Innlent | Morgunblaðið | 3.5.2026 | 10:49 Gera bátana klára á strandveiðar Feðgarnir Haukur Randversson og Arnar sonur hans með bátinn Geysi SH. Stýristjakkar stilltir af svo fleyið góða verði tilbúið á mánudag. mbl.is/Alfons Finnsson Sigurður Bogi Sævarsson [email protected] Setja bókamerki Mikið hefur verið umleikis við höfnina í Ólafsvík síðustu daga þar sem sjómenn sem ætla á strandveiðar hafa verið að gera báta sína klára. Kunnugir telja að hartnær 100 bátar úr höfnum í Snæfellsbæ verði á strandveiðum sem hefjast 4. maí. Gera má ráð fyrir að þá strax í birtingu, aðfaranótt mánudagsins, stími bátar út og karlarnir sem á þeim róa munu tilfinningu og hyggjuviti samkvæmt finna góða fiskislóð. 840 umsóknir bárust Alls sóttu 840 smábátaeigendur um leyfi til strandveiða hjá Fiskistofu áður en frestur rann út 15. apríl. Flestar runnu umsóknirnar strax í gegn, en nokkrar þurfti að skoða betur og þá í flestum tilvikum þar sem haffærisskírteini og gildi þeirra var ekki staðfest. Ekkert mun því breyta því að verði veður gott fari hundruð smábáta á sjó strax í birtingu aðfaranótt mánudagsins. Jafnan eru þeir flestir á A-svæði strandveiðanna, sem nær yfir vesturhluta landsins. Þarna hafa hafnirnar í Ólafsvík, á Rifi og Arnarstapa, Patreksfirði, Suðureyri og í Bolungarvík komið sterkar inn. Innviðaráðherra gaf sl. miðvikudag út reglugerð um strandveiðar og samkvæmt henni verður heimilt að veiða alls 10.650 tonn af þorski. Það magn skiptist svo, nánari reglum samkvæmt, niður á milli svæða að teknu tilliti til bátafjölda og mánaða. Þá samþykkti Alþingi í fyrradag breytingar á frumvarpi til laga um stjórn fiskveiða, sem kveður á um heimild innviðaráðherra til að auka veiðiheimildir til strandveiða um 2.700 tonn af þorski. Ekki liggur fyrir úr hvaða potti þau tonn skuli taka. „Þetta er skemmtilegt og spennandi,“ segir Haukur Randversson sem gerir út bátinn Geysi SH. Haukur og Arnar sonur hans voru nú fyrir helgina að gera bátinn góða kláran. Færarúllur voru komnar um borð og allur helsti búnaður en huga þurfti að stýristjökkum og í því brasi stóðu feðgarnir þegar ljósmyndara bar að. „Yfirleitt hafa strandveiðar farið af stað með mikilli og góðri veiði. Núna gæti þetta orðið eitthvað tregara, því í vetur komst fiskur hér við Snæfellsnes í loðnu og fékk nóg af æti. Er ennþá pakksaddur, myndi ég halda, og mun þá síður bíta á færakróka strandveiðibáta. En við skulum vona það besta, ég ætla að taka nokkra daga í þessu en er svo líka að veiða grásleppu og ræ þá úr Stykkishólmi,“ útskýrir Haukur. Guðlaugur Jónsson gerir að handfærarúllu á Hvítaá HF. mbl.is/Alfons Finnsson Dugi fram í ágúst „Meðal minna manna er mikil eftivænting þessa dagana,“ segir Kjartan Páll Sveinsson, formaður Landssambands smábátaeigenda. Eins og hér að framan greinir eru heimildir nú fyrir því að strandveiðimenn megi í sumar veiða 10.650 tonn. Vænst er þó að meira bætist við og þar nefnir Kjartan Páll skiptimarkað á makríl og íslenskri sumargotssíld fyrir heimildir í þorski sem vonandi falli til strandveiðimanna. Einnig að áðurnefnd 2.700 tonn í heimildum, sem gert er ráð fyrir í lögum um stórn fiskveiða, bætist við verði breytingar á lögunum að veruleika. Að þessu virtu megi þá vænta þess að strandveiðarnar fái í ár minnst 14.000 tonna aflaheimildir, borið saman við að 11.000 tonn sem fiskuðust í fyrra. „Ef við fáum fjórtán þúsund tonnin, eins og þau í Flokki fólksins