Innlent | mbl | 25.3.2026 | 23:20 Ríkisstofnanir greiddu 21 milljón í bílastæðasjóð Stæði eru oft af skornum skammti í miðborginni. mbl.is/Birta Margrét Viðar Guðjónsson [email protected] Setja bókamerki Bílastæðasjóður Reykjavíkur fékk rúmlega 21 milljón króna greiddar frá ríkisstofnunum á síðasta ári. Þar af greiddu héraðsdómstólar rúmlega helming, eða um 10,3 milljónir króna. Greiðslurnar eru þó ekki vegna þess að starfsmenn gleymi að greiða fyrir bílastæði, heldur er einfaldlega ekki nægjanlegt aðgengi að stæðum við hús Héraðsdóms Reykjavíkur á Lækjartorgi. Við héraðsdóminn eru engin bílastæði en 50 starfsmenn starfa þar. Af þeim sökum hafa dómstólarnir gripið til þess ráðs að leigja stæði í miðbænum af Reykjavíkurborg. Næst á eftir kemur embætti héraðssaksóknara sem greiddi rúmar 3,8 milljónir króna til Bílastæðasjóðs Reykjavíkur á síðasta ári fyrir leigu á bílastæðum. Ekki eru inni í þessum tölum greiðslur sem fara í gegnum ýmis greiðsluöpp. Héraðsdómur Reykjavíkur leigir stæði af Reykjavíkurborg. mbl.is/Ófeigur Skortur á stæðum hjá héraðssaksóknara Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari segir að gripið hafi verið til þess ráðs að leigja stæði þar sem aðstaða við embættið sé takmörkuð. „Við erum með svo fá stæði og þurfum því að leigja bílastæði í bílastæðahúsi á Skúlagötu. Þetta helgast af því að þegar við fluttum inn var mannaflaþörfin skráð 50 manns en fyrir utan húsið eru bara 30 stæði,“ segir Ólafur Þór. Starfsmannafjöldinn er nú kominn upp í um 70 og að auki eru bílar á vegum stofnunarinnar á staðnum. Of fá bílastæði eru fyrir starfsfólk fyrir utan starfsstöðvar héraðssaksóknara. mbl.is/Ófeigur Lýðsson Starfsmenn greiða sektir sjálfir Hann segir að leitast hafi verið við að draga úr þörfinni með öðrum úrræðum. „Við erum búin að leysa þetta að einhverju leyti með því að gera samgöngusamning við starfsmenn sem nota almenningssamgöngur eða ganga. En síðan þurfum við einnig að leigja stæði,“ segir hann. Hann tekur fram að stofnunin greiði ekki stöðumælasektir starfsmanna. „Maður mætir því bara sjálfur ef svo ber undir,“ segir Ólafur Þór. Tíu stofnanir sem greiddu mest til bílastæðasjóðs árið 2025 Héraðsdómstólar – 10.367.455 kr. Héraðssaksóknari – 3.802.343 kr. Forsætisráðuneyti, aðalskrifstofa – 3.197.621 kr. Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins – 2.926.933 kr. Kærunefnd útlendingamála – 741.154 kr. Listasafn Íslands – 192.534 kr. Landspítali – 128.850 kr. Háskóli Íslands – 62.860 kr. Landhelgisgæsla Íslands – 43.826 kr. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Eru skilaboð Mandelsons glötuð? Ríkisstofnanir greiddu 21 milljón í bílastæðasjóð Íhuga alvarlega að reka Danann Menntskælingar þróuðu bragðbættan harðfisk Icelandair cancels and delays international flights tomorrow morning Umræðan Viðreisn og viðhaldið (í ESB) Tímabundin lækkun virðisaukaskatts á matvæli Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Viðbrögð við verðhækkun ekki rædd sérstaklega Mette komin með umboðið Segir Íslendinga vilja fyrirsjáanleika Loka endurvinnslustöðvum Sorpu vegna veðurs Mest lesið Í gær Í vikunni Hamas-liðar á Höfðatorgi Appelsínugular viðvaranir: Stormur og stórhríð Múslimar annast sauðfjárslátrun í sláturhúsum Vonar að Landhelgisgæslan sé klár með skip Frysta þarf öll laun í landinu Andlát: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Varari um sig og óttast um öryggi sitt Ekkert barn á nýju heimili: Tókst að strjúka Leysa páskaeggjavanda spítalans Grunnskólarnir verða opnir þrátt fyrir röskun Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Seinheppnir Bretar hrósa áhöfn Icelandair Andlát: Pétur Marteinn Páll Urbancic Getur hæglega endað með gosi Fluttur á sjúkrahús vegna ofkælingar Gul viðvörun fyrir land allt Miskunnarlaus meðferð í Mosfellssveit Fleiri Íslendingar óskað eftir aðstoð Hröð þrýstingsbreyting fyrsta merki um gos Hamas-liðar á Höfðatorgi Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl Nýjast á mbl.is » Eru skilaboð Mandelsons glötuð? Ríkisstofnanir greiddu 21 milljón í bílastæðasjóð Íhuga alvarlega að reka Danann Menntskælingar þróuðu bragðbættan harðfisk Icelandair cancels and delays international flights tomorrow morning Umræðan Viðreisn og viðhaldið (í ESB) Tímabundin lækkun virðisaukaskatts á matvæli Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Áhættan vegna stríðsins að breiðast út „Alls ekki eðlilegt“ Viðbrögð við verðhækkun ekki rædd sérstaklega Eldur kviknaði í bíl á Vesturlandsvegi Mest lesið Í gær Í vikunni Hamas-liðar á Höfðatorgi Appelsínugular viðvaranir: Stormur og stórhríð Múslimar annast sauðfjárslátrun í sláturhúsum Vonar að Landhelgisgæslan sé klár með skip Frysta þarf öll laun í landinu Andlát: Ragnheiður Erla Bjarnadóttir Varari um sig og óttast um öryggi sitt Ekkert barn á nýju heimili: Tókst að strjúka Leysa páskaeggjavanda spítalans Grunnskólarnir verða opnir þrátt fyrir röskun Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Vara við suðaustan hríðarbyl: Samgöngutruflanir líklegar Seinheppnir Bretar hrósa áhöfn Icelandair Andlát: Pétur Marteinn Páll Urbancic Getur hæglega endað með gosi Fluttur á sjúkrahús vegna ofkælingar Gul viðvörun fyrir land allt Miskunnarlaus meðferð í Mosfellssveit Fleiri Íslendingar óskað eftir aðstoð Hröð þrýstingsbreyting fyrsta merki um gos Hamas-liðar á Höfðatorgi Guðlaugur í kasti vegna ummæla Ingu „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Vara við blindbyl