Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Mótmæla frumvarpinu harðlega

Read Full Article →

200 mílur | Morgunblaðið | 19.3.2026 | 9:02 Mótmæla frumvarpinu harðlega Kjartan Páll Sveinsson segir óskynsamlegt að taka örfá tonn af næstminnstu útgerðunum til að láta í minnstu útgerðirnar. mbl.is/Karítas Fjóla K. Guðmundsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Fiskveiðistjórnunin Kallar eftir vinnsluskyldu á allan afla Sjávarútvegur ítrekað komið þjóðinni til bjargar Ísland í fremstu röð í sjálfbærri nýtingu Kallar eftir vistkerfisnálgun Áform ríkisstjórnar ógni kjarasamningum » Fleiri tengdar fréttir Formaður Landssambands smábátaeigenda (LS) telur engar skýrar ástæður liggja að baki því að afnema línuívilnun og segir það munu hafa alvarleg áhrif á landsbyggðina. Enn fremur segir hann óljóst hvaða áhrif tímabundin jöfnunarheimild muni hafa fyrir strandveiðar. Lengi hefur það legið í loftinu að mikil uppstokkun liggi fyrir dyrum í byggðakerfinu svokallaða og hefur mönnum orðið tíðrætt um að stjórnvöld hyggist bólstra strandveiðarnar á kostnað línuívilnunar. Fyrirætlanir Eyjólfs Ármannssonar innviðaráðherra lágu ljósar fyrir þegar hann lagði í gær fram frumvarp sitt til breytinga á lögum um stjórn fiskveiða þar sem fyrirhugað er að leggja niður línuívilnanir og skel- og rækjubætur. Frétt af mbl.is Vill fella brott línuívilnanir og skel- og rækjubætur Bjargar litlu fyrir strandveiðar Aðspurður segist Kjartan Páll Sveinsson formaður LS ekki sjá nein skýr rök fyrir því að leggja línuívilnun niður. „Það eina sem mun gerast er að mikilvæg störf, heilsársstörf í brothættum byggðum, munu leggjast af. Við sjáum engan tilgang í að leggja niður línuívilnunina og við mótmælum því harðlega,“ segir Kjartan í samtali við Morgunblaðið. „Sú hugmynd að taka þessi örfáu tonn af næstminnstu útgerðunum til að láta í minnstu útgerðirnar, það hugnast okkur alls ekki og ég held að strandveiðiflotinn yfirhöfuð vilji það ekki.“ Kjartan segir að ef innviðaráðherra sjái raunverulegar brotalamir í kerfinu hvetji hann ráðherra til að koma til samráðs við sambandið og smábátaeigendur til að leita lausna. Eins og staðan sé nú muni áform ráðherra litlu bjarga fyrir strandveiðar. „Ég held að strandveiðiflotinn yfirhöfuð vilji þetta ekki,“ segir formaður Landssambands smábátaeigenda. mbl.is/Eggert Jóhannesson „Þetta eru 400 tonn af þorski sem eru eftir og svo má ekki gleyma því að það eru allar hinar tegundirnar í línuívilnun líka en það er bara þorskurinn sem myndi fara yfir á strandveiðar,“ segir Kjartan. „En hann er að stinga upp á því að leggja þetta allt niður, keilu og ýsu og steinbít og allt. Okkur finnst það mjög varhugavert.