Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Breytingar í borginni löngu tímabærar

Read Full Article →

„Áframhaldandi sterk staða Reykjavíkurborgar“ var fyrirsögn á fréttatilkynningu Reykjavíkurborgar þar sem greint var frá rekstrarniðurstöðu borgarinnar á síðasta ári. Ekki þarf þó að lesa langt inn í tilkynn­inguna til að átta sig á að þar er ­verið að slá ryki í augu almennings, enda var A-hluti borgarinnar rekinn með 5,3 milljarða króna halla í fyrra. Til samanburðar var A-hlutinn rekinn með 4,7 milljarða afgangi árið 2024 og versnaði afkoman því um tíu milljarða á milli ára. Til að bæta gráu ofan á svart hafði fjárhagsáætlun gert ráð ­fyrir 346 milljóna króna afgangi af rekstri A-hlutans og var afkoman því 5,6 milljörðum króna verri en áætlað var. Sé horft til A- og B-hluta var rekstrar­niðurstaða jákvæð um 8 milljarða en áætlun hafði gert ráð fyrir tæplega 13 milljarða afgangi. Venju samkvæmt var það matsbreyting fjárfestingareigna Félagsbústaða sem hélt rekstrarniðurstöðu A- og B-hluta uppi, en breytingin nam 8,3 milljörðum í fyrra. Að nota virðishækkun á félagslegu húsnæði til að fegra rekstrarniðurstöðuna er í besta falli villandi, enda stendur ekki til að selja félagslegt húsnæði borgar­innar og því er vart hægt að halda því fram að um fjárfestingareignir sé að ræða. Í viðtali við Viðskiptablaðið benti ­Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, á að launakostnaður hjá Reykjavíkurborg hefði aukist um 18,4% milli áranna 2024 og 2025, þegar tekið er tillit til lífeyrisskuldbindinga, og rekstrargjöld um tæp 13%. Á sama tímabili hækkuðu laun í landinu að jafnaði um 7,6% og verðbólga nam 4,5%. „Það er áhyggjuefni út af fyrir sig að Reykjavíkurborg sé leiðandi áhrifavaldur á bæði launaþróun og verðbólgu í landinu. Samanburðurinn er vandræðalegur hvernig sem á það er litið, og það er orðið þjóðfélagslega mikilvægt að ná stjórn á rekstri Reykjavíkurborgar,“ sagði hún. Hildur sagði rekstur borgarinnar orðinn allt of víðfeðman. Reykjavíkurborg ræki til að mynda eitt stærsta hugbúnaðarhús landsins á tímum gervigreindar og keppti við einkaaðila um fágæta sérfræðimenntaða starfsmenn. Þá hefði borgin leiðst út í hin ýmsu hliðar­verkefni sem trufluðu hana og dóttur­félög hennar við að sinna grunnhlutverkum sínum. Nægði þar að nefna mannréttindaskrifstofu ­borgarinnar, Carbfix og Ljósleiðarann. Tölur um launakostnað og rekstrargjöld í nýbirtu uppgjöri bæru vott um borg sem hefði misst sjónar á hlutverki sínu. Borgin þyrfti að einbeita sér að lögbundnum verkefnum og láta af öllum óþarfa. „Við þurfum að fækka millistjórnendum, minnka yfirbygginguna og lækka álögur. Samhliða þurfum við svo að standa vörð um krúnudjásnin eins og Orkuveituna, en selja frá okkur gælu­verkefnin. Borgin á ekki að keppa við einkaaðila á samkeppnis­markaði,“ sagði Hildur jafnframt í viðtalinu. Taka má heilshugar undir hvert orð oddvitans. Undir áratugalangri stjórn Samfylkingarinnar, með mismunandi varadekk, hefur staða borgarinnar farið sífellt versnandi samhliða því að yfirbygging borgarinnar hefur belgst út. Nægir í því samhengi að benda á þegar stiginn í Hörpu svignaði undan álaginu er stjórnendur Reykjavíkurborgar stilltu sér upp á mynd eftir stjórnendafund hér um árið. Þrátt fyrir þetta mælist Samfylkingin næststærsti flokkurinn í Reykjavíkurborg samkvæmt nýjustu könnun Gallup með 23% fylgi, en til samanburðar var fylgi flokksins rúmlega 20% í kosningunum fyrir fjórum árum. Hvort ágætt gengi flokksins í könnunum er nýjum oddvita, Pétri Marteinssyni, eða formanninum Kristrúnu Frostadóttur að þakka skal ósagt látið en ljóst er að maður sem líkir Degi B. Eggertssyni við einn goðsagnakenndasta knattspyrnustjóra sögunnar, Sir Alex Ferguson, mun ekki breyta um stefnu í málefnum borgarinnar. Vonandi bera borgarbúar gæfu til að forðast að Samfylkingin fái enn einu sinni að halda um stjórnartaumana. Brýnt er að það náist að mynda meirihluta sem einblínir á ráðdeild í rekstri, að minnka yfirbygginguna og lækka álögur á borgarbúa, ekki síst í ljósi aðstæðna í efnahagslífinu. Leiðarinn birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .

Share this article