Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Byrja rannsóknarboranir vegna ganga milli lands og Eyja

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 11 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Vestmannaeyjabær Byrja rann­sókn­ar­bor­an­ir vegna ganga milli lands og Eyja Brynjólfur Þór Guðmundsson Eyjagöng ætla að hefja rannsóknarboranir í næsta mánuði til að kanna möguleika á fastri vegtengingu milli lands og Eyja. Fyrirtækið hefur samið við Ræktunarsamband Flóa og Skeiða um framkvæmdina. Hún á að veita innsýn í jarðlög og undirstöður á fyrirhugaðri leið. Borað verður á tveimur stöðum, á Eiðinu á Heimaey og á Landeyjasandi við bæinn Kross. Hefja á boranir snemma í apríl og klára þær fyrir lok mánaðar. Vinna á úr sýnum fram í byrjun júlí. Aðsend / Eyjagöng Fyrir 41 mínútuERLENDAR FRÉTTIR Evrópusambandið Átaka­fund­ur leið­toga Evr­ópu­sam­bands­ins í Bruss­el Tekist verður á um lán Evrópusambandsins til Úkraínu á leiðtogafundi ESB sem er að hefjast í Brussel. Fátt bendir til þess að Ungverjar láti af andstöðu sinni við lánið, fyrr en deilan um olíuleiðslu í Úkraínu verður leyst. Fyrir 44 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Dýravelferð Dýra­lækn­ar vilja banna loð­dýra­hald Dýralæknafélagið lýsir stuðningi við yfirdýralækni sem vill að lög um loðdýrarækt verði endurskoðuð. Félagið vill að stjórnvöld taki skýra afstöðu gegn loðdýrahaldi. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Gasverð rýkur upp eftir árásir Írana í morgun Íranar ollu miklum skemmdum á stærstu gasframleiðslustöð heims. Verð á gasi í Evrópu hækkaði um 35 prósent skömmu síðar. Íranar réðust einnig á olíuhreinsistöðvar í Kúveit. Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf Gerir upp erfiða æsku: „Maður á ekki að vera með for­tíð­ina á herð­un­um“ Varaþingmaðurinn Elín Íris Fanndal ólst upp við mikla fátækt og erfiðar aðstæður. Foreldrar hennar voru í stormasömu hjónabandi sem endaði með því að móðir hennar yfirgaf fjölskylduna og giftist amerískum hermanni sem kom ekki vel fram. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Húsnæðismál Ró­leg­heit á fast­eigna­mark­aði Brynjólfur Þór Guðmundsson Fasteignasalar lýsa húsnæðismarkaði sem miklum kaupendamarkaði og segja algengara en áður að verð sé lækkað í söluferli, að því er kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Markaðurinn er rólegur og lítill verðþrýstingur síðustu mánuði. HMS segir að eftir miklar verðhækkanir síðustu ár eigi sér stað aðlögun þar sem íbúðaverð hefur hækkað minna en verðlag síðan í fyrrasumar. Íbúðaverð hefur því lækkað að raunvirði. Dregið hefur úr verðþrýstingi á leigumarkaði síðustu misseri og leiguverð staðið í stað að raunvirði síðustu tólf mánuði. Íbúðarhúsnæði á Ísafirði. Aðsent / Bartosz Kozik Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti Í kvöld: Strák­arn­ir okkar mæta Svíum Íslenska karlalandsliðið í handbolta mætir Svíþjóð í æfingaleik í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19:30 og er í beinni útsendingu á RÚV 2. