Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Íbúum fjölgaði mest í Reykjavík og Hafnarfirði

Read Full Article →

Innlent | mbl | 9.4.2026 | 8:56 Íbúum fjölgaði mest í Reykjavík og Hafnarfirði Íbúum Reykjavíkur fjölgaði mun minna en húsnæðisáætlun sveitarfélagsins gerði ráð fyrir. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Tengdar fréttir Húsnæðismarkaðurinn „Kemur gríðarlega á óvart“ Segir Íslendinga vilja fyrirsjáanleika Telur heimilin vilja óverðtryggð lán „Dýrt að sitja uppi með óseldar íbúðir“ Kortaviðskipti án nettengingar sem fyrst » Fleiri tengdar fréttir Íbúum Reykjavíkur fjölgaði mun minna en húsnæðisáætlun sveitarfélagsins gerði ráð fyrir, á meðan fólksfjölgun á Ísafirði var töluvert umfram spár sveitarfélagsins. Þetta kemur fram í skýrslu Húsnæðis- og mannavirkjastofnunar , HMS, um árangur húsnæðisáætlana árið 2025. Íbúðaþörf reyndist minni en sveitarfélögin gerðu ráð fyrir í miðspá sinni vegna minni fólksfjölgunar á meðan íbúðauppbygging var umtalsverð á árinu 2025. Alls skiluðu 58 af 62 sveitarfélögum inn húsnæðisáætlun fyrir árið 2025. Grindavík hefur ekki skilað inn áætlun undanfarin tvö ár þar sem bærinn var rýmdur vegna náttúruhamfara í lok árs 2023. Auk Grindavíkur skiluðu Mýrdalshreppur, Árneshreppur og Súðavíkurhreppur ekki inn fullunninni áætlun til HMS. Í upphafi árs 2025 gerðu 58 sveitarfélög ráð fyrir að íbúum innan þeirra marka myndi fjölga um 5.200 til 11.600 manns á árinu. Samkvæmt gögnum Hagstofunnar um mannfjölda í lok hvers ársfjórðungs fjölgaði íbúum þeirra um 5.470 manns og því var raunfjölgun nokkurn veginn í samræmi við lágspá sveitarfélaganna. Fólksfjölgun var aftur á móti um 39 prósentum minni en miðspá sveitarfélaganna gerði ráð fyrir. Til samanburðar fjölgaði íbúum á landinu í heild um 5.080 manns í fyrra, samkvæmt ársfjórðungstölum Hagstofu. Munurinn skýrist fyrst og fremst af því að íbúum í Grindavík fækkaði um 430 á árinu. Fjölgaði um rúmlega 3 þúsund á höfuðborgarsvæðinu Á höfuðborgarsvæðinu fjölgaði íbúum um 3.020 á árinu, sem reyndist lítillega undir samanlagðri lágspá sveitarfélaganna. Íbúum fjölgaði mest í Reykjavík og Hafnarfirði, þrátt fyrir að fjölgunin í Reykjavík hafi verið talsvert minni en jafnvel varfærnustu spár gerðu ráð fyrir. Í Garðabæ fjölgaði íbúum hins vegar nokkuð meira en sveitarfélagið gerði ráð fyrir í háspá sinni. Í öðrum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu varð vöxturinn minni en gert hafði verið ráð fyrir í áætlunum. Í nágrenni höfuðborgarsvæðisins var fólksfjölgun innan spábils fyrir svæðið í heild sinni en þó 23% undir miðspá. Fólksfjölgun var áberandi mest í Árborg, þar sem fjölgunin nam 610 manns. Í flestum sveitarfélögum var fjölgunin yfir eða innan spábila en í Reykjanesbæ og Hveragerði var fjölgun talsvert undir spám. Lóðaframboð dugði ekki til að mæta áætlaðri íbúðaþörf í flestum landshlutum árið 2025, ef einungis er horft til fjölda lóða sem átti að úthluta á árinu og voru byggingarhæfar þegar húsnæðisáætlunum var skilað. Nægilega mikið var af byggingarhæfum lóðum til að mæta áætlaðri þörf í Reykjavík og Garðabæ, en skortur var á byggingarhæfum lóðum í Kópavogi, Hafnarfirði og Mosfellsbæ árið 2025. Tengdar fréttir Húsnæðismarkaðurinn „Kemur gríðarlega á óvart“ Segir Íslendinga vilja fyrirsjáanleika Telur heimilin vilja