„Ég hef verið að vinna í þessari fjárhagsáætlun í marga mánuði, það sem gleður mig er að sjá árangurinn af því og þá sérstaklega útkomuspá þessa árs sem er komin á núllið,“ sagði borgarstjóri Samfylkingar í umræðum um fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar við árslok 2025. Fyrirliggjandi var útkomuspá sem gerði ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðurstöðu fyrir árið 2025. Þarna voru aðeins örfáar vikur eftir af árinu. Nýbirtur ársreikningur dregur fram aðra mynd. Rekstrarniðurstaða borgarsjóðs reynist neikvæð sem nemur 5,3 milljörðum króna árið 2025. Um er að ræða fyrsta rekstrarár fimm flokka vinstri meirihlutans sem síður hefur sýnt ráðdeilt í rektsri borgarinnar. Niðurstaða nær 6 milljörðum lakari en útkomuspá gerði ráð fyrir. Sælgæti, pizzur og rjómaís Ýmislegt má segja um rekstur Reykjavíkurborgar, en ábyrgð er ekki fyrsta orðið sem kemur upp í hugann. Laun hækka um tæplega 20% milli ára sem er langt umfram launahækkanir í landinu, og rekstrargjöld um tæp 13% sem er tæplega þreföld sú verðbólga sem mældist að jafnaði árið 2025. Virðingin fyrir okkar sameiginlegu sjóðum er takmörkuð. Þar er nærtækt að nefna milljarða leikskólann Brákarborg, um 200 milljónir í fyrirhugaða selalaug í Húsdýragarðinum, 10 milljónir í snaga í skólabyggingu, 65 milljóna ferðakostnað á skóla- og frístundasviði og um 50 milljónir í sælgæti, pizzur og rjómaís árlega. Þjónustustofnun, ekki eftirlitsstofnun Við Sjálfstæðismenn viljum ganga til bols og höfuðs á því agaleysi sem einkennt hefur fjármálastjórn borgarinnar. Stjórnkerfið hefur orðið að bákni. Framkvæma þarf úttekt á borgarkerfinu með það að markmiði að einfalda kerfið, auka skilvirkni, draga úr sóun og forgangsraða fé í grunnþjónustu við borgarana - breyta borgarkerfinu í þjónustustofnun, ekki eftirlitsstofnun. Samhliða þarf að innleiða árangursmenningu í allt borgarkerfið þar sem skýr krafa verður á ábata og árangur í þágu borgaranna. Sækjum fyrirtækin aftur Á síðastliðnum árum hefur átt sér stað gríðarlegur fyrirtækjaflótti úr Reykjavík. Atvinnusvæði víkja fyrir íbúabyggð og borgaryfirvöld beita sér lítt fyrir því að halda fyrirtækjum innan borgarmarkanna. Nýjasta dæmið er Suðurlandsbrautin hvar starfa 2.400 manns og fyrirtæki velta árlega um 166 milljörðum króna. Þessu atvinnusvæði stafar nú ógn af fyrirhuguðu deiliskipulagi sem mun þrengja að umferð, fækka bílastæðum og takmarka aðgengi að verslun og þjónustu verulega. Fyrirtækjaflóttann þarf að stöðva. Við sjálfstæðismenn ætlum að fjölga atvinnulóðum og lækka fasteignaskatta á atvinnuhúsnæði. Við ætlum að þjónustuvæða borgarkerfið, einfalda leyfisveitingar, tryggja 30 daga afgreiðslufresti og ráðast í átaksverkefni svo laða megi nýsköpunarfyrirtæki og hugvitsdrifna starfsemi að borginni. Reykjavík á að vera besti mögulegi staður að sækja fram og skapa verðmæti. Kjarnahlutverk Orkuveitunnar Orkuveitan hefur því kjarnahlutverki að gegna að tryggja borgurunum aðgengi að hreinu vatni, orku og fráveitu á hagstæðu verði. Hún á ekki að standa í útgjaldafrekum taprekstri líkt og Carbfix og Ljósleiðara og teljum við því rétt að bæði félög verði seld úr samstæðunni. Söluandvirði eigna verði nýtt til skuldaniðurgreiðslu og innviðauppbyggingar. Orkuveitan einbeiti sér mun fremur að frekari orkuöflun, nýtingu jarðhita og viðhaldi á veitukerfum. Sjálfstæðisflokkurinn vill jafnframt selja Malbikunarstöðina Höfða og auka útvistun í rekstri borgarinnar. Mikil tækifæri eru fólgin í því að bjóða út sorphirðu borgarinnar og nýta gervigreind í auknum mæli við stafræna umbreytingu borgarinnar sem hingað til hefur reynst kostnaðarsöm og mannaflsfrek starfsemi. Svo margt hægt að gera strax Samfylkingu er tíðrætt um framtíðina. Skyldi engan undra, enda hvorki fortíð né nútíð sérlega glæsileg yfirferðar. Það er löngu tímabært að horfast í augu við vandann og ávarpa stöðuna af ábyrgð og heiðarleika. Í þeim efnum er svo margt hægt að gera strax. Við þurfum að ráðast í hagræðingar, minnka yfirbyggingu, fækka millistjórnendum, stöðva skuldasöfnun og sýna ráðdeild þegar sýslað er með fjármuni borgarbúa. Einungis þannig hreyfum við nálina í rekstri borgarinnar og byggjum undirstöður fyrir framúrskarandi þjónustu við íbúana. Höfundur er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.