Viðskipti | Morgunblaðið | 21.3.2026 | 15:07 Kristrún á skjön við Seðlabanka Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist ekki af baki dottin þrátt fyrir bakslag en áherslur hennar og Seðlabankans eru ólíkar. Morgunblaðið/Eyþór Andrea Sigurðardóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Ræða hættumerki í íslensku hagkerfi Skoða hvort taka megi upp nýtt húsnæðislánakerfi „Bara einhver delluskýring“ Daði vitnaði í Eisenhower Furðulegt að hlusta á skammir » Fleiri tengdar fréttir „Þetta er alvarlegt óveðursský,“ sagði Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra um stöðu efnahagsmála hér á landi, í kjölfar ákvörðunar peninganefndar Seðlabanka Íslands að hækka stýrivexti um 0,25%. Einu atkvæði munaði að þeir yrðu hækkaðir um tvöfalt það. Ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að hækka vörugjöld á viðkvæmum tímapunkti í baráttunni við verðbólguna hafði ekki þau einskiptisáhrif sem ríkisstjórnin sá fyrir sér, heldur hafa annarrar umferðar áhrif gert vart við sig þar sem hækkunin smitast áfram um hagkerfið. Frétt af mbl.is „Þetta er alvarlegt óveðursský“ Innistæðulaus riddarasláttur Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika hafa gagnrýnt tímasetninguna og verið afdráttarlausir þegar þeir segja ákvörðunina mistök. „Til dæmis var hækkun vörugjalda til þess að fjármagna ríkið ekki endilega mjög góð hugmynd, svona eftir á að hyggja,“ sagði Ásgeir m.a. í samtali við blaðamann eftir að vaxtaákvörðunin var tilkynnt. Frétt af mbl.is Ríkið verði að draga úr eigin eftirspurn Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra skrifaði færslu á samfélagsmiðla í kjölfar vaxtahækkunarinnar þar sem hún lýsti ákvörðuninni sem vonbrigðum, en lýsti því um leið að ríkisstjórnin væri hvergi af baki dottin. „Þótt stýrivextir séu enn 1,75% lægri en haustið 2024 – þá eru það sannarlega vond tíðindi að Seðlabankinn sjái sig nú knúinn til að hækka vextina,“ skrifaði hún. Frétt af mbl.is „Við freistuðumst til að fagna of snemma“ Það samhengi sem Kristrún kýs að setja stöðu efnahagsmála í er athyglisvert. Vaxtalækkunarferli hófst í tíð fyrri ríkisstjórnar. Vextir náðu hæst 9,25% og lækkuðu fyrst í október 2024 og héldu áfram að lækka mánuðina á eftir. Þegar ríkisstjórn Kristrúnar tók við voru vextirnir 8,5% eða 1% hærri en þeir eru í dag. Þegar ríkisstjórnin kynnti fjármálastefnu sína og fyrstu fjármálaáætlun, það eru þær afurðir ríkisstjórna auk fjárlaga sem helst hreyfa við verðbólguvæntingum, þá voru vextir 7,75% og eru þeir því í dag aðeins 0,25% lægri en þá. Viðbúið er að sá munur geti þurrkast út við næstu ákvörðun í maí og verðbólga er í dag hærri en hún var þegar ríkisstjórn Kristrúnar tók við. Fá teikn ef nokkur eru á lofti um efnahagsbata og þvert á móti, ef litið er til þess að enn eiga áhrif af verðhækkunum á olíu vegna stríðsátaka eftir að koma að fullu fram. Þegar Kristrún setur stöðuna í samhengi við þróun frá hausti ársins 2024 er Kristrún leynt og ljóst að slá sig til riddara vegna vaxtalækkunar sem að stærstum hluta kemur verkum hennar ríkisstjórnar ekki við. Aftur á móti er alveg ljóst að þann viðsnúning sem nú hefur orðið, þar sem vaxtalækkunarfasi hefur snúist upp í vaxtahækkun, og jafnvel vaxtahækkanir, má að einhverju leyti rekja til hækkunar opinberra gjalda á versta mögulega tíma. Það hafa seðlabankamenn einfaldlega sagt hreint út. Afgangur aukaatriði „Við verðum að slá niður verðbólguvæntingar. Það besta sem ríkisstjórn getur gert til þess er að reka ríkissjóð réttum megin við núllið. Það ætlum við að gera. Og hvikum hvergi frá því plani,“ skrifaði Kristrún í færslu sinni og á öðrum stað: „Ríkisstjórnin mun gera sitt í fjármálaáætlun og með fyrstu hallalausu fjárlögunum í að verða áratug. Við höldum áfram að taka stórar ákvarðanir til að laga afkomuna.