“ Selja þessi fáu tonn og hætta Ákvörðun ráðherra segir Kjartan að beri keim af skoðunum sem áður hafi verið viðraðar, meðal annars í skýrslu frá 2023, og lúta að því að byggðakerfið sé barn síns tíma. Það vill hann hins vegar meina að séu ekki nægilega sterk rök. „Þessi hugmynd fór á flug, að það ætti bara að leggja niður félagslega kerfið og færa það inn í kvótakerfið,“ segir Kjartan. „Það var alveg ljóst í skýrslunni, Auðlindinni okkar, að það að leggja niður línuívilnun væri fyrsta skrefið í þeirri vegferð og ég hef áhyggjur af því.“ Áhyggjur Kjartans snúa ekki síst að stöðu smærri útgerða víðs vegar um landið sem reiða sig á línuívilnun til að viðhalda rekstri. „Það eina sem þeir geta gert ef línuívilnun er tekin af er að selja þessi fáu tonn sem þeir eiga og bara hætta þessu,“ bætir Kjartan við. „Þetta mun leiða til enn meiri samþjöppunar innan krókaaflamarkskerfisins og það er þróun sem hefur ekki skilað góðum árangri.“ Frétt af mbl.is Enn eitt högg fyrir litlar byggðir Í frumvarpinu er einnig kveðið á um tímabundna jöfnunarheimild vegna viðbótaraflamagns strandveiða á yfirstandandi fiskveiðiári. Aðspurður segist Kjartan vilja fá nánari innsýn í fyrirætlanir ráðherra hvað það varðar en telur það í fljótu bragði vera ónauðsynlegt. „Þetta hefur ekki verið kynnt fyrir okkur enn þá en út frá okkar útreikningum eru einhverjar svona flóknar æfingar óþarfar,“ segir Kjartan að endingu. „Það svigrúm sem við höfum hingað til búið við dugar.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Fiskveiðistjórnunin Kallar eftir vinnsluskyldu á allan afla Sjávarútvegur ítrekað komið þjóðinni til bjargar Ísland í fremstu röð í sjálfbærri nýtingu Kallar eftir vistkerfisnálgun Áform ríkisstjórnar ógni kjarasamningum » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Mest lesið Í gær Í vikunni Kaflaskil hjá Síldarvinnslunni Verður högg fyrir mörg sjávarpláss Enn eitt högg fyrir litlar byggðir Gæti orðið reiðarslag fyrir bæjarfélagið Unnið úr síðustu loðnuförmunum 25 manns sagt upp í fiskvinnslu Vill fella brott línuívilnanir og skel- og rækjubætur „Þetta er sukk og spilling“ Fá IceFish-styrk til náms í sjávarútvegi Þyrlan kölluð til vegna slasaðs skipverja Verður högg fyrir mörg sjávarpláss Kaflaskil hjá Síldarvinnslunni Enn eitt högg fyrir litlar byggðir Gæti orðið reiðarslag fyrir bæjarfélagið Unnið úr síðustu loðnuförmunum „Þetta er sukk og spilling“ 25 manns sagt upp í fiskvinnslu Vill fella brott línuívilnanir og skel- og rækjubætur Vantaði vettvang fyrir sérfræðinga Fá IceFish-styrk til náms í sjávarútvegi Gæti orðið reiðarslag fyrir bæjarfélagið 25 manns sagt upp í fiskvinnslu Enn eitt högg fyrir litlar byggðir Þyrlan kölluð til vegna slasaðs skipverja Hulda tekur við nýrri deild Eimskips Gagnrýnir framkvæmd úttektar Verður högg fyrir mörg sjávarpláss „Þetta er sukk og spilling“ Vill fella brott línuívilnanir og skel- og rækjubætur Kaflaskil hjá Síldarvinnslunni Fleira áhugavert Peningastefnunefnd skipt um gír Flugskeyti hæfði íranskt kjarnorkuver Hvað fór úrskeiðis á Stuðlum? Holtavörðu- og Öxnadalsheiði lokaðar Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 