Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Heimir stýrir Írum á EM 2028

Read Full Article →

Heimir Hallgrímsson hefur framlengt samning og verður áfram landsliðsþjálfari karlaliðs Írlands í fótbolta. Nýi samningurinn gildir út EM 2028 sem verður í Bretlandi og Írlandi. Sem gestgjafar fá Englendingar, Skotar, Wales-verjar og Írar þátttökurétt og því ljóst að Heimir stýrir Írum á mótinu. Írland á þar að auki enn möguleika á sæti á HM í sumar. Til þess þarf liðið að vinna Tékkland 26. mars og annað hvort Danmörku eða Norður-Makedóníu 31. mars. Í yfirlýsingu írska knattspyrnusambandsins segir Heimir: „Ég er virkilega stoltur og ánægður að skuldbinda framtíð mína Írlandi. Ég hef alltaf sagt að við séum á vegferð saman — leikmennirnir, starfsmennirnir og okkar ótrúlega stuðningsfólk. Ég get séð framfaraskrefin okkar og möguleikana sem búa í hópnum svo þetta var auðveld ákvörðun fyrir mig.“

Share this article