Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Óvíst að reglugerð taki á vandanum

Read Full Article →

200 mílur | Morgunblaðið | 17.2.2026 | 10:11 Óvíst að reglugerð taki á vandanum Strandveiðar Kjartan Páll segir að hlustað hafi verið á athugasemdir. Morgunblaðið/Eggert Innviðaráðherra, Eyjólfur Ármannsson, hefur undirritað nýja reglugerð um strandveiðar. Nú er kveðið á um að séu gerðar breytingar á eignarhaldi báts meðan á strandveiðivertíð stendur falli strandveiðileyfið niður. Í fyrstu drögum stóð til að í reglugerðinni yrði einnig gerð krafa um að sá sem rær á strandveiðar verði að hafa 100% eignarhald í bátnum en vegna mikillar andstöðu hefur ráðherra horfið frá þeim áformum. Áfram verður í gildi sú regla að sá sem rær þurfi að eiga meira en 50% í bátnum. Kemur sér illa fyrir fjölskylduútgerðir Kjartan Páll Sveinsson, formaður Landssambands smábátaeigenda (LS), er ánægður með þá ákvörðun. „Við vorum nú ekki alveg hrifnir af þessari 100% hugmynd, svo það er gott að það var hlustað á það,“ segir Kjartan. Frétt af mbl.is Vonbrigði með strandveiðireglugerð Aðrar breytingar hugnast honum þó minna. „Varðandi það að skipta á miðri vertíð, það mun koma sér illa fyrir fjölskylduútgerðir, til dæmis þegar feðgar eru að róa saman.“ Hann segir að það sé vel þekkt að menn skipti vertíðinni á milli sín og þá lýsir hann efasemdum um að reglurnar muni raunverulega taka á rót þess vanda sem þær eiga að beinast að. Það vandamál sem verið er að reyna að stemma stigu við, svonefnd leiguliðastarfsemi, felst í því þegar eigendur smábáta fá aðra til að róa fyrir sig alla vertíðina en slíkt fyrirkomulag stríðir gegn tilgangi strandveiðikerfisins. „Ég veit ekki alveg hvort þetta kemur til með að hafa einhver áhrif á leiguliðastarfsemina,“ segir Kjartan. „Hugmyndin á bak við þetta 100% eignarhald var náttúrulega aðallega að gulltryggja að það sé raunverulegur eigandi sem sé að róa, en ekki einhver leiguliði. En ég veit ekki alveg hvort þetta kemur til með að slá á það, ég sé það ekki í fljótu bragði.“ Kjartan útskýrir að í leiguliðastarfsemi séu aðrar leiðir farnar en að skipta um eignarhald á miðri vertíð. „Þá hafa menn gert einhverja málamyndasamninga sem ganga síðan til baka 1. september,“ bendir hann á. „Það er hægt að gera í gegnum lögaðila, en það er ekki hægt að gera það á eigin kennitölu eða neitt svoleiðis, þannig að þetta í rauninni breytir engu þar um.“ Í nýrri reglugerð er kveðið á um að séu gerðar breytingar á eignarhaldi báts meðan á strandveiðivertíð stendur falli strandveiðileyfið niður. Morgunblaðið/Árni Sæberg Kjartan segist þekkja til raunverulegra dæma um fjölskylduútgerðir sem breytingarnar munu koma niður á. Hann segist þó skilja að vissu leyti að verið sé að leita leiða til að leysa vandamálið svo að kerfið þjóni þeim sem það var hannað fyrir. „Það er náttúrulega bara mjög svekkjandi fyrir strangheiðarlegt fólk að þurfa að líða fyrir það að einhverjir aðilar séu að reyna að snúa upp á kerfið,“ segir hann. Erfiðara að treysta loforðum Aðspurður hvort LS hefði viljað sjá frekari breytingar á reglugerðinni segir Kjartan að það hefði verið ánægjulegt ef stöðvunarheimild Fiskistofu hefði verið afnumin. Það sé þó ekki hægt að gera nema með lagabreytingu og þurfi strandveiðimenn vísast að bíða eitthvað lengur eftir því að hún líti dagsins ljós. „Svo vitum við nú ekki enn þá hvað potturinn er stór þannig að það er enn þá óvissa. Við erum í rauninni í nákvæmlega sömu sporum og við vorum fyrir ári síðan,“ segir Kjartan, en nefnir að viðhorf til loforða um 48 daga hafi breyst síðan þá. „Ég held að fólk komi til með að eiga erfiðara með að treysta því fyrr en í lok vertíðar, því miður. En við verðum bara að sjá hvað þeir segja í sambandi við pottinn. Við bíðum bara spenntir eftir því og ég er alveg á því að ríkisstjórnin ætli að standa við þetta loforð.