Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Ríkisstjórn sem krítar út fyrir línurnar

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 26.3.2026 | 20:15 Ríkisstjórn sem krítar út fyrir línurnar Andrea Sigurðardóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Alþingi Daði Már fékk áfall yfir morgunkaffinu Geta ekki sagt „full og varanleg“ Þingfundi frestað vegna veðurs Boðar tillögu um sjálfakandi bíla „Nú á Evrópusambandið að bjarga okkur“ » Fleiri tengdar fréttir Dagmál Geta ekki sagt „full og varanleg“ Grét í koddann og fékk sér rauðvínsglas til að róa taugarnar Fanndís sendi Tolla Morthens aftur út í bíl „Ef ég sé þig aldrei aftur þá elska ég þig“ „Bara einhver delluskýring“ » Fleiri tengdar fréttir Áhugavert verður ef á nýtt lagaákvæði um tengingu bóta almannatrygginga við launavísitölu reynir fyrir dómstólum þegar fram líða stundir, vegna þeirra tveggja ólíku túlkana stjórnarliða á ákvæðinu sem fram komu undir atkvæðagreiðslu í þinginu, segja Hildur Sverrisdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokks og Bergþór Ólason þingmaður Miðflokks í þætti Dagmála í dag. Um blekkingar sé að ræða en óljóst þykir þeim hvort þær snúi að bótaþegum eða hvort Viðreisn og Samfylkingin hafi leikið á Flokk fólksins. Þandar taugar á þingi og skófar á afturenda forseta Hildur segir það valda sér vonbrigðum hvernig stjórnarmeirihlutinn leyfi sér að kríta út fyrir línu í því sem er satt og rétt í málum. „Í því stjórnarsamstarfi sem ég var partur af leyfði fólk sér ekki að segja ekki satt eða að kríta út fyrir línurnar. Það var allavega mín upplifun. Bergþór hefur kannski betri samanburð þar en ég. En fyrir mér er þetta enn eitt dæmið af nokkrum, því miður, þar sem kynningarstarfsemin í kringum málin er oft veigameiri og sett meira púður í hana af hálfu stjórnarmeirihlutans heldur en að vinna málin eða að segja satt og rétt frá eða hlusta á athugasemdir og reyna að vinna þetta vel.“ Hildur talar í þessum efnum um frasavæðingu stjórnmálanna. „Við þekkjum alla þessa frasa og þau hljóta að fara að horfast í augu við að margir þeirra voru ekki skynsamlegir svona þegar leið á. En það tekur kannski steininn úr þegar það er tvenns konar kynningarstarfsemi um eitt og sama málið af hálfu sama ríkisstjórnarmeirihlutans,“ segir hún og vísar þar til tengingar bóta almannatrygginga við launavísitöluna. Frétt af mbl.is Deildar meiningar um ný lög Hildur segist vera orðin hálfsamdauna því að ráðherra eins og Inga Sæland leyfi sér að segja gagnrýni aðeins koma frá einhverjum silkihúfum og fólki sem ekki vilji hjálpa öðrum. „Gagnrýnin okkar var öðrum þræði sú að hér væri verið að plata þá sem minnst mega sín, hér væri ekki verið að segja satt og rétt frá. Ef þær ganga eftir, þær áhyggjuraddir sem hafa verið varðandi frumvarpið, þá eru það einmitt þeir sem minnst mega sín sem munu bera mest skertan hlut frá borði þess efnis. Við erum vön þessari umræðu en það var svolítið nýtt að þau leyfðu sér í sömu atkvæðagreiðslunni, í pontu Alþingis sem er lögskýringargagn, að halda fram sitthvorri túlkuninni,“ segir Hildur. Nánast saknar fyrri stjórnar Bergþór tekur undir með Hildi í þessum efnum. Hvað samanburð á núverandi ríkisstjórn og fyrri ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Vinstri grænna varðar, segir hann að til sanns vegar megi færa að hann hafi verið á köflum dálítið gagnrýninn á fyrri ríkisstjórn. „En enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Það var þó þannig að ráðherrar leituðust við að svara fyrirspurnum í fyrirspurnatímum. Þetta voru ekki allt saman tómir útúrsnúningar dagana langa. Það var hægt að fara í efnislega umræðu um mál þótt menn væru ósammála um það. Núna forðast þeir sem bera málin fram að ræða þau. Og hvað flókin mál varðar, þá mæta þingmenn