Erna Bjarnadóttir hagfræðingur ritaði athyglisverða grein sem birtist í Morgunblaðinu í síðustu viku. Þar bendir hún á þá staðreynd að í aðildarviðræðum setur Evrópusambandið skilyrði sem hvert umsóknarríki þarf að uppfylla áður en hver samningskafli er opnaður í viðræðunum. Uppfylli ríki ekki þessi opnunarskilyrði verður viðkomandi samningskafli aðildarviðræðnanna ekki opnaður og því er útilokað að ljúka viðræðunum fyrr en umsóknarríkið hefur uppfyllt skilyrði ESB. Þannig hafa Svartfjallaland og Serbía haft stöðu umsóknarríkja um árabil án þess að þokast í átt að fullri aðild, þar sem ekki hefur verið hægt að opna viðræður um kafla á sviði fjármála og grundvallarréttinda. Til að lesa meira Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér. Verð frá 6.295 kr. á mánuði Kaupa áskrift