Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Bálstofunni í Fossvogi mögulega lokað verði starfsleyfi ekki framlengt

Read Full Article →

Framkvæmdastjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófastdæma segir nauðsynlegt að bálstofan í Fossvogi fái framlengingu á starfsleyfi svo líkbrennsla leggist ekki af. Verði bálstofunni gert að vinna eftir ýtrustu skilyrðum geti hún ekki annað nema rúmlega 40% af þeim bálförum sem óskað er eftir. Ná að anna öllum óskum vegna undanþágu Bálstofan í Fossvogi hefur starfað í tæplega 80 ár og er sú elsta á Norðurlöndunum. Ofnarnir eru komnir til ára sinna og ekki útbúnir nauðsynlegum mengunarvörnum. Að undanförnu hefur bálstofan starfað á undanþágu sem rennur út um miðjan ágúst. „Svona samkvæmt ítrustu skilyrðum gætum við ekki brennt alla sem til okkar leita og vilja óska eftir bálför vegna þess að okkur er samkvæmt lögum ekki stætt á því að velja á milli þeirra sem kjósa bálför. Þannig að ef frekari takmarkanir eða ítrustu skilyrði ná fram að ganga þá mundum við ekki ná að brenna alla sem það kjósa,“ segir Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófastdæma. Ingvar segir að þrátt fyrir að bálstofan sé á undanþágu séu núverandi starfsskilyrði mikil áskorun. Ekki megi brenna nema á nóttunni og innan ákveðins tímaramma og veðurskilyrði að undanförnu hafi gert þeim erfitt fyrir. „Svo eru það ofnarnir. Þeir eru náttúrulega að verða hátt í 80 ára gamlir og eru mjög lúnir. Þeir voru gerðir upp fyrir þremur árum en það kostar heilmikið að halda þeim gangandi. Það þarf að múra þá mjög oft upp og svona klappa þeim ef maður getur sagt sem svo,“ segir Ingvar. „Þannig að þetta er áskorun. Þeir gætu alveg farið að syngja sitt síðasta, og ættu í raun að vera búnir að því.“ Gera ráð fyrir 1300 bálförum Bálförum hefur fjölgað um tæplega 2% ár frá ári og gert er ráð fyrir að þær verði um 1300 í ár. Lögum samkvæmt má almennt ekki hafna beiðni um bálför en Ingvar segir að eitt slíkt tilvik hafi komið upp nýlega, vegna þess hversu stór kistan var. Til stendur að opna nýja bálstofu í Gufunesi í lok næsta árs. Ingvar telur brýnt að starfsleyfi bálstofunnar í Fossvogi verði framlengt og skilyrði til brennslu rýmkuð svo starfsemin leggist ekki af. „Við höfum tölfræðileg gögn. Miðað við þennan stranga ramma sem bálstofum er almennt gert að vinna eftir og miðað við veðurskilyrði, þá myndum við bara ná að brenna 42% af þeim sem eftir því óska. Ef undanþága fæst ekki og þessi ströngu skilyrði ná fram að ganga, þá sé ég fyrir mér að bálstofunni verði hreinlega lokað,“ segir Ingvar, og bætir við. „Þetta er mikilvægur innviður og ég vil ekki hugsa þá hugsun til enda.“ Tímabundið ástand Kirkjugarðarnir hafa átt í viðræðum við heilbrigðisyfirvöld að undanförnu og Ingvar segist vongóður um að bálstofan fái framlengt starfsleyfi. „Ég vona að það verði komið nokkurn veginn á hreint á næstu dögum eða vikum. En ef þetta gengur ekki eftir, að við fáum einhvers konar hliðrun eða undanþágur, þá gæti komið til þess að bálstofunni verði lokað,“ segir Ingvar. „En ég hef enga trú á því að það verði. Ég hef fulla trú á því að okkur takist, með góðu samkomulagi, að halda þessu gangandi. Það er að koma ný bálstofa þannig að við lítum á þetta sem tímabundið ástand.“

Share this article