18.3.26 701,17 kr/kg Þorskur, slægður 18.3.26 874,08 kr/kg Ýsa, óslægð 18.3.26 474,27 kr/kg Ýsa, slægð 18.3.26 479,95 kr/kg Ufsi, óslægður 18.3.26 346,92 kr/kg Ufsi, slægður 18.3.26 423,18 kr/kg Undirmálsufsi, óslægður 13.2.26 214,00 kr/kg Djúpkarfi 16.3.26 245,00 kr/kg Gullkarfi 18.3.26 329,69 kr/kg Litli karfi 17.2.26 25,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 19.3.26 Sunnutindur SU 95 Línutrekt Þorskur 8.265 kg Samtals 8.265 kg 18.3.26 Einar Guðnason ÍS 303 Lína Steinbítur 10.405 kg Þorskur 5.377 kg Ýsa 1.010 kg Skarkoli 93 kg Samtals 16.885 kg 18.3.26 Hafborg EA 152 Dragnót Þorskur 8.437 kg Karfi 146 kg Steinbítur 77 kg Grásleppa 47 kg Langlúra 45 kg Hlýri 24 kg Þykkvalúra 14 kg Samtals 8.790 kg Skoða allar landanir » Mest lesið Í gær Í vikunni Kaflaskil hjá Síldarvinnslunni Verður högg fyrir mörg sjávarpláss Enn eitt högg fyrir litlar byggðir Gæti orðið reiðarslag fyrir bæjarfélagið Unnið úr síðustu loðnuförmunum 25 manns sagt upp í fiskvinnslu Vill fella brott línuívilnanir og skel- og rækjubætur „Þetta er sukk og spilling“ Fá IceFish-styrk til náms í sjávarútvegi Þyrlan kölluð til vegna slasaðs skipverja Verður högg fyrir mörg sjávarpláss Kaflaskil hjá Síldarvinnslunni Enn eitt högg fyrir litlar byggðir Gæti orðið reiðarslag fyrir bæjarfélagið Unnið úr síðustu loðnuförmunum „Þetta er sukk og spilling“ 25 manns sagt upp í fiskvinnslu Vill fella brott línuívilnanir og skel- og rækjubætur Vantaði vettvang fyrir sérfræðinga Fá IceFish-styrk til náms í sjávarútvegi Gæti orðið reiðarslag fyrir bæjarfélagið 25 manns sagt upp í fiskvinnslu Enn eitt högg fyrir litlar byggðir Þyrlan kölluð til vegna slasaðs skipverja Hulda tekur við nýrri deild Eimskips Gagnrýnir framkvæmd úttektar Verður högg fyrir mörg sjávarpláss „Þetta er sukk og spilling“ Vill fella brott línuívilnanir og skel- og rækjubætur Kaflaskil hjá Síldarvinnslunni Fleira áhugavert Staðan erfið og aðgerða þörf Ómerkir dóm Landsréttar í nauðgunarmáli Leyfi fyrir Hvammsvirkjun samþykkt Líklegt að stýrivextir verði hækkaðir frekar í maí Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 18.3.26 701,17 kr/kg Þorskur, slægður 18.3.26 874,08 kr/kg Ýsa, óslægð 18.3.26 474,27 kr/kg Ýsa, slægð 18.3.26 479,95 kr/kg Ufsi, óslægður 18.3.26 346,92 kr/kg Ufsi, slægður 18.3.26 423,18 kr/kg Undirmálsufsi, óslægður 13.2.26 214,00 kr/kg Djúpkarfi 16.3.26 245,00 kr/kg Gullkarfi 18.3.26 329,69 kr/kg Litli karfi 17.2.26 25,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 19.3.26 Sunnutindur SU 95 Línutrekt Þorskur 8.265 kg Samtals 8.265 kg 18.3.26 Einar Guðnason ÍS 303 Lína Steinbítur 10.405 kg Þorskur 5.377 kg Ýsa 1.010 kg Skarkoli 93 kg Samtals 16.885 kg 18.3.26 Hafborg EA 152 Dragnót Þorskur 8.437 kg Karfi 146 kg Steinbítur 77 kg Grásleppa 47 kg Langlúra 45 kg Hlýri 24 kg Þykkvalúra 14 kg Samtals 8.790 kg Skoða allar landanir »

Share this article