Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Greiðara aðgengi auki ekki neyslu

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 23.2.2026 | 17:22 Greiðara aðgengi auki ekki neyslu Grímur Grímsson, þingmaður Viðreisnar. mbl.is/Eggert Jóhannesson Björn Diljan Hálfdanarson [email protected] Setja bókamerki Áfengisneysla landsmanna virðist ekki aukast með auknu aðgengi að sögn Gríms Grímssonar, þingmanns Viðreisnar, en hann lagði nýverið fram frumvarp sem heimilar innlendum aðilum að selja áfengi í netsölu. „Við erum með tölur frá Hagstofunni varðandi það hvort aukning hafi orðið á sölu áfengis eftir að þessi leið var farin fyrir fimm árum [að selja áfengi í gegnum erlendar vefverslanir] og það bendir ekkert til þess að neyslan hafi aukist þó svo að fleiri aðilar selji nú áfengi,“ segir Grímur í samtali við Morgunblaðið. Undanfarin ár hafa íslenskir neytendur getað keypt áfengi í gegnum erlendar vefverslanir og fengið það afhent hérlendis. Að sögn Gríms á frumvarpið að efla jafnræði milli innlendra og erlendra söluaðila. Aðgengi að áfengi sé svo mikið hérlendis að frumvarpið hafi lítil áhrif að því leyti. „Það er töluvert mikið aðgengi að áfengi í gegnum verslanir ÁTVR þannig að ég held að jafnvel þótt við bætum við það skipti það ekki öllu máli. Hér er verið að gæta jafnræðis á milli innlendra og erlendra aðila, það er grundvallaratriði,“ segir Grímur. Þá kveðst hann ekki búa yfir vitneskju um hvort Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, sé meðmæltur frumvarpinu eða ekki en áfengislöggjöfin fellur undir hans ráðuneyti. Í fyrri ríkisstjórn var hún á ábyrgð dómsmálaráðherra. Hefurðu trú á því að frumvarpið nái fram að ganga? „Ég renni alveg blint í sjóinn með það. Ég geri mér ekki almennilega grein fyrir því hvernig atkvæðin munu skiptast í því en ég gæti trúað því að það verði nokkuð mjótt á munum, þetta gæti verið nálægt fimmtíu prósentum sem eru meðmælt.“ Aðspurður segir Grímur frumvarpið ekki hugsað sem fyrsta skrefið í átt að afnámi einokunar ríkisins á áfengissölu. „Í mínum huga eru engar hugmyndir um annað frumvarp sem myndi afnema einkaleyfi ÁTVR,“ segir hann. Að lokum segir Grímur óvissu vera í núverandi áfengislöggjöf og að öllum vafa þurfi að útrýma. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Greiðara aðgengi auki ekki neyslu Peter Mandelson handtekinn Leikmaður United sviptur fyrir ofsaakstur Lygileg tölfræði Eze gegn Tottenham Ný nefnd um fiskveiðistjórnun fundar í Reykjavík Umræðan Frá friði í stríð Lífsgæði og litlar íbúðir fara saman Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Greiðara aðgengi auki ekki neyslu Fordæmdi „algjöra villimennsku Rússa“ Snjórinn verulegur og mjög fáir á ferli Sýnir hvað það þarf lítið til Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Ellen Margrét Ingvadóttir Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Fimm prósent landans á Wegovy Missti fyrst heimilið, síðan vinnuna Gífuryrði háskólakennara um Blökastið Vinna hörðum höndum að því að koma á aukaferðum Innkalla kjúkling vegna gruns um salmonellu Icelandair aflýsir ferðum til New York og Boston Almenningur tafði aðgerðir slökkviliðsins Fólk látið blása í Hlíðarfjalli Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Munum sjá snjó í borginni í vikunni Sviptur málflutningsréttindum vegna kókaínsmygls Myndskeið: Sinueldur við Elliðavatn Tengsl blárra augna við sifjaspell Leggja fram vantrauststillögu á hendur rektor Lokað í Bláfjöllum Kópavogsbær býður slökkviliði mannskap Á ríflega tvöföldum hámarkshraða Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Nýjast á mbl.is » Greiðara aðgengi auki ekki neyslu Peter Mandelson handtekinn Leikmaður United sviptur fyrir ofsaakstur Lygileg tölfræði Eze gegn Tottenham Ný nefnd um fiskveiðistjórnun fundar í Reykjavík Umræðan Frá friði í stríð Lífsgæði og litlar íbúðir fara saman Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Missti fyrst heimilið, síðan vinnuna Gullhúðun í nýju frumvarpi „Ég hélt að hann hefði sloppið“ Mikil andstaða í umsagnarferli Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Ellen Margrét Ingvadóttir Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Fimm prósent landans á Wegovy Missti fyrst heimilið, síðan vinnuna Gífuryrði háskólakennara um Blökastið Vinna hörðum höndum að því að koma á aukaferðum Innkalla kjúkling vegna gruns um salmonellu Icelandair aflýsir ferðum til New York og Boston Almenningur tafði aðgerðir slökkviliðsins Fólk látið blása í Hlíðarfjalli Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Munum sjá snjó í borginni í vikunni Sviptur málflutningsréttindum vegna kókaínsmygls Myndskeið: Sinueldur við Elliðavatn Tengsl blárra augna við sifjaspell Leggja fram vantrauststillögu á hendur rektor Lokað í Bláfjöllum Kópavogsbær býður slökkviliði mannskap Á ríflega tvöföldum hámarkshraða Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka

Share this article