Sprengingin í húsnæði Kornax í Korngörðum í Reykjavík í morgun var svo mikil að hluti af einni hlið hússins rifnaði af húsinu. Þrír voru fluttir á slysadeild; einn er alvarlega slasaður, annar töluvert slasaður en sá þriðji er með minni áverka. Sprengingin varð laust eftir klukkan sjö. „Það var tilkynnt um sprengingu, mikla sprengingu í húsnæðinu og að það vantaði hlið í húsnæðið, að það væru nokkrir inni í húsnæðinu sem væru slasaðir,“ segir Unnar Már Ástþórsson, aðalvarðstjóri á stöð 1 hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í viðtali við Hauk Holm fréttamann. „Þrír voru fluttir á sjúkrahús, einn alvarlega slasaður, einn