máli sjómanns sem lést Síðasti Japanstogarinn brátt falur Lönduðu fullfermi í Hafnarfirði Stefna á 1.000 tonna abalónuframleiðslu „Það er fiskur úti um allt núna“ Segir komið til móts við áhyggjur yfir frumvarpi Fleira áhugavert Stærsti vopnaframleiðandinn fjórfaldar framleiðslu Flugmóðurskip Írana í ljósum logum Lúðvík orðinn 108 ára í mannsárum Lýsa eftir Marijus: Handtökuskipun í gildi Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 6.3.26 626,73 kr/kg Þorskur, slægður 6.3.26 666,66 kr/kg Ýsa, óslægð 6.3.26 409,45 kr/kg Ýsa, slægð 6.3.26 264,36 kr/kg Ufsi, óslægður 6.3.26 262,60 kr/kg Ufsi, slægður 6.3.26 247,84 kr/kg Undirmálsufsi, óslægður 13.2.26 214,00 kr/kg Djúpkarfi 6.3.26 238,00 kr/kg Gullkarfi 6.3.26 236,04 kr/kg Litli karfi 17.2.26 25,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 6.3.26 Fanney EA 48 Línutrekt Þorskur 5.659 kg Ýsa 710 kg Hlýri 185 kg Steinbítur 68 kg Karfi 24 kg Samtals 6.646 kg 6.3.26 Fjóla SH 7 Plógur Ígulker Hvf C 1.040 kg Samtals 1.040 kg 6.3.26 Hafey SK 10 Grásleppunet Grásleppa 407 kg Þorskur 111 kg Samtals 518 kg 6.3.26 Ágústa EA 16 Þorskfisknet Ufsi 942 kg Þorskur 157 kg Samtals 1.099 kg Skoða allar landanir »