Hrafnarnir áttuðu sig seint á því að planið hennar Kristrúnar Frostadóttur var eftir allt saman greinilega að stýra ríkisfjármálunum beinustu leið út í skurð og skilja þau eftir þar. Fyrir því virðist vera mikil stemning meðal stjórnarliða. Í síðustu viku sendi Seðlabanki Íslands minnisblað til efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis þar sem gerðar eru alvarlegar athugasemdir við frumvarp um að tengja bótagreiðslur við launavísitölu. Varað er við því að frumvarpið leiði til sjálfvirkrar og varanlegrar útgjaldaaukningar ríkissjóðs, en uppsöfnuð áhrif til lengri tíma geti reynst veruleg og grafi undan aðhaldi ríkisfjármála. En stjórnarliða varðar ekkert um þetta. Minnihluti velferðarnefndar óskaði eftir því að fá fulltrúa Seðlabankans á fund nefndarinnar til að ræða málin, en meirihlutinn, með Kolbrúnu Baldursdóttur og Kristján Þórð Snæbjarnarson í broddi fylkingar, hafnaði því alfarið og telur væntanlega að Seðlabankinn hafi ekkert til málanna að leggja í þessum efnum. Huginn og Muninn er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins. Þessi birtist fyrst í blaðinu sem kom út 4. september 2026.