Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Breytingar í borginni löngu tímabærar

Read Full Article →

„Áframhaldandi sterk staða Reykjavíkurborgar“ var fyrirsögn á fréttatilkynningu Reykjavíkurborgar þar sem greint var frá rekstrarniðurstöðu borgarinnar á síðasta ári. Ekki þarf þó að lesa langt inn í tilkynn­inguna til að átta sig á að þar er ­verið að slá ryki í augu almennings, enda var A-hluti borgarinnar rekinn með 5,3 milljarða króna halla í fyrra. Til samanburðar var A-hlutinn rekinn með 4,7 milljarða afgangi árið 2024 og versnaði afkoman því um tíu milljarða á milli ára. Til að bæta gráu ofan á svart hafði fjárhagsáætlun gert ráð ­fyrir 346 milljóna króna afgangi af rekstri A-hlutans og var afkoman því 5,6 milljörðum króna verri en áætlað var. Til að lesa meira Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér. Verð frá 6.295 kr. á mánuði Kaupa áskrift

Share this article