stjórnarflokkanna helst ekki í ræðu til þess að lenda ekki í andsvörum. Þetta er alveg nýtt,“ segir Bergþór. Ertu farinn að sakna ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur? „Ekki orðið þetta svona, ég á nú erfitt með að höndla það, en því miður þá gat þetta færst til verri vegar og það þó nokkuð,“ segir Bergþór. „Gallinn er að bæði inni í nefndum og síðan í einhverju oflæti gagnvart umræðu í þingsal þá er skilið eftir, meðvitað, býsna margt sem í rauninni verður ekki annað en dómstóla að kveða úr um í ljósi þess að umræða var ekki kláruð og mál ekki hugsuð til enda.“ Morgunblaðið/María Matthíasdóttir Tengdar fréttir Alþingi Daði Már fékk áfall yfir morgunkaffinu Geta ekki sagt „full og varanleg“ Þingfundi frestað vegna veðurs Boðar tillögu um sjálfakandi bíla „Nú á Evrópusambandið að bjarga okkur“ » Fleiri tengdar fréttir Dagmál Geta ekki sagt „full og varanleg“ Grét í koddann og fékk sér rauðvínsglas til að róa taugarnar Fanndís sendi Tolla Morthens aftur út í bíl „Ef ég sé þig aldrei aftur þá elska ég þig“ „Bara einhver delluskýring“ » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Bubbi spáir hruni Spotify Beint: Lærisveinar Heimis leiða í Tékklandi Ríkisstjórn sem krítar út fyrir línurnar Útiloka trans konur frá þátttöku Hótelið neitar aðild að atvikinu Umræðan Seinkum upphafi skóladags Þegar sérlausnir verða að sögusögnum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ „Þetta er orðið algjörlega sturlað“ Verðbólgan eykst og mælist nú 5,4% Reykjanesbrautin er lokuð Mest lesið Í gær Í vikunni Fylgstu með lægðinni ganga yfir Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Daði Már fékk uppsagnarbréf Spár að ganga eftir: Fólk haldi sig heima Stangast á við heimildarmenn Daði Már fékk áfall yfir morgunkaffinu „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ „Augljóst að fólk hafi farið að tilmælum lögreglunnar“ Snúa fólki við á Reykjanesbrautinni Á hjóli í appelsínugulri viðvörun Hamas-liðar á Höfðatorgi Appelsínugular viðvaranir: Stormur og stórhríð Múslimar annast sauðfjárslátrun í sláturhúsum Vonar að Landhelgisgæslan sé klár með skip Fylgstu með lægðinni ganga yfir Frysta þarf öll laun í landinu Andlát: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Leysa páskaeggjavanda spítalans Varari um sig og óttast um öryggi sitt Ekkert barn á nýju heimili: Tókst að strjúka Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Nýjast á mbl.is » Bubbi spáir hruni Spotify Beint: Lærisveinar Heimis leiða í Tékklandi Ríkisstjórn sem krítar út fyrir línurnar Útiloka trans konur frá þátttöku Hótelið neitar aðild að atvikinu Umræðan Seinkum upphafi skóladags Þegar sérlausnir verða að sögusögnum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn „Þetta er orðið algjörlega sturlað“ Daði Már fékk áfall yfir morgunkaffinu „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ Mest lesið Í gær Í vikunni Fylgstu með lægðinni ganga yfir Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Daði Már fékk uppsagnarbréf Spár að ganga eftir: Fólk haldi sig heima Stangast á við heimildarmenn Daði Már fékk áfall yfir morgunkaffinu „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ „Augljóst að fólk hafi farið að tilmælum lögreglunnar“ Snúa fólki við á Reykjanesbrautinni Á hjóli í appelsínugulri viðvörun Hamas-liðar á Höfðatorgi Appelsínugular viðvaranir: Stormur og stórhríð Múslimar annast sauðfjárslátrun í sláturhúsum Vonar að Landhelgisgæslan sé klár með skip Fylgstu með lægðinni ganga yfir Frysta þarf öll laun í landinu Andlát: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Leysa páskaeggjavanda spítalans Varari um sig og óttast um öryggi sitt Ekkert barn á nýju heimili: Tókst að strjúka Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“

Share this article