Þingmenn Viðreisnar hafa lagt fram frumvarp um breytingu á áfengislögum sem tekur á vefverslun með áfengi. Markmiðið er að setja skýran lagaramma utan um slíka starfsemi og eyða óvissu um lögmæti innlendra vefverslana með áfengi. Vefverslanir með áfengi verði leyfðar Breytingarnar taka á gildandi einkaleyfi Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins, ÁTVR, á smásölu áfengis til almennings. Frumvarpið kveður á um að heimilað verði að reka vefverslun með áfengi til neytenda, að uppfylltum tilteknum skilyrðum samkvæmt lögum. Frumvarpið er nær samhljóða drögum að frumvarpi dómsmálaráðuneytisins sem birt var í samráðsgátt stjórnvalda í lok september 2024. Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar, er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins. Lagt er til að heimilt verði að reka vefverslun með áfengi á grundvelli sérstaks vefverslunarleyfis. Markmiðið er að heimila sölu áfengis í gegnum innlendar vefverslanir og setja skýran lagaramma utan um slíka starfsemi, meðal annars um leyfisveitingar, eftirlit og fyrirkomulag sölu og afhendingar áfengis. Gert er ráð fyrir að sama fyrirkomulag gildi um afhendingu áfengis sem einstaklingar flytja sjálfir inn, og áfengis sem keypt er í erlendum vefverslunum. Vilja eyða óvissu um lögmæti innlendra vefverslana Í greinargerð segir að frumvarpinu sé ekki ætlað að breyta hlutverki Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins og feli ekki í sér beinar tillögur um breytingar á áfengisstefnu, áherslum í lýðheilsumálum eða fyrirkomulagi tekjuöflunar ríkisins á þessu sviði. Í núverandi löggjöf séu engar takmarkanir á rétti einstaklinga til að flytja inn áfengi erlendis frá, til dæmis með kaupum í erlendum vefverslunum. Hins vegar sé ekki gert ráð fyrir að innlendar vefverslanir með áfengi séu heimilar, vegna þess einkaleyfiskerfis sem er í gildi. Þrátt fyrir það séu fjölmargar vefverslanir starfandi, bæði íslenskar og erlendar. Leitast sé við að bregðast við þeirri stöðu — að sömu reglur gildi um afhendingu áfengis, hvort sem það er keypt í innlendri eða erlendri vefverslun. Slíkt jafni stöðu innlendra áfengisverslana við sambærilegar erlendar vefverslanir sem íslenskum neytendum er þegar heimilt að versla við. Þá stendur í greinargerð að verði ekki gripið til aðgerða muni áfram ríkja óvissa um lögmæti innlendra vefverslana með áfengi, sem sé óásættanlegt fyrir bæði stjórnvöld og almenning.