Innlent | Morgunblaðið | 19.3.2026 | 11:00 Gæti dugað fyrir allt að 400 íbúðum Markaðurinn hefur vart undan að sinna eftirspurninni. mbl.is/Sigurður Bogi Baldur Arnarson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Húsnæðismarkaðurinn Dræm sala skilar nýjum íbúðum á leigumarkað Þéttingarreitur í Vesturbænum 55 af 84 íbúðum fóru í útleigu Vilja aukna íbúðauppbyggingu á landsbyggðinni Hægir á byggingu íbúða næstu árin » Fleiri tengdar fréttir Jónas Atli Gunnarsson, yfirhagfræðingur Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar, HMS, áætlar að um 300-400 íbúðir geti verið keyptar með hlutdeildarlánum í ár. „Eftirspurn eftir hlutdeildarlánum hefur verið töluverð á árinu en samtals hafa borist 226 umsóknir. Ekki er búið að ljúka úthlutun í mars en fjöldi umsókna er 91. Í langflestum umsóknum liggur fyrir samþykkt kauptilboð. Samþykktar umsóknir í janúar og febrúar voru samtals 62 talsins en um helmingur allra íbúðanna er í Hafnarfirði,“ segir Jónas Atli og vísar til samantektar sem er endurgerð í töflunni hér til hliðar. Að meðaltali tveggja herbergja Spurður hvað kaup með hlutdeildarlánum séu farin að vega þungt á markaðnum segir Jónas Atli að hlutfallið sé ekki lágt. Hlutdeildarlánin eru ætluð til kaupa á hagkvæmum íbúðum í nýbyggingum. „Samkvæmt nýjum lögum sem tóku gildi um áramótin hækkaði fjárheimild ríkisins til hlutdeildarlána úr 4 milljörðum króna í 5,5 milljarða króna á ári. Haldist eftirspurnin eftir lánunum jafnmikil og hún hefur verið í byrjun þessa árs má búast við að sú heimild verði fullnýtt. Miðað við gildandi hámarksverð fyrir hlutdeildarlánaíbúðir og meðalfjölda svefnherbergja í hverri hlutdeildarlánaíbúð, en það eru tvö svefnherbergi, gæti fjárheimildin verið næg fyrir samþykki á allt að 300-400 íbúðum. Til samanburðar hefur HMS áætlað að um 3.000 íbúðir muni verða fullbúnar á þessu ári,“ segir Jónas Atli. Hluti af húsnæðispakka Fjárheimild hlutdeildarlána var aukin í kjölfar þess að ríkisstjórnin kynnti fyrsta húsnæðispakka sinn í lok október. Boðaði ríkisstjórnin þá fleiri hlutdeildarlán með mánaðarlegri úthlutun, tryggri fjármögnun og rýmri skilyrðum. Jónas Atli segir þetta hafa birst með nýjum lögum í desember. Skilyrðin hafi meðal annars verið rýmd þannig að tekjumörkin hafi verið hækkuð og hlutfall hlutdeildarlána verið hækkað úr 20% og 30% í sértilvikum í 25% og 35% í sértilvikum. Jónas Atli Gunnarsson. mbl.is/Karítas Fyrri reglur hafi kveðið á um að ef umsækjandi var með meira en sem svarar 5% kaupverðs í eigin fé kæmi það sem væri umfram til lækkunar á hlutdeildarláni. Nú geti umsækjendur hins vegar verið með sem svarar allt að 10% kaupverðs í eigin fé, án þess að það skerði hlutdeildarlánið. Það lækki aftur lánsfjárhæðina sem aftur skili lægri vaxtagreiðslum, umsækjandanum til hagsbóta. Einnig hafi hámarksgreiðslubyrði einstaklinga verið rýmkuð þannig að þeir gætu notið sömu réttinda og aðrir á lánamarkaði. Hjálpa tekjulágum „Hlutdeildarlánin hafa sinnt sínu hlutverki með því að hjálpa tekjulágum að komast inn á fasteignamarkað og vinsældir úrræðisins sýna fram á gagnsemi þeirra,“ segir Jónas Atli um þennan valkost. Víða hefur verið handagangur í öskjunni þar sem hlutdeildarlánin hafa verið í boði. Af þeim sökum hafa verktakar jafnvel lækkað verð minni íbúða í nýbyggingum til að þær uppfylli skilyrði hlutdeildarlána. Þá meðal annars í Hamranesinu í Hafnarfirði. Loks má rifja upp frétt í Morgunblaðinu 10. febrúar um að helmingur íbúða í Buðlabryggju í Reykjavík hefði selst fyrstu söluhelgina. Íbúðirnar féllu undir hlutdeildarlán en húsin voru reist á lóð sem var ætluð undir íbúðir í hagkvæmu húsnæði fyrir fyrstu kaupendur. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Húsnæðismarkaðurinn Dræm sala skilar nýjum íbúðum á leigumarkað Þéttingarreitur í Vesturbænum 55 af 84 íbúðum fóru í útleigu Vilja aukna íbúðauppbyggingu á landsbyggðinni Hægir á byggingu íbúða næstu árin » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Myndir: Blússandi stemning á Tónlistarverðlaununum „Hverju er hægt að treysta?“ Myndskeið: Orðlausir yfir tilþrifum Salah Brýnt að upplýsa hvort öryggi barna sé tryggt Large avalanche falls from Kirkjubólshlíð Umræðan Tölum íslensku Forræði yfir auðlindum þjóðarinnar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Leyfi fyrir Hvammsvirkjun samþykkt „Hverju er hægt að treysta?“ Aukið atvinnuleysi í byggingariðnaði Hótar að eyðileggja stærsta gasvinnslusvæði Írans Mest lesið Í gær Í vikunni Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum Tveir fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Sigríður telur að sér vegið Sunnan hvassviðri eða stormur víða um land Stórt snjóflóð féll úr Kirkjubólshlíð Holtavörðu- og Öxnadalsheiði lokaðar Segir samningaviðræður við ESB þegar hafnar Björgunarsveitarútköll og rafmagnsleysi Leyfi fyrir Hvammsvirkjun samþykkt Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Fundum manninn hálfsturlaðan“ „Stærsta bylting sem við höfum séð“ Stefnir í öngþveiti að óbreyttu Öll merki um að of mikið hafi verið tekið út Hefði verið hægt að fyrirbyggja mannslát Réðst á einn á Landspítala og tók af honum farsíma Gular viðvaranir á stórum hluta landsins Seðlabankinn hafi misst tökin Rannsókn lokið og ákæra gefin út í dag Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Drukknir menn reikuðu um gólfið „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Nýjast á mbl.is » Myndir: Blússandi stemning á Tónlistarverðlaununum „Hverju er hægt að treysta?“ Myndskeið: Orðlausir yfir tilþrifum Salah Brýnt að upplýsa hvort öryggi barna sé tryggt Large avalanche falls from Kirkjubólshlíð Umræðan Tölum íslensku Forræði yfir auðlindum þjóðarinnar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Staðan erfið og aðgerða þörf Stórt snjóflóð féll úr Kirkjubólshlíð „Hverju er hægt að treysta?“ Leyfi fyrir Hvammsvirkjun samþykkt Mest lesið Í gær Í vikunni Hundrað skjálftar á síðustu klukkutímum Tveir fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Sigríður telur að sér vegið Sunnan hvassviðri eða stormur víða um land Stórt snjóflóð féll úr Kirkjubólshlíð Holtavörðu- og Öxnadalsheiði lokaðar Segir samningaviðræður við ESB þegar hafnar Björgunarsveitarútköll og rafmagnsleysi Leyfi fyrir Hvammsvirkjun samþykkt Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Fundum manninn hálfsturlaðan“ „Stærsta bylting sem við höfum séð“ Stefnir í öngþveiti að óbreyttu Öll merki um að of mikið hafi verið tekið út Hefði verið hægt að fyrirbyggja mannslát Réðst á einn á Landspítala og tók af honum farsíma Gular viðvaranir á stórum hluta landsins Seðlabankinn hafi misst tökin Rannsókn lokið og ákæra gefin út í dag Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu Drukknir menn reikuðu um gólfið „Fundum manninn hálfsturlaðan“ Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“