Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Telja meiri­hluta tryggðan fyrir áfengis­frum­varpinu

Read Full Article →

Sante ehf., sem selur áfengi í netverslun, telur að a.m.k. 35 af 63 þingmönnum séu fylgjandi frumvarpi um að heimila rekstur innlendra vefverslana með áfengi. Þetta kemur fram í nýrri atkvæðavakt sem Sante heldur úti. Arnar Sigurðsson, eigandi Sante, segir í samtali við Viðskiptablaðið að afstaða þingmanna byggi m.a. á svörum þingmanna í könnun Viðskiptablaðsins í október 2024. Auk þess hafi félagið upplýst alla þingmenn um atkvæðavaktina og gefið þeim kost á að uppfæra afstöðu sína. Arnar, sem tók þátt í umræðum á fundi Viðreisnar í síðasta mánuði um netsölu með áfengi, segir að fólk innan Viðreisn hafi tjáð sér að búið sé að semja um að farið verið með frumvarpið í atkvæðagreiðslu á þingi. Í síðasta mánuði lagði hópur þingmanna Viðreisnar, sem Grímur Grímsson fer fyrir, frumvarp um breytingu á áfengislögum sem miðar að því að heimila innlendum aðilum að starfrækja vefverslun með áfengi í smásölu að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Sjá einnig Grímur kynnir frum­varp um net­verslun með áfengi Frumvarpið er nær samhljóða drögum að frumvarpi sömdu í dómsmálaráðuneytinu sem birt var í samráðsgátt stjórnvalda hinn 30. september 2024, sem Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins og þáverandi dómsmálaráðherra, fór fyrir. Kristrún og Sigmundur Ernir fylgjandi Sante telur að allir 11 þingmenn Viðreisnar, 14 þingmenn Sjálfstæðisflokksins og 8 þingmenn Miðflokksins séu fylgjandi frumvarpinu. Af hinum tveimur stjórnarflokkunum, Samfylkingunni og Flokki fólksins, er aðeins gert ráð fyrir að tveir þingmenn séu fylgjandi; Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Sigmundur Ernir Rúnarsson. Sjá einnig Ó­skýr lína hjá Sam­­fylkingunni í á­­fengis­­málum Afstaða 12 annarra þingmanna Samfylkingarinnar er flokkuð sem óákveðin. Þá er gert ráð fyrir að Alma D. Möller heilbrigðisráðherra sé mótfallin frumvarpinu. Spurður um hvaðan upplýsingar um afstöðu Kristrúnar fengust, vísar Arnar í ummæli hennar á Viðskiptaþingi 2024 . Þar spurði Snorra Másson, sem starfaði þá sem fjölmiðlamaður, um afstöðu um hvort ríkið ætti að selja áfengi í smásölu. Kristún sagði að henni finnist skipta máli hvaða einkaaðilar myndu þá taka við sölu áfengis. „Ríkið þarf ekki að reka þetta, en það er annað að þetta sé keypt úti í Bónus. Mín lína er svolítið þar,“ svaraði Kristrún. Skjáskot af vef áfengisvaktarinnar sem Sante heldur úti. Af þingmönnum Flokks fólksins er gert ráð fyrir að 6 þingmenn séu mótfallnir breytingunum en afstaða fjögurra þingmanna er talin óákveðin. Af fimm þingmönnum Framsóknarflokksins er gert ráð fyrir að þrír þingmenn séu á móti breytingunum en að afstaða tveggja sé óákveðin. Sjá einnig Allt í járnum í áfenginu Viðskiptablaðið birti í október 2024, þ.e. á síðasta kjörtímabili, niðurstöður könnunar á afstöðu allra þingmanna til netsölu áfengis. Niðurstöðurnar voru á þann veg að útlit var fyrir að ekki væri meirihluti fyrir því að heimila starfsemi innlendra vefverslana með áfengi. Lesendur geta nálgast könnun Viðskiptablaðsins frá október 2024 og svör einstakra þingmanna hér . Fréttin var uppfærð eftir að blaðamaður náði í Arnar.

Share this article