Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Bílastæða­sjóður rúmum hálfum milljarði um­fram áætlun

Read Full Article →

Reykja­víkur­borg heldur áfram að stór­græða á bif­reiða­eig­endum eftir að gjald­skyld svæði voru stækkuð, gjald­skyldutími lengdur og gjald­skrá hækkuð. Þetta má lesa úr greinar­gerð með árs­reikningi Reykja­víkur­borgar fyrir árið 2025. Þar kemur fram að skrif­stofa sam­göngu­stjóra og borgar­hönnun hafi verið 590 milljónum króna innan fjár­heimilda ársins. Skýrist það einkum af af­komu Bílastæða­sjóðs, sem var 560 milljónum króna innan fjár­heimilda. Tekjur Bílastæða­sjóðs voru 461 milljón króna um­fram áætlun. Þá voru laun og launa­tengd gjöld 64 milljónum króna innan fjár­heimilda og annar rekstrar­kostnaður 34 milljónum króna innan fjár­heimilda. Við­skipta­blaðið greindi frá því í fyrra að borgin stór­græddi á bif­reiða­eig­endum eftir breytingar á gjald­skyldu í borginni. Þá höfðu tekjur Bílastæða­sjóðs farið langt fram úr áætlunum. Nýjustu tölur sýna að sú þróun hélt áfram á árinu 2025. Reykja­víkur­borg hefur á undan­förnum árum rétt­lætt aukna gjald­töku af bif­reiða­eig­endum með stefnu um breyttar ferða­venjur og bíl­lausari borg. Af árs­reikningnum má þó ráða að gjald­takan er einnig orðin veru­leg tekju­lind fyrir borgina. Á sama tíma og Bílastæða­sjóður skilar af­komu langt um­fram áætlanir er rekstur Reykja­víkur­borgar í járnum. Við­skipta­blaðið greindi frá því í gær að A-hluti Reykja­víkur­borgar hefði verið rekinn með 5,3 milljarða króna halla á árinu 2025, saman­borið við 4,7 milljarða króna af­gang árið áður. Af­koman versnaði því um 10 milljarða króna milli ára. Fjár­hagsáætlun hafði gert ráð fyrir 346 milljóna króna af­gangi og var niður­staðan því 5,6 milljörðum krónum verri en áætlað var. Sjá einnig Reykja­víkur­borg leiðandi í verðbólgu og launaþróun Rekstrar­gjöld A-hluta námu 199 milljörðum króna og jukust um 13% milli ára, meðal annars vegna 9,9 milljarða króna gjald­færslu líf­eyris­skuld­bindingar vegna R-deildar Brúar líf­eyris­sjóðs. Tekjur A-hluta jukust um 12,1 milljarð króna, eða 6,2%, en það dugði ekki til að vega upp á móti auknum út­gjöldum. Sjá einnig Borgin rekin með 5,3 milljarða halla

Share this article