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Leið­inda­veð­ur um allt land Sunnan hvassviðri eða stormi er spáð um allt land í dag og næstu daga. Síðustu gulu viðvaranir falla ekki úr gildi fyrr en á laugardag. Vegir eru lokaðir vegna veðurs og á óvissustigi vegna snjóflóðahættu. FRÉTTAVAKT Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Einn drep­inn í dróna­árás á Sev­a­s­to­pol Markús Þ. Þórhallsson Einn almennur borgari var drepinn og tveir særðust lítillega þegar Úkraínuher gerði drónaárás á hafnarborgina Sevastopol á Krímskaga í nótt. Rússneskur kafbátur úr Svartahafsflotanum siglir fram hjá Istanbúl í Tyrklandi. EPA / ERDEM SAHIN Borgin er heimahöfn Svartahafsflota Rússlands og Úkraínumenn hafa iðulega gert þar árásir í rúmlega fjögurra ára gömlu innrásarstríðinu. Landstjóri Rússa segir að flotinn og loftvarnarkerfi borgarinnar hafi skotið niður 27 úkraínska dróna yfir Sevastopol. Loftvarnarkerfi í rússneska héraðinu Stavropol grönduðu fjölda dróna sem stefndu á iðnaðarsvæði. Úkraínumenn segja þrjá hafa særst í loftárás á hafnarborgina Odesu í nótt. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Dul­ar­full flygildi á ferð yfir her­stöð í Wash­ing­ton Markús Þ. Þórhallsson Dularfullra flygilda hefur orðið vart undanfarna tíu daga yfir Lesley J. McNair-herstöðinni nærri Washington, höfuðborg Bandaríkjanna. Pete Hegseth er varnar- eða stríðsmálaráðherra Bandaríkjanna. EPA / JIM LO SCALZO / POOL The Washington Post greinir frá þessu og segir að yfirvöld hafi gripið til hertra öryggisráðstafana vegna drónaflugsins og haldið neyðarfundi í Hvíta húsinu. Herstöðin er ekki fjarri heimilum utanríkisráðherrans Marco Rubio og Pete Hegseth, varnarmálaráðherra. Blaðið segir hvorki vitað hvaðan flygildin koma né hver stjórni þeim en segir þau hafa tekið að birtast eftir að Bandaríkin hófu þungar árásir á Íran í samvinnu við Ísraelsríki. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Samfélag Ís­lend­ing­ar eru næst­ham­ingju­samast­ir allra Íslendingar eru næsthamingjusamasta þjóð veraldar ef marka má niðurstöður nýjustu útgáfu hamingjuskýrslunnar. Finnar eru efstir. Íbúar Norðurlandanna allra eru meðal þeirra tíu hamingjusömustu. Rannsakendur eru uggandi yfir velsæld ungmenna. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Ol­íu­verð hækk­aði á As­íu­mark­aði eftir árásir á gas- og ol­íu­vinnslu­stöðv­ar Olíuverð hækkaði um 2,5 til 5 af hundraði við opnun Asíumarkaða í morgun. Hækkunin er rakin til árása stríðandi fylkinga í Mið-Austurlöndum á gas- og olíuvinnslustöðvar. Stærsta gasvinnslustöð Katar skemmdist mikið í loftárás Íranshers. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Takaichi sögð þurfa að sýna mikla jafn­væg­is­list á fundi með Trump Forsætisráðherra Japans hittir Bandaríkjaforseta í dag á viðkvæmum tímapunkti í samskiptum ríkjanna. Forsetinn gagnrýndi Japani harðlega fyrir að hafna liðsinni við að halda Hormússundi opnu. Japanir reiða sig talsvert á Bandaríkin um landvarnir. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Bylt­ing­ar­vörð­ur­inn hótar ger­eyð­ingu gas- og ol­íu­vinnslu­stöðva í ná­granna­ríkj­un­um Byltingarvörðurinn í Íran hefur hótað að gereyða olíu- og gasvinnslustöðum ríkja við Persaflóa láti Bandaríkin og Ísrael ekki af atlögum að orkuinnviðum landsins. Íranir hafa gert árásir á gasstöðvar í Katar og Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Stækk­un­ar­stjóri Evr­ópu­sam­bands­ins vill flýta fyrir um­ræð­um um helstu for­gangs­mál Ís­lands Stækkunarstjóri Evrópusambandsins segir að flýtt verði fyrir samningaviðræðum um þau mál sem helst brenni á Íslendingum samþykki landsmenn að halda aðildarviðræðum áfram. Hún hafi einnig rætt sérstök málefni landsins við utanríkisráðherra. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Sunnan storm­ur og tals­verð úrkoma víða um land — vegum lokað eða settir á óvissu­stig Gular veðurviðvaranir verða í gildi víða um land í nótt vegna sunnan storms og talsverðrar úrkomu. Mjög hvassar hviður fylgja veðrinu sem telst varasamt til ferðalaga. Vegir verða víða lokaðir eða á óvissustigi meðan veðrið gengur yfir. 18. mars 2026 kl. 23:24INNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar Jarð­skjálfta­hrina við Rauf­ar­hóls­helli Ásrún Aldís Hreinsdóttir Auður Alfífa Ketilsdóttir Yfir hundrað jarðskjálftar hafa mælst við Raufarhólshelli við Þrengslaveg í kvöld. Um er að ræða litla jarðskjálftahrinu en að sögn Elísabetar Pálmadóttur, náttúruvásérfræðings á Veðurstofu Íslands, er svæðið þekkt jarðskjálftasvæði og minnir hrinan á aðrar álíka hrinur sem hafa orðið á svæðinu. „Þetta er ekki daglegt en við sjáum þetta öðru hverju.“ Elísabet segir að ekkert bendi til þess að gos sé í aðsigi, enginn órói hafi mælst, um sé að ræða hefðbundna skjálftahrinu. Veðurstofunni hafa ekki borist neinar tilkynningar um að skjálftarnir hafi fundist í byggð, stærstu skjálftarnir hafa verið í kringum 2,5 að stærð. 18. mars 2026 kl. 22:01ÍÞRÓTTIR Fótbolti Liver­pool flaug inn í 8-liða úrslit Meist­ara­deild­ar­inn­ar Sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta lauk í kvöld með fjórum leikjum. Liverpool, Barcelona, Bayern München og Atlético Madríd náðu sér í síðustu fjögur lausu sætin í 8-liða úrslitunum. 18. mars 2026 kl. 21:48MENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Þessi hlutu Ís­lensku tón­list­ar­verð­laun­in 2026 Íslensku tónlistarverðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn í Silfurbergi í kvöld. Hljómsveitin Todmobile hlaut heiðursverðlaun og Sara Mjöll Magnúsdóttir var valin bjartasta vonin. Laufey hlaut flest verðlaun, þar á meðal sem flytjandi ársins. 18. mars 2026 kl. 21:43INNLENDAR FRÉTTIR Samfélag End­ur­bætt­ur kirkju­turn hífður á Mos­fells­kirkju Kirkjuturninn á Mosfellskirkju í Mosfellsdal var hífður aftur á kirkjuna í dag eftir lagfæringar. Turninn var tekinn niður fyrir jól, eftir að í ljós komu miklar skemmdir á burðarvirki. Vertaki segir verkefnið mikla áskorun. 18. mars 2026 kl. 21:23INNLENDAR FRÉTTIR Dýravelferð „Óásætt­an­leg með­ferð á dýrum“ Atvinnuvegaráðherra hyggst leggja fram heildarendurskoðun á lögum um velferð dýra næsta vetur. Hún segir myndskeið í Kveik í gærkvöld, af aðbúnaði minka í minkabúum hér á landi, sýna óásættanlega meðferð á dýrum. 18. mars 2026 kl. 20:53INNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Skýrsla um brun­ann á Stuðl­um dap­ur­leg lesn­ing – „Mjög margir sem bregð­ast“ Slökkviliðsstjóri höfuðborgarsvæðisins segir nýútgefna skýrslu húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um brunann sem varð á Stuðlum árið 2024 dapurlega; greinilegt sé að margir hafi brugðist. 18. mars 2026 kl. 20:22INNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Bylt­ing í upp­lýs­inga­gjöf fyrir blinda og sjón­skerta Blindir og sjónskertir geta nú sjálfir nálgast upplýsingar um leiðir og komutíma strætisvagna með sérstökum kóðum sem verða settir á öll strætóskýli á næstu mánuðum. 18. mars 2026 kl. 20:01INNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Stýri­vext­ir hækk­að­ir í fyrsta sinn síðan 2023 Peningastefnunefnd Seðlabankans hækkaði í morgun stýrivexti um 0,25 prósentustig. Það gerir nefndin til að bregðast við aukinni verðbólgu og verðbólguvæntingum. Stýrivextir hafa ekki verið hækkaðir síðan í ágúst 2023. 18. mars 2026 kl. 19:33MENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Ís­lensku tón­list­ar­verð­laun­in – Beint streymi Ísl

Share this article