Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Borgin rekin með 5,3 milljarða halla

Read Full Article →

A-hluti Reykjavíkurborgar var rekinn með 5,3 milljarða króna halla á árinu 2025, samanborið við 4,7 milljarða króna afgangi á árinu 2024. Afkoman versnaði því um 10 milljarða króna milli ára. Fjárhagsáætlun hafði gert ráð fyrir 346 milljóna króna afgangi af rekstri A-hlutans og var afkoman því 5,6 milljörðum króna verri en áætlað var. „Gjaldfærsla lífeyrisskuldbindingar vegna R-deildar Brúar Lífeyrissjóðs nam 9,9 milljörðum króna á árinu og vó þyngst í fráviki rekstrar,“ segir í nýbirtum ársreikningi Reykjavíkurborgar. Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta var jákvæð um 8,0 milljarða króna, samanborið við 10,7 milljarða króna afgang á árinu 2024. Áætlun hafði gert ráð fyrir tæplega 13 milljarða króna afgangi af A- og B-hluta borgarinnar. Matsbreyting fjárfestingareigna Félagsbústaða hafði jákvæð áhrif á niðurstöðu rekstrar og nam 8,3 milljörðum króna. Launakostnaður umfram áætlun Tekjur A-hluta Reykjavíkurborgar námu 206,6 milljörðum króna og jukust um 6,2% eða 12,1 milljarð króna milli ára. Rekstrargjöld námu 199 milljörðum króna og jukust um 13% eða 23 milljarða króna milli ára, sem skýrist m.a. af téðri gjaldfærslu lífeyrisskuldbindinga. Laun og tengd gjöld námu 113 milljörðum króna og jukust um 8,1% milli ára. Til samanburðar hafði fjárhagsáætlun borgarinnar gert ráð fyrir að launakostnaður yrði í kringum 112 milljarðar. Stöðugildi A-hluta voru að meðaltali 8.675 á árinu 2025 og fjölgaði um 69 milli ára. Í skýrslu fjármála- og áhættustýringarsviðs segir að nýir kjarasamningar skýri þessa hækkun að mestu leyti. Þar kemur fram að launakostnaður velferðarsviðs hafi verið 719 milljónir króna umfram fjárheimildir. Veikindahlutfall skóla- og frístundasviðs var 7,9% í fyrra. Sé eingöngu litið til leikskólahlutans hafi hlutfallið verið 9,9%. Þá hafi veikindahlutfall hjá velferðarsviði verið 8,3%. Í skýrslunni segir að þetta háa hlutfall kalli á frekari greiningu og aðgerðir en árangur í að lækka hlutfallið gæti skilað verulegum fjárhagslegum ávinningi í rekstri. Rekstrarniðurstaða fyrir afskriftir (EBITDA) nam 7,2 milljörðum króna hjá A-hluta borgarinnar, samanborið við áætlun upp á 13,9 milljarða króna. Veltufé frá rekstri nam 14,3 milljörðum króna og var 6,9% í hlutfalli af tekjum og hækkaði um 0,6 prósentustig stig á milli ára. Skuldaviðmið A-hluta í árslok 2025 var 80%.

Share this article