hafa góð orð um, ættu heimildirnar að duga til strandveiða vel fram í ágúst. Annars eru ýmsar flækjur í þessu líka, samanber að heimilaðir veiðidagar í maí eru aðeins fjórtán. Þá veit ég ekki hvað menn treysta sér á sjó á mánudaginn, því fyrir Breiðafjörðinn gildir bræluspá,“ segir Kjartan Páll. Kjartan Páll Sveinsson Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Gera bátana klára á strandveiðar Myndir: Keppni í myndasögugerð hafin Eigendur tekið 3 milljarða úr rekstri hjúkrunarheimilis Portúgalsmeistari þriðja árið í röð Málið valdið samfélaginu miklu áfalli Umræðan Viðkvæma konan í Kópavogi Svipþing og Sveinn Skorri Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vinstrimenn setja spurningamerki við ESB Mokuðu út hamborgurum í New York Farfuglar koma fyrr til landsins Spáð í spilin fyrir tímamótafund Mest lesið Í gær Í vikunni Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Mesta hrósið sem maður getur hugsað sér Býður „djúsí skúbb“ frá mömmu Ferðamaður villtist á nærfötunum einum klæða Ég er enn með útþrá Leituðu að manni í Hornafirði í nótt Stutt í framkvæmdir en lengra í beint flug Mokuðu út hamborgurum í New York Þrír fengu tæpa hálfa milljón Búin að leggja forsætisráðuneytið til hliðar Eins konar æði gripið Íslendinga Vilja nema erfðafjárskatt úr gildi „Heiðarlegt vorhret“ á leiðinni Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Kaupa þarf upp fasteignir vegna Sæbrautarstokks „Heyrðu, er þetta æxlið mitt?“ Búin að leggja forsætisráðuneytið til hliðar Unnu á 1. maí við að reisa blokk fyrir verkalýðsfélög 45 milljónir fyrir fimm daga stopp Vasaþjófarnir snúnir aftur Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Eins konar æði gripið Íslendinga Maðurinn fannst látinn við Háafoss Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Nýjast á mbl.is » Gera bátana klára á strandveiðar Myndir: Keppni í myndasögugerð hafin Eigendur tekið 3 milljarða úr rekstri hjúkrunarheimilis Portúgalsmeistari þriðja árið í röð Málið valdið samfélaginu miklu áfalli Umræðan Viðkvæma konan í Kópavogi Svipþing og Sveinn Skorri Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Bjartsýnin eykst hjá vallarstjórum Eru í „bölvuðum vandræðum“ með flutninga Eins konar æði gripið Íslendinga Mest lesið Í gær Í vikunni Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Mesta hrósið sem maður getur hugsað sér Býður „djúsí skúbb“ frá mömmu Ferðamaður villtist á nærfötunum einum klæða Ég er enn með útþrá Leituðu að manni í Hornafirði í nótt Stutt í framkvæmdir en lengra í beint flug Mokuðu út hamborgurum í New York Þrír fengu tæpa hálfa milljón Búin að leggja forsætisráðuneytið til hliðar Eins konar æði gripið Íslendinga Vilja nema erfðafjárskatt úr gildi „Heiðarlegt vorhret“ á leiðinni Kristrún sagði nei og ekki náðist í Ingu Kaupa þarf upp fasteignir vegna Sæbrautarstokks „Heyrðu, er þetta æxlið mitt?“ Búin að leggja forsætisráðuneytið til hliðar Unnu á 1. maí við að reisa blokk fyrir verkalýðsfélög 45 milljónir fyrir fimm daga stopp Vasaþjófarnir snúnir aftur Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Eins konar æði gripið Íslendinga Maðurinn fannst látinn við Háafoss Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Íslendingurinn í sínu fyrsta stökki eftir útskrift Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin Segir kjánahroll líklega hafa farið um marga Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás