Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Heimir fyrir HM umspilið: Afsökunarbeiðnir, geggjaðir Írar og umræða sem beit

Read Full Article →

Heimir Hallgrímsson hefur upplifað tímana tvenna á skömmum tíma með írska landsliðið. Irish Sun og Eamon Dunphy virtust hreinlega hafa óbeit á manninum. En nú er tíðin önnur. Heimir segir stemninguna hjá þeim grænu vera gífurlega þessa stundina en að sparkspekingar hafi beðið hann afsökunar á harðri meðferð í stjóratíð hans. Heimir mætir með Írana sína til leiks í umspili um heimsmeistaramótið í fótbolta á morgun. Írar mæta Tékklandi í fyrri umspilsleiknum. Vinnist hann bíða Danir eða Norður-Makedónar í Dublin í hreinum úrslitaleik um sæti á stærsta íþróttamóti heims. Írar gerðu allt vitlaust í Bandaríkjunum 1994 og geta nú endurtekið söguna. Heimir fór yfir víðan veg í viðtalinu. Meðal annars ræðir hann um hve stórt verkefnið er, hina eitilhörðu írsku fjölmiðla, muninn á Íslandi og Írlandi og Tékka sem eru á leið í stríð. Margt í gangi utan fótboltans sem kom honum á óvart Atburðarásin sem leiddi til ráðningar Heimis var nokkuð snögg. Var þetta verkefni stærra en hann bjóst við? Gerði hann sér grein fyrir því að hann væri að snúa olíuskipi við? „Já, ég gerði mér auðvitað ekki alveg fullkomna grein fyrir því enda gerðist þetta mjög hratt. Ég var náttúrlega bara nýbúinn í Copa America með Jamaíku þegar þetta kom til. Þannig að ég hoppaði eiginlega beint hingað yfir. Ég fékk lítinn aðlögunartíma eða tíma til að skoða hlutina af dýpt. Ég hefði betur gert það til þess að gera mér betur grein fyrir því hvaða áskoranir voru fyrir framan okkur.“ Heimir sér ekki eftir ákvörðuninni núna en það átti eitt og annað eftir að koma í ljós. „Ég hefði örugglega auðvitað átt að vita meira. En við einhvern veginn tókum bara þessa ákvörðun. Hoppuðum á þetta og það er bara búið að vera svo mikið sem að hefur þurft aðeins að laga og rétta.“ „Það er margt utan fótboltans sem er búið að vera í gangi, sem að kom mér bara svolítið á óvart. Hvað umræðan og umfjöllunin er mikið um önnur mál en þau sem við kannski getum stjórnað.“ Umræðan beit á hann - hefur alltaf þurft að sanna sig í sínum störfum Heimir hefur fengið að kenna á því í fjölmiðlum sem reiða hátt til höggs ef gengið er slakt. Náði umræðan einhvern tímann að bíta á hann? „Já, já. Auðvitað bítur þetta alltaf á mann þegar að þegar að umfjöllunin er neikvæð. Það er þá bara meiri áskorun að reyna að snúa því við. Það er bara aðallega að vera heiðarlegur í sinni nálgun og vera ekkert að þykjast eða plata. Við höfum alltaf verið heiðarlegir frá upphafi. „Ég hef alltaf þurft hvort sem er að sanna mig í mínum störfum. Ég á ekki feril og er ekki þekkt fótboltanafn. Ég var ekki spilari á háu stigi sem fólk þekkti.“ „Þannig að ég kem alltaf í verkefni sem óþekkt nafn og sérstaklega hjá þjóð eins og Írum sem auðvitað eiga sínar hetjur úr fortíðinni og allt það. Þeir hafa auðvitað sínar skoðanir.“ Hefur snúist til betri vegar Nú er Heimir 180 mínútum frá því að koma Írum á sitt fyrsta heimsmeistaramót frá 2002. Þetta hafa verið 24 löng ár og gleðin er við völd þessa stundina. Írar náðu að snúa undankeppninni við og komust í umspilið. „Einhvern veginn hefur þetta smám saman snúist til betri vegar og alltaf meiri og meiri jákvæðni. Nú erum við komin í þá stöðu að við eigum möguleika á að komast inn á HM. Við erum glaðir að vera þar en það er náttúrlega aðalmálið að hægt og sígandi að reyna að bæta það sem við erum að gera.“ „Það hefur verið á allra vitorði að það hefur verið alls konar óreiða í gangi í kringum þetta írska samband og írska landsliðið. Það hefur verið lítill árangur. Það er komin gleði og stemning í kringum landsliðið. Þannig að það eru bara allir ánægðir hérna.“ Afsökunarbeiðnir? Hafa einhverjir fjölmiðlamenn beðið afsökunar á umfjöllun sinni, eða þá að þeir viðurkenni að þeir hafi hreinlega gengið of langt? „Það hefur verið eitthvað svoleiðis en pressan er bara þannig hérna. Það eru stórar fyrirsagnir. Þannig er bara pressan og þú verður bara að lifa með henni.“ Heimir segist reyna að halda sig frá umræðunni en að hans menn fylgist með því helsta. „Ég hef nú ekki verið þekktur fyrir það að vera mikið á samfélagsmiðlum eða að lesa fréttirnar. Á þann hátt hefur það ekki bitið mig mikið en auðvitað er ég með góða menn í kringum mig sem ég bara læt sjá um þetta allt. Ef ég þarf að vita eitthvað þá segja þeir mér það.“ „En þeir sem þekkja mig vita að ég er ekkert ég er ekkert mikill samfélagsmiðlagúru.“ Heimir ræddi nýverið ákvörðunina að framlengja við Íra. Hann sagði það óskynsamlegt að stíga frá verkefninu þegar búið er að vinna alla skítavinnuna. Heimir Hallgrímsson stýrir Írlandi gegn Tékkum í umspili um HM 2026 á morgun. Umræðan um landsliðið og Heimi hefur tekið algjöra U-beygju. Heimir ræddi í viðtali um afsökunarbeiðnir fjölmiðla, írsku stemninguna og tékkneska stríðsmenn. Finnst eins og fjölmiðlarnir séu að snúast Írar telja fimm og hálf milljón og umræðan, pressan og athyglin er gífurlega mikil. Hver er helsti munurinn á umfjölluninni hjá Írum og okkur Íslendingum? Heimir segir fjölda miðla ráða því að allir séu að reyna að finna mest krassandi vinkilinn. „Þetta er þetta er bara miklu stærra og þeir eru miklu fleiri. Þegar þú hefur marga sem þurfa að skrifa eitthvað þá náttúrulega reyna menn að finna einhverja vinkla.“ „Fjölmiðlar í dag eru bara orðnir þannig að þetta snýst um að vera með mest krassandi fyrirsögnina og greinina. Þá færðu fleiri lesendur. Þannig eru bara samfélagsmiðlar í dag og þannig eru fjölmiðlar í dag. Það eru allir að reyna að vera með eitthvað og segja eitthvað sem vekur áhuga.“ „Það er yfirleitt neikvætt og enska pressan og breska pressan eru bara svolítið þekkt fyrir það. Hérna á Írlandi eru auðvitað útibú frá í rauninni öllum þessum miðlum sem eru í Englandi. Það er Irish Sky og það er Irish Sun. Þetta eru bara sömu miðlar sem eru að vinna þessa vinnu.“ Þrátt fyrir að róðurinn hafi verið þungur séu miðlarnir hægt og rólega að komast yfir á band Heimis. „Það er bara ákveðinn stíll á þessu hér og öðruvísi heldur en er á Íslandi. Mér finnst samt eins og þeir séu meira og meira að koma í liðið okkar meiri jákvæðni. Það fann ég alltaf heima á Íslandi. Að fjölmiðlarnir voru miklu meira með okkur í liði heldur en á móti.“ Sama tilfinning og hann fann á Íslandi En nóg af neikvæðni. Hversu gaman er að vera þjálfari Íra þessa stundina? Heimir sér sömu teikn á þjóðinni og liðinni og hann fann þegar hann stýrði Íslandi á EM 2016 og HM 2018. „Það er geggjað. Það er alveg geggjað. Þetta hafði ofboðslega mikil áhrif á þjóðina, á gleðina og samheldnina. Aftur tengi ég þetta svolítið við þessi fyrstu ár með Íslandi. Þetta er svona svipuð tilfinning. Þú finnur að það eru alltaf fleiri og fleiri sem eru með þér. Það er gífurleg stemning hjá Írum fyrir leiknum og þeir hafa fjölmennt til Prag. Þetta viðtal við stuðningsmann fyrir leikinn segir sitt. Heimir Hallgrímsson stýrir Írlandi gegn Tékkum í umspili um HM 2026 á morgun. Umræðan um landsliðið og Heimi hefur tekið algjöra U-beygju. Heimir ræddi í viðtali um afsökunarbeiðnir fjölmiðla, írsku stemninguna og tékkneska stríðsmenn. „Það var náttúrlega það skemmtilegasta við Ísland. Allt í einu var bara öll þjóðin sem stóð við bakið á okkur. Þetta var eitt risastórt lið. Það væri auðvitað frábært ef við gætum gert það sama hér, þó að það væri ekki nema hluti af því.“ Allt á uppleið eftir Armenatapið Miðað við umfang verkefnisins og hve hörð umræðan var á köflum hefur viðsnúningurinn verið undraverður. Útlitið var afar dökkt eftir tap gegn Armeníu í september. Síðan þá hefur leiðin bara legið upp á við. Írland var með bakið rækilega upp við vegg en náði einum besta glugga í sögu landsliðsins er 2-0 sigur vannst gegn Portúgal. Síðar unnu þeir Ungverja með ótrúlegum hætti, 2-3, þar sem sóknarmaðurinn Troy Parrott varð þjóðhetja á einni kvöldstund. „Þetta er sama tilfinning, bæði hjá liðinu og þjóðinni. Mér finnst eins og það sé eitthvað að fæðast hjá okkur. Hvort það kom okkur í gegnum þennan Playoffs-leik, það verður bara að koma í ljós.“ „En við erum bara með nokkuð skýra mynd af því hvað við viljum gera og hvernig við viljum gera hlutina. Það virðist allavega vera að virka. Það gerði það í síðasta glugga.“ Undirbúningur farinn á fullt fyrir HM Það liggur fyrir að Írland mun leika í Mexíkó í riðli með heimamönnum, Suður-Kóreu og Suður-Afríku. Umfangið er slíkt að Írar eru löngu byrjaðir að gera plön, sama hvernig fer. „Það er allt planað og við erum auðvitað búnir að undirbúa hvar við verðum og hvernig undirbúningurinn verður. Ef við komumst eða komumst ekki. Þannig að við höfum auðvitað haft HM í huga. Við gerum ráðstafanir fyrir því að okkur muni takast áætlanarverk okkar. Þannig er planið. Svo erum við líka búnir að plana hvað ef ekki.“ „En það er náttúrulega bara aðalmálið að það sé stöðugleiki í því sem við segjum og gerum. Hvort sem við komumst þangað eða ekki þá erum við samt að halda áfram að byggja upp og reyna að bæta hlutina.“ Tékkarnir tilbúnir í stríð Heimir segir Tékkana klára í stríð. Þeir fá tvo heimaleiki í þessu umspili ef þeir fara í úrslitin og þeim hefur gengið afar vel heima fyrir. „Ég myndi segja að Tékkarnir séu ekkert ósvipaðir Ungverjum sem við unnum í síðasta leik í riðlinum. Þeir eru reynslumiklir leikmenn. Þeir eru 16 mörgum sætum ofar en við á heimslistanum.“ „Heimaleikjaárangurinn þeirra er góður. Í 18 leikjum hafa þeir unnið 15 leiki, gert tvö jafntefli og tapað einum. Þeir eiga, eins og við, heimaleikinn sem seinni leikinn.“ „Þannig að ef þeir vinna þá eru þeir með tvo heimaleiki til að komast inn á HM. Auðvitað sjá þeir það sem brjálæðislega stórt tækifæri.“ Tékkarnir eru hávaxnir, líkamlega sterkir og leggja mikið upp úr fyrirgjöfum og föstum leikatriðum. „Þjálfari þeirra hefur mikið talað um að þeir væru að fara í stríð. Hann valdi leikmenn í hópinn sem væru tilbúnir að fara í stríð. Þannig verður þessi leikur. Hentar það okkur eða ekki? Ég veit það ekki. Það verður bara að koma í ljós hvað bíður okkar,“ sagði Heimir að lokum. Þeirra maður Hvernig sem fer gegn Tékkum virðist Írar líta á Heimi sem sinn mann. Hann verður við stýrið þegar Írar mæta til leiks á EM 2028. Útlitið var svart þegar sparkspekingar kepptust um að urða yfir Heimi og hans störf. Það var ansi auðvelt að fara í tannlæknavinkillinn þegar ósigrarnir hrönnuðust inn. En nú er stemningin öll hjá þeim grænu. Heimir er tveimur leikjum frá því að mæta aftur með Íra þar sem græna gleðin var við völd á HM 1994. Ef þeir skyldu fara alla leið leika þeir tvo leiki í Mexíkó en einn í Bandaríkjunum. Átjándi júní. Írar gegn Suður-Afríku í Atlanta. Verða Írar þar? Ekki veðja gegn Heimi. Leikur Tékka og Íra er klukkan 19:45 miðvikudagskvöld. Vinkillinn er greinaflokkur þar sem leitast er eftir að segja áhugaverðar íþróttasögur frá hinum ýmsu sjónarhornum.

Share this article