Innlent | Morgunblaðið | 19.3.2026 | 9:30 Ríkið verði að draga úr eigin eftirspurn Þórarinn og Ásgeir á kynningarfundi Seðlabankans í gær. mbl.is/Eyþór Andrea Sigurðardóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Staðan erfið og aðgerða þörf Hiti á þingi: „Þetta er til skammar“ Líklegt að stýrivextir verði hækkaðir frekar í maí „Við freistuðumst til að fagna of snemma“ Öll merki um að of mikið hafi verið tekið út » Fleiri tengdar fréttir Það var þungt hljóðið í Ásgeiri Jónssyni seðlabankastjóra og Þórarni G. Péturssyni varaseðlabankastjóra peningastefnu þegar þeir ræddu við blaðamann að lokinni kynningu á vaxtaákvörðun í gær. Ásgeir kveðst vera með böggum hildar yfir því ef svo fer að verðbólgan rísi enn hærra. „Við höfum áhyggjur af því að það leiði til þess að allar flóðgáttir opnist og það leiði til verðhækkana á vöru og þjónustu úti um allt kerfið. Það skiptir mjög miklu að það gerist ekki. Síðan er mjög mikilvægt að aðilar vinnumarkaðarins ræði þessa stöðu með lausnamiðuðum hætti,“ segir hann. Óvissa í tengslum við mögulegan forsendubrest á kjarasamningum í haust geti haft neikvæð áhrif á verðbólguvæntingar og leitt til frekari vaxtahækkunar. „Það verður því mjög mikilvægt að heyra frá þeim hvort þeir ætli sér að taka á þessu með skynsamlegum hætti, sérstaklega í ljósi þess að staðan er m.a. komin upp vegna þess að launin hækkuðu meira en var gefið upp í stóru kjarasamningunum.“ Hann bendir á að verðbólgan hafi ekki komið niður á kaupmætti fólks, hann hafi þvert á móti aukist verulega. Það sé því engin kaupmáttarkrísa. Spurður hvort það skjóti skökku við að Alþingi muni að óbreyttu samþykkja frumvarp um tengingu bóta við launavísitölu við þessar aðstæður svarar Ásgeir því játandi. „Það hjálpar ekki til og hefur auðvitað áhrif á það hvernig ríkissjóðurinn er metinn.“ Spurður hvaða væntingar hann hafi til fjármálaáætlunar ríkisstjórnarinnar og hvað þurfi til til þess að auka trúverðugleika í ríkisfjármálunum segir Ásgeir: „Það eru náttúrulega margir fletir á ríkisfjármálum. Afgangur af ríkisfjármálum er bara einn þeirra og ekki endilega sá mikilvægasti. Það skiptir máli hvernig ríkið er fjármagnað. Til dæmis var hækkun vörugjalda til þess að fjármagna ríkið ekki endilega mjög góð hugmynd, svona eftir á að hyggja. Það skiptir líka máli hvort ríkið sé að stækka eða ekki. Vegna þess að ef þú skattleggur og eyðir peningunum í ríkisútgjöld, jafnvel þó að það sé ekki halli, þá örvar það kerfið. Þetta er eitthvað sem er kennt í grunnnámskeiðum í hagfræði. Ég vona að það sé hugsað um alla þessa fleti þegar það er hugað að ríkisfjármálum.“ Þórarinn tekur í sama streng og Ásgeir í þessum efnum. Hann segir umræðu um ríkisfjármál stundum á misskilningi byggða. „Það mun ekki skipta sköpum um verðbólguna hvort það verður örlítill halli á næsta ári eða örlítill afgangur. Það sem skiptir máli er hvað ríkisfjármálin leggja til eftirspurnar, af því að það sem hefur verið að þrýsta upp verðbólgunni hér er að eftirspurnin í hagkerfinu hefur verið of mikil. Það þarf að draga úr eftirspurn og ríkið verður þá að draga úr sinni eftirspurn,“ segir hann. Þórarinn segir að það hafi borið svolítið á því að reynt sé að minnka hallann með því að hækka opinber gjöld. „Þær tekjur hafa verið notaðar að hluta til að auka tilfærslur. Þessar tilfærslur auka eftirspurn þeirra sem fá hana. Þannig að jafnvel þó að þú náir afgangi með þessum hætti, þá er þetta ekkert endilega að hjálpa til við að ná niður verðbólgu. Þvert á móti, ef hækkunin er gerð með því að hækka vörugjöld sem fara síðan beint inn í verðbólguna. Auðvitað horfum við fram hjá þessum fyrstu umferðaráhrifum en ef þetta verður til þess að auka líkurnar á endurskoðun kjarasamninga þá eru komin skýr önnur umferðaráhrif sem við verðum að bregðast við.