óverðtryggð lán „Dýrt að sitja uppi með óseldar íbúðir“ Kortaviðskipti án nettengingar sem fyrst » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Telja stjórnina hafa staðið sig illa í málefnum útlendinga Ég er brjáluð út í Lamar Odom Fundu metmagn af marijúana fyrir slysni Allt uppi á borðum í ársreikningum Rýfur þögnina um dauða eiginkonu sinnar Umræðan Bretland, Brexit og hættulegri heimur Misskilningur hjá gömlum vini Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kostnaður langt umfram áætlun Leiðtogar fagna: „Skref til baka frá brúninni“ Á vakt við óviðunandi aðstæður í áratugi Kvöldfréttir sjónvarps víki ekki fyrir íþróttum Mest lesið Í gær Í vikunni Kostnaður langt umfram áætlun Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Kvöldfréttir sjónvarps víki ekki fyrir íþróttum Boða foreldra á fund tæplega mánuði eftir slysið Síðbúin vorhret mun verri en páskahret Segir Íslendinga borða alltof mikinn sykur Ríkisstjórnin aftur í Tjarnargötu Stikla úr óbirtri heimildarmynd sýnd annað kvöld Ljá máls á þjóðarsátt Kólnar með slydduéljum seinnipartinn Þekkt leikkona styður Grindavík Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Var neitað um starf og brást illa við Tveir á slysadeild eftir eldsvoða í Kópavogi Hafði fengið sér tvo bjóra og „tvær línur“ Kaupendur vinna enn eitt Canexel-málið Segir samningsstöðu Íslands ekki sterka ESA hefur hafið formlega málsmeðferð gegn Íslandi Hnuplaði úr verslun strax við komuna til landsins Myndir: Reyndu að kveikja í bandaríska fánanum Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Fylgstu með lægðinni ganga yfir Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Leigja út heimili á ríflega milljón Tveir fengu 88 milljónir Nýjast á mbl.is » Telja stjórnina hafa staðið sig illa í málefnum útlendinga Ég er brjáluð út í Lamar Odom Fundu metmagn af marijúana fyrir slysni Allt uppi á borðum í ársreikningum Rýfur þögnina um dauða eiginkonu sinnar Umræðan Bretland, Brexit og hættulegri heimur Misskilningur hjá gömlum vini Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þjóðarsorg í Líbanon: Leiðtogar fordæma árásir Lokun Hormússunds „óásættanleg“ Íhugar að „refsa“ ákveðnum NATO-ríkjum Trump: Íran mun ekki auðga úran Mest lesið Í gær Í vikunni Kostnaður langt umfram áætlun Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Kvöldfréttir sjónvarps víki ekki fyrir íþróttum Boða foreldra á fund tæplega mánuði eftir slysið Síðbúin vorhret mun verri en páskahret Segir Íslendinga borða alltof mikinn sykur Ríkisstjórnin aftur í Tjarnargötu Stikla úr óbirtri heimildarmynd sýnd annað kvöld Ljá máls á þjóðarsátt Kólnar með slydduéljum seinnipartinn Þekkt leikkona styður Grindavík Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Var neitað um starf og brást illa við Tveir á slysadeild eftir eldsvoða í Kópavogi Hafði fengið sér tvo bjóra og „tvær línur“ Kaupendur vinna enn eitt Canexel-málið Segir samningsstöðu Íslands ekki sterka ESA hefur hafið formlega málsmeðferð gegn Íslandi Hnuplaði úr verslun strax við komuna til landsins Myndir: Reyndu að kveikja í bandaríska fánanum Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Fylgstu með lægðinni ganga yfir Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Leigja út heimili á ríflega milljón Tveir fengu 88 milljónir

Share this article