Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

18 milljónir í biðlaun tveggja ráðherra

Read Full Article →

Ríkissjóður hefur greitt tæpar sautján milljónir króna í biðlaun og launatengd gjöld og á eftir að greiða rúma milljón til viðbótar vegna starfsloka tveggja ráðherra á þessu kjörtímabili. Þetta kemur fram í svari Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra við fyrirspurn Diljár Mistar Einarsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Ásthildur Lóa Þórsdóttir varð mennta- og barnamálaráðherra við ríkisstjórnarskipti en sagði af sér embætti fjórum mánuðum síðar. Þá tók við flokksbróðir hennar í Flokki fólksins, Guðmundur Ingi Kristinsson, sem hætti vegna veikinda eftir tæpa tíu mánuði. Búið er að greiða níu milljónir vegna Ásthildar Lóu og greiðslur vegna Guðmundar Inga verða á endanum tæpar níu milljónir króna. Þar af á eftir að greiða tæplega 1,1 milljón króna.

Share this article