“ Þessi orð Kristrúnar stangast á við orð seðlabankamanna. „Það eru náttúrulega margir fletir á ríkisfjármálum. Afgangur af ríkisfjármálum er bara einn þeirra og ekki endilega sá mikilvægasti. Það skiptir máli hvernig ríkið er fjármagnað. Til dæmis var hækkun vörugjalda til þess að fjármagna ríkið ekki endilega mjög góð hugmynd, svona eftir á að hyggja. Það skiptir líka máli hvort ríkið sé að stækka eða ekki. Vegna þess að ef þú skattleggur og eyðir peningunum í ríkisútgjöld, jafnvel þó að það sé ekki halli, þá örvar það kerfið,“ sagði Ásgeir í viðtali við blaðið. Þórarinn tók í sama streng og sagði umræðu um ríkisfjármál oft á misskilningi byggða. „Það mun ekki skipta sköpum um verðbólguna hvort það verður örlítill halli á næsta ári eða örlítill afgangur. Það sem skiptir máli er hvað ríkisfjármálin leggja til eftirspurnar, af því að það sem hefur verið að þrýsta upp verðbólgunni hér er að eftirspurnin í hagkerfinu hefur verið of mikil. Það þarf að draga úr eftirspurn og ríkið verður þá að draga úr sinni eftirspurn.“ Það lofar vonandi góðu að Daði Már fjármálaráðherra lagði áherslu á aðhaldsstig fjármálaáætlunar sem senn verður kynnt, fremur en afgang ólíkt Kristrúnu. Hann boðar minni eftirspurn í fjármálaáætluninni og verður því áhugavert að sjá hvort honum takist það og nái með því að auka trúverðugleika ríkisfjármálanna. Það kemur allt í ljós í næsta mánuði. Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Ræða hættumerki í íslensku hagkerfi Skoða hvort taka megi upp nýtt húsnæðislánakerfi „Bara einhver delluskýring“ Daði vitnaði í Eisenhower Furðulegt að hlusta á skammir » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Pistlar » Sigurður Már Jónsson Sjálfsmörk ríkisstjórnarinnar Sigurður Már Jónsson Mun Japönum fækka um helming á 40 árum? Fleira áhugavert „Fyrstu viðbrögð eru einfaldlega sorg“ Holtavörðuheiði enn lokuð Ekki útlit fyrir lífshættulega áverka Sprenging í Korngörðum: Nokkrir fluttir á slysadeild Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Lauf Cycles setur nýtt rafmagnshjól á markað 3,4 milljarða hagnaður hjá Isavia Lyfjaver opnar apótek í Klíníkinni Gervigreindin verði „ráðin“ í venjuleg störf Höfnuðu tveggja milljarða tilboði „Við freistuðumst til að fagna of snemma“ Grímur kjörinn stjórnarformaður Dræm sala skilar nýjum íbúðum á leigumarkað Kærir úrskurð um vanhæfi sitt Halda vöxtum óbreyttum Gervigreindin verði „ráðin“ í venjuleg störf Lauf Cycles setur nýtt rafmagnshjól á markað Lyfjaver opnar apótek í Klíníkinni 3,4 milljarða hagnaður hjá Isavia Grímur kjörinn stjórnarformaður Alvotech lækkaði mest Dræm sala skilar nýjum íbúðum á leigumarkað 55 af 84 íbúðum fóru í útleigu Úrvalsvísitalan OMXI15 lækkað um 7% Höfnuðu tveggja milljarða tilboði Lokuðu þremur verslunum í Leifsstöð í nótt Höfnuðu tveggja milljarða tilboði Sameinast undir vörumerki Apótekarans Sterkari keppinautur eftir að SAS sleit samstarfi Forsendur ekki til staðar hér á landi Tekur undir orð stjórnenda Play um ummæli Jóns Segir lokanirnar klárt brot á lögum landsins „Við freistuðumst til að fagna of snemma“ Gjaldeyrisáhættan þurrkaðist út Hafnar stjórnarsetu og hyggst einbeita sér að öðru Pistlar » Sigurður Már Jónsson Sjálfsmörk ríkisstjórnarinnar Sigurður Már Jónsson Mun Japönum fækka um helming á 40 árum? Fleira áhugavert „Fólk er eðlilega í áfalli“ Einn alvarlega slasaður eftir sprenginguna Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Inga: Ofbeldi, klækir og viðbjóður málþófsins Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Lauf Cycles setur nýtt rafmagnshjól á markað 3,4 milljarða hagnaður hjá Isavia Lyfjaver opnar apótek í Klíníkinni Gervigreindin verði „ráðin“ í venjuleg störf Höfnuðu tveggja milljarða tilboði „Við freistuðumst til að fagna of snemma“ Grímur kjörinn stjórnarformaður Dræm sala skilar nýjum íbúðum á leigumarkað Kærir úrskurð um vanhæfi sitt Halda vöxtum óbreyttum Gervigreindin verði „ráðin“ í venjuleg störf Lauf Cycles setur nýtt rafmagnshjól á markað Lyfjaver opnar apótek í Klíníkinni 3,4 milljarða hagnaður hjá Isavia Grímur kjörinn stjórnarformaður Alvotech lækkaði mest Dræm sala skilar nýjum íbúðum á leigumarkað 55 af 84 íbúðum fóru í útleigu Úrvalsvísitalan OMXI15 lækkað um 7% Höfnuðu tveggja milljarða tilboði Lokuðu þremur verslunum í Leifsstöð í nótt Höfnuðu tveggja milljarða tilboði Sameinast undir vörumerki Apótekarans Sterkari keppinautur eftir að SAS sleit samstarfi Forsendur ekki til staðar hér á landi Tekur undir orð stjórnenda Play um ummæli Jóns Segir lokanirnar klárt brot á lögum landsins „Við freistuðumst til að fagna of snemma“ Gjaldeyrisáhættan þurrkaðist út Hafnar stjórnarsetu og hyggst einbeita sér að öðru