Framkvæmdastjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófastdæma ber vonir til þess að ný bálstofa og líkhús í Gufunesi verði tekin í gagnið í lok næsta árs. Búið sé að fjármagna verkefnið að fullu og útboði á nýjum brennsluofnum ljúki innan mánaðar. Heildarkostnaður 960 milljónir Mikill styr hefur staðið um bálstofuna í Fossvogi undanfarin misseri. Íbúar kvarta yfir ólykt og mengun frá brennslunni, sem starfar á bráðabirgðastarfsleyfi fram í ágúst. Ofnar bálstofunnar eru tæplega 80 ára gamlir og því komnir til ára sinna. Ingvar Stefánsson, framkvæmdastjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófastdæma, segir nauðsynlegt að ofnarnir fái framlengingu á starfsleyfi svo bálfarir leggist ekki af. „Ég bara vona að hægt sé að sjá í gegnum fingur sér með það þangað til ný bálstofa opnar sem verður af fullkomnustu gerð og mengar nánast ekki neitt. Það er mjög stutt í hana, kannski í lok næsta árs vonandi, ef allt gengur að óskum.“ Heildarkostnaður nemur um 960 milljónum og segir Ingvar verkefnið fjármagnað að fullu. „Undirbúningur er þegar hafinn og hófst reyndar að einhverju leyti í haust. Það er verið að ljúka núna frumdrögum að arkitektateikningum og það er verið að fara að teikna tækniteikningar, teikningar eins og lagnateikningar og burðarþolsteikningar og slíkt. Það er útboð á ofnunum í gangi núna bæði hérna heima og á Evrópska efnahagssvæðinu og ég á von á því að því ljúki innan mánaðar.“ Ingvar að með góðu samstarfi yfirvalda og kirkjugarðanna sé raunhæft að ný bálstofa verði tekin í gagnið í lok næsta árs.