“ Hann segist ekki geta getið sér til um það hvenær það muni verða en hann viti að verið sé að leita að veiðiheimildum fyrir strandveiðimenn. „Við verðum að gefa þeim svigrúm til að vinna það,“ segir Kjartan Páll að lokum. Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Aldrei séð svo vanskapaðan villtan fisk Fín ýsuveiði og loðna allt um kring „Auðlind sem þarf að umgangast af virðingu“ Markaðssetning sjávarafurða oft skilað árangri Leyfi til sjókvíaeldis í uppnámi Hefur hannað vörur úr roði í 40 ár Heildarafli dróst saman um 5% Þröng á þingi á loðnumiðum „Góða loðnuvertíðin“ Náttúruverndarsjóðurinn hafði varað ráðherra við Aldrei séð svo vanskapaðan villtan fisk „Auðlind sem þarf að umgangast af virðingu“ Fín ýsuveiði og loðna allt um kring Markaðssetning sjávarafurða oft skilað árangri Hefur hannað vörur úr roði í 40 ár „Góða loðnuvertíðin“ Heildarafli dróst saman um 5% Leyfi til sjókvíaeldis í uppnámi Æfingar aukist með Öldu-appi Þröng á þingi á loðnumiðum Aldrei séð svo vanskapaðan villtan fisk Gámar af fiski strand í Evrópu Hefur hannað vörur úr roði í 40 ár Fagna „hlutasigri“ í Hvalsmáli Myndir: Fengu beiðni um æfingu frá Gæslunni Þórður Már ráðinn skipulagsfulltrúi 15 milljarðar í sjávarútveg á norðurslóðum Náttúruverndarsjóðurinn hafði varað ráðherra við Leyfi til sjókvíaeldis í uppnámi Talsvert af loðnu á miðunum Fleira áhugavert Kostar ríkið hátt í 300 milljónir Hvassviðri og snjókoma fyrir sunnan Fólk farið að meðtaka veruleikann Höfðu varað við að fara með Íslendinga til Kúbu Fleiri tegundir » Skoða allar landanir » Aldrei séð svo vanskapaðan villtan fisk Fín ýsuveiði og loðna allt um kring „Auðlind sem þarf að umgangast af virðingu“ Markaðssetning sjávarafurða oft skilað árangri Leyfi til sjókvíaeldis í uppnámi Hefur hannað vörur úr roði í 40 ár Heildarafli dróst saman um 5% Þröng á þingi á loðnumiðum „Góða loðnuvertíðin“ Náttúruverndarsjóðurinn hafði varað ráðherra við Aldrei séð svo vanskapaðan villtan fisk „Auðlind sem þarf að umgangast af virðingu“ Fín ýsuveiði og loðna allt um kring Markaðssetning sjávarafurða oft skilað árangri Hefur hannað vörur úr roði í 40 ár „Góða loðnuvertíðin“ Heildarafli dróst saman um 5% Leyfi til sjókvíaeldis í uppnámi Æfingar aukist með Öldu-appi Þröng á þingi á loðnumiðum Aldrei séð svo vanskapaðan villtan fisk Gámar af fiski strand í Evrópu Hefur hannað vörur úr roði í 40 ár Fagna „hlutasigri“ í Hvalsmáli Myndir: Fengu beiðni um æfingu frá Gæslunni Þórður Már ráðinn skipulagsfulltrúi 15 milljarðar í sjávarútveg á norðurslóðum Náttúruverndarsjóðurinn hafði varað ráðherra við Leyfi til sjókvíaeldis í uppnámi Talsvert af loðnu á miðunum Fleira áhugavert Pólitísk rétthugsun drap ekki bolluvöndinn Höfðu varað við að fara með Íslendinga til Kúbu Íslendingar selja leikhúsmiða fyrir milljarð Úkraínumenn fólk, ekki „tortímendur“ Fleiri tegundir » Skoða allar landanir »

Share this article