Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Byggðu hraðar en íbúum fjölgaði í fyrra

Read Full Article →

Fólksfjölgun á síðasta ári var með minnsta móti miðað við spár sveitarfélaga og uppbygging íbúða gerði gott betur en að halda í við nýja íbúðaþörf. Þetta kemur fram í nýrri samantekt Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Þetta varð til þess að hægt var að minnka íbúðaskuld á höfuðborgarsvæðinu um 500 íbúðir og um 120 íbúðir í nágrannasveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins. Sveitarfélög landsins gerðu ráð fyrir að íbúum myndi fjölga um 5.200 til 11.600 á síðasta ári, þar sem 5.200 voru minnsta fjölgun sem þau sáu fyrir sér og 11.600 sú mesta. Raunin var sú að íbúum fjölgaði um 5.470 sem er 39 prósentum undir miðspá sveitarfélaganna. Þar er þó ekki tekið mið af því að tölurnar ná ekki til Grindavíkur. Ef hún er tekin með fjölgaði fólki um 5.080, sem er undir lægstu spá. Á sama tíma gerðu sveitarfélögin ráð fyrir því að byggja á milli 2.500 og 5.200 nýjar íbúðir. Miðspáin var 4.000 íbúðir. Þær urðu á endanum 3.372 talsins, talsvert yfir lágspá en 15 prósentum undir miðspá. Flestar íbúðir voru byggðar í Reykjavík og Hafnarfirði. Uppbyggingin í Reykjavík og Mosfellsbæ hélt ekki í við lágspá en í Hafnarfirði og Kópavogi var hún í takt við áætlaða þörf og umfram þörf í Garðabæ. Í flestum landshlutum dugði lóðaframboð ekki til að mæta áætlaðri íbúðaþörf þegar litið er til lóða sem átti að úthluta á árinu og voru byggingarhæfar þegar húsnæðisáætlunum var skilað. Staðan er misjöfn milli sveitarfélaga. Þannig var nægilega mikið af lóðum í Reykjavík og Garðabæ til að mæta áætlaðri þörf en skortur var á þeim í Kópavogi, Hafnarfirði og Mosfellsbæ.

Share this article