- What: Denmark moved military assets to Greenland amid concerns over potential U.S. takeover
- Impact: Related to geopolitical tensions and military preparedness
Fljótlega eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti hótaði að taka yfir Grænland í byrjun árs flutti danski herinn birgðir af blóði frá blóðbönkum til landsins. Blóðið átti að vera til taks ef fólk myndi særast kæmi til átaka á Grænlandi við mögulega yfirtöku Bandaríkjahers. Þetta hefur danska ríkisútvarpið, DR , eftir heimildamönnum sínum innan danska stjórnkerfisins og frá leyniþjónustustofnunum í Danmörku, Frakklandi og Þýskalandi. Bandaríkjaher réðst inn í Venesúela 3. janúar, handtók forsetahjón landsins og flutti til Bandaríkjanna. Næsta dag lýsti Trump því yfir að Bandaríkin þyrftu að taka yfir Grænland í nafni þjóðaröryggis. Það var ekki fyrr en 21. janúar á alþjóðlegu efnahagsráðstefnunni í Davos sem Bandaríkjaforseti útilokaði að beita hervaldi á Grænlandi. Eftir hótanir Trumps í byrjun árs voru danskir, norskir, sænskir, franskir og þýskir hermenn fluttir til Grænlands. Dönsku hermennirnir höfðu sprengiefni með í för. Hugmyndin var að ef Bandaríkin létu verða af hótunum um beitingu hervalds myndu þeir sprengja upp flugbrautir í Nuuk og Kangerlussuaq og þannig koma í veg fyrir að hægt yrði að lenda bandarískum herþotum þar. DR hefur ekki fengið svör við því hvort ætlunin hafi verið að erlendu hermennirnir, sem voru sendir til Grænlands, myndu taka þátt í mögulegum bardögum gegn Bandaríkjunum. Enn er ekki vitað hvort stjórnvöldum í Bandaríkjunum hafi verið alvara með hótunum um að taka yfir Grænland með hervaldi, samkvæmt heimildamönnum DR. Óttinn um innrás þessa gamla bandamanns hafi þó sannarlega verið til staðar. Háttsettur embættismaður sem DR ræddi við metur stöðuna þannig að það sé ekki útilokað að Bandaríkin hóti aftur yfirtöku með hervaldi enda séu þrjú ár eftir af kjörtímabili Trumps. Franskur heimildamaður DR segir að samstaða Evrópuríkja á þessum örlagaþrungnu dögum í janúar hafi verið mikil. Ráðamönnum Evrópuríkja hafi orðið ljóst að þeir bæru sjálfir fulla ábyrgð á vörnum sínum.