Umsóknarfrestur um leyfi til strandveiða rann út í gær, 15. apríl, og alls bárust 840 umsóknir innan frestsins. Þetta kemur fram á vef Fiskistofu sem segist þegar hafa veitt 789 leyfi og vera með 51 umsókn enn í vinnslu, í flestum tilvikum vegna þess að skilyrði um gilt haffærisskírteini hafi ekki verið staðfest. Í fyrra bárust tæplega 900 umsóknir og höfðu innan við 800 þeirra verið afgreiddar undir lok apríl. Sumarið 2024 voru 756 bátar á strandveiðum. Hægt að sjá lista yfir útgefin strandveiðileyfi „Umsóknarkerfi Fiskistofu sækir upplýsingar um haffærisskírteini sjálfvirkt til Samgöngustofu , sem getur haft áhrif á afgreiðslutíma ef upplýsingar liggja ekki fyrir. Veitt strandveiðileyfi eru aðgengileg í stafrænu pósthólfi útgerðar á Ísland.is. Þá er einnig hægt að nálgast lista yfir útgefin strandveiðileyfi á gagnasíðum Fiskistofu,“ segir á fiskistofa.is .