“ Hann vonast til þess að aðrir armar hagstjórnarinnar vinni með Seðlabankanum. „Ef aðrir armar hagstjórnarinnar vinna með okkur þá þurfum við að gera minna. Ef ekki, þá þurfum við að gera meira. Þá verða þessi fórnarskipti milli verðbólgu og efnahagsumsvifa verri af því að við þurfum þá að kæla hagkerfið enn meira til að ná verðbólgunni niður. Þar leika allir eitthvert hlutverk. Það er nánast orðið náttúrulögmál að opinberir aðilar hækki verð á þjónustu um jafnvel tugi prósenta í byrjun hvers árs. Hvaðan kom það að það væri náttúrulegt og eðlilegt? Hér eru laun hækkuð langt umfram það sem þekkist annars staðar og langt umfram það sem getur staðist ef við ætlum að halda verðbólgu í 2,5%. Það hafa því allir hlutverki að gegna ef við ætlum að reyna að ná tökum á þessu.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Staðan erfið og aðgerða þörf Hiti á þingi: „Þetta er til skammar“ Líklegt að stýrivextir verði hækkaðir frekar í maí „Við freistuðumst til að fagna of snemma“ Öll merki um að of mikið hafi verið tekið út » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Eldtefjandi hleðsluskápar ómissandi „Þekkingin er það sem aðgreinir okkur“ Sérfræðingar í hönnunar- og framkvæmdastjórnun Stórleikir í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar Ríkið verði að draga úr eigin eftirspurn Umræðan Tölum íslensku Árangur í útlendingamálum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hvað fór úrskeiðis á Stuðlum? Þessi hlutu Íslensku tónlistarverðlaunin Hiti á þingi: „Þetta er til skammar“ Átti að vera búið að loka byggingunni Mest lesið Í gær Í vikunni Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Sigríður telur að sér vegið Sunnan hvassviðri eða stormur víða um land Holtavörðu- og Öxnadalsheiði lokaðar Segir samningaviðræður við ESB þegar hafnar Leyfi fyrir Hvammsvirkjun samþykkt Umdeildum framkvæmdum lokið Tveir fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur Björgunarsveitarútköll og rafmagnsleysi Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Fundum manninn hálfsturlaðan“ „Stærsta bylting sem við höfum séð“ Stefnir í öngþveiti að óbreyttu Öll merki um að of mikið hafi verið tekið út Hefði verið hægt að fyrirbyggja mannslát Réðst á einn á Landspítala og tók af honum farsíma Gular viðvaranir á stórum hluta landsins Seðlabankinn hafi misst tökin Rannsókn lokið og ákæra gefin út í dag Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Drukknir menn reikuðu um gólfið „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Nýjast á mbl.is » Eldtefjandi hleðsluskápar ómissandi „Þekkingin er það sem aðgreinir okkur“ Sérfræðingar í hönnunar- og framkvæmdastjórnun Stórleikir í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar Ríkið verði að draga úr eigin eftirspurn Umræðan Tölum íslensku Árangur í útlendingamálum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Við freistuðumst til að fagna of snemma“ Varað við snjóflóðum, krapaflóðum og grjóthruni Tónabíó opnað aftur á morgun: „Okkar krúnudjásn“ Hiti á þingi: „Þetta er til skammar“ Mest lesið Í gær Í vikunni Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Sigríður telur að sér vegið Sunnan hvassviðri eða stormur víða um land Holtavörðu- og Öxnadalsheiði lokaðar Segir samningaviðræður við ESB þegar hafnar Leyfi fyrir Hvammsvirkjun samþykkt Umdeildum framkvæmdum lokið Tveir fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur Björgunarsveitarútköll og rafmagnsleysi Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Fundum manninn hálfsturlaðan“ „Stærsta bylting sem við höfum séð“ Stefnir í öngþveiti að óbreyttu Öll merki um að of mikið hafi verið tekið út Hefði verið hægt að fyrirbyggja mannslát Réðst á einn á Landspítala og tók af honum farsíma Gular viðvaranir á stórum hluta landsins Seðlabankinn hafi misst tökin Rannsókn lokið og ákæra gefin út í dag Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Drukknir menn reikuðu um gólfið „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“