Ríkisstjórnin hefur ekki kynnt áformaðar aðgerðir til stuðla að hjöðnun verðbólgunnar fyrir Seðlabankanum. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri sagði þetta á kynningarfundi Seðlabankans í morgun. „Við höfum svo sem heyrt af því afspurn að það sé verið að ræða um einhverjar aðgerðir eftir páska. Þær hafa ekki verið kynntar fyrir okkur, þannig að við getum ekki lagt mat á þær,“ sagði Ásgeir, spurður um fyrirhugaðar aðgerðir ríkisstjórnarinnar. „Þessar tillögur hljóta að vera í samhengi við stöðuna á vinnumarkaði væntanlega. Allt sem minnkar líkurnar á því að þessi uppsagnarákvæði virkist er jákvætt.“ Hann vísaði þar í forsenduákvæði í kjarasamningum á almennum vinnumarkaði sem geta virkjast ef ársverðbólga mælist yfir 4,7% í næstkomandi ágústmælingu Hagstofunnar eða að verðbólga frá mars-ágúst verði yfir 4,4% miðað við árshraða. Sjá einnig „Þetta gerist ekki hjá nokkurri annarri þjóð“ Trúverðugleiki í ríkisfjármálum skipti mestu máli Ásgeir bætti við að það sem mestu máli skipti í þessum efnum sé trúverðugleiki í ríkisfjármálum fram í tímann. Fyrr á fundinum hafði Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningastefnu, svarað því játandi að hann telji þörf á frekara aðhaldi í fjármálaáætlun sem verður kynnt á næstu vikum. „Varðandi fjármálaáætlunina, þarf meira aðhald? Verðbólguhorfur eru að versna jú, þannig að þá þarf meira aðhald, bæði peningastefnunnar og ríkisfjármálanna. Það er ljóst,“ sagði Þórarinn. Verðbólga mældist 5,2% í febrúar, talsvert yfir spám greiningardeilda bankanna. Þann 27. febrúar, degi eftir Hagstofan birti verðbólgumælinguna, upplýsti Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra um að ríkisstjórnin væri að undirbúa aðgerðir til að stuðla að hjöðnun verðbólgunnar. Nokkrum dögum síðar sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra í viðtali við Morgunblaðið að Daða Má hefði verið falið það á fundi Þjóðhagsráðs að eiga í beinum samskiptum við aðila vinnumarkaðarins um mögulegar viðbótaraðgerðir. Horft væri til þess að kynna aðgerðirnar eftir páska. „Slíkar aðgerðir verða alltaf á strúktúrhliðinni, hvernig við getum endurhannað ákveðin kerfi eða breytt aðkomu ríkisins í breiðum málum. Það mun ekki leysa verðbólguvandann og við munum ekki bara koma með einhvern stóran kjarapakka inn núna. Aðalatriðið er að ríkið passi upp á að vera sjálft ekki verðbólguhvetjandi,“ sagði Kristrún. Kristrún, Daði Már og Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra funduðu með verkalýðsleiðtogum í Stjórnarráði Íslands á fimmtudaginn í síðustu viku, þann 12. mars.