Innlent | mbl | 13.5.2026 | 21:00 | Uppfært 21:18 „Verið að dæla yfir okkur þvílíkri drullu“ Soffía Ámundadóttir hefur fengið sig fullsadda af því raski sem fylgir því að vera með bálstofuna í bakgarðinum. Samsett mynd/Aðsend/Háskóli Íslands Kjartan Leifur Sigurðsson [email protected] Setja bókamerki Líkbrennsluofnarnir í Fossvogi, sem eru nær áttatíu ára gamlir, valda því að íbúar í grennd við bálstofuna geta vart haft glugga sína opna enda liggur frá bálstofunni mikill mökkur er líkbrennsla fer fram. Þetta segir Soffía Ámundadóttir, sem býr í grennd við bálstofuna, í samtali við mbl.is. Líkbrennslur eru aðeins heimilar á kvöldin og á næturnar en bálstofan hefur sem stendur aðeins starfsleyfi þangað til um miðjan ágústmánuð. Til stendur að reisa nýja bálstofu í Gufunesi innan tíðar. Frétt af mbl.is Veita undanþágur vegna líkbrennslu Ekki hægt að fara út að labba Segir Soffía brennslu hafa aukist mjög á síðastliðnum árum. „Brennsla hefur aukist svo mikið, ég hef búið hér í tuttugu ár. Líkbrennsla er bara að taka yfir. Upphaflega átti þetta að fara úr hverfinu árið 2010 en efnahagshrunið og annað kom inn. Íbúarnir í hverfinu hafa verið að senda pósta og láta vita af þessu. Þessir ofnar eru löngu úreltir.“ Brennslunni fylgir mikið rask fyrir íbúa sem verða að búa við reykinn sem kemur frá bálstofunni. „Það er verið að dæla yfir okkur þvílíkri drullu. Það er ekki hægt að hafa opna glugga í hverfinu og hér búa um þúsund manns. Við tölum mikið um svifryksmengun í Reykjavík en það er ekkert pælt í þessu, þó það sé heilt hverfi sem liggur undir. Það er svart ryk sem kemur og þú getur ekki farið út að labba, það er mikið af hundum sem búa hér í hverfinu,“ segir Soffía. Frétt af mbl.is Bálförum fer hratt fjölgandi Fjórir skólar í grennd við bálstofuna Í grennd við bálstofuna eru fjórir skólar, Suðurhlíðarskóli, Brúarskóli, Klettaskóli og leikskólinn Sólborg. Soffía hefur starfa í tveimur þeirra og segir starfsemina hafa mikil áhrif á skólastarfið. „Ég hef verið úti á skólalóð með börnin, fyrst í leikskólanum og svo í grunnskóla. Það er eins og það sé verið að brenna dekk, þetta er slík bræla. Maður andar þessu að sér og verður bara flökurt. Svo spyrja krakkarnir hvaða lykt þetta sé, hvernig á maður að útskýra það?“ Sjálfseignarstofnun sem heitir Tré lífsins ætlaði sér að reisa bálstofu í Rjúpnadal í Garðabæ en hún hefur hætt störfum í kjölfar þess að dómsmálaráðherra ákvað að ganga frekar til samninga við Kirkjugarða Reykjavíkur um uppbyggingu líkbrennslu í Gufunesi. „Þau vildu fá að setja á laggirnar nýstárlega líkbrennslu en fengu ekki leyfið, sem maður skilur hreinlega ekki. Maður fer til stórborga í dag og þar eru ofnarnir inn í miðri borg en þeir eru það góðir að það hefur enginn áhrif. Við erum hér með ofn sem er úr sér genginn og fylgir engum stöðlum,“ segir Soffía. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Óvænt tap nýkrýndu meistaranna Meistararnir lengi í gang – Afturelding skoraði fimm Inter bikarmeistari í tíunda sinn Evrópumeistararnir tryggðu titilinn Sjálfstæðisflokkurinn mælist áfram stærstur Umræðan Vilja borgarbúar alvörubreytingar? Evrópa: Opinn markaður eða lokað ríki? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Reykjanesbær hefur vaxið of hratt Segir Kristrúnu fara með dylgjur Aðalatriðið að „þrekvirki“ hafi verið unnið Of mikið tillit tekið til íbúa og óánægju þeirra Mest lesið Í gær Í vikunni Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Andlát: Eyvindur Erlendsson Landsréttur mildar og þyngir dóma í Gufunesmálinu Boðar nýja byggð við sjávarsíðuna Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði Mátu möguleika á björgun Lúðvíks Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík Flugi Icelandair til New York aflýst Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Aðkoman vægast sagt ömurleg Flugmenn Icelandair neita að stökkva til Leynd yfir samskiptum Lést af völdum þungrar lyfjameðferðar Umræðan vekur ugg meðal lækna Erlendir sjö sinnum fleiri í Reykjavík Óskar eftir brottvísun: Dvalið hér ólöglega í 2-3 ár „Ég vil svara fyrir mig núna“ Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Fer ekki í flík látins bróður í fjósið „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Eins og borgin hafi kveikt í húsinu Nýjast á mbl.is » Óvænt tap nýkrýndu meistaranna Meistararnir lengi í gang – Afturelding skoraði fimm Inter bikarmeistari í tíunda sinn Evrópumeistararnir tryggðu titilinn Sjálfstæðisflokkurinn mælist áfram stærstur Umræðan Vilja borgarbúar alvörubreytingar? Evrópa: Opinn markaður eða lokað ríki? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Aðalatriðið að „þrekvirki“ hafi verið unnið Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Fósturforeldri á Suðurnesjum til rannsóknar Þriggja ára dómur fyrir brot gegn barni Mest lesið Í gær Í vikunni Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Mánaðarlaun að jafnaði 816 þúsund krónur „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Andlát: Eyvindur Erlendsson Landsréttur mildar og þyngir dóma í Gufunesmálinu Boðar nýja byggð við sjávarsíðuna Jón Gnarr greiddi ekki atkvæði Mátu möguleika á björgun Lúðvíks Besti kosturinn að síga eftir Lúðvík Flugi Icelandair til New York aflýst Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Aðkoman vægast sagt ömurleg Flugmenn Icelandair neita að stökkva til Leynd yfir samskiptum Lést af völdum þungrar lyfjameðferðar Umræðan vekur ugg meðal lækna Erlendir sjö sinnum fleiri í Reykjavík Óskar eftir brottvísun: Dvalið hér ólöglega í 2-3 ár „Ég vil svara fyrir mig núna“ Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Skellt í lás í rótgrónu bakaríi Fer ekki í flík látins bróður í fjósið „Ég setti X við D í fyrsta sinn á ævinni“ Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Eins og borgin hafi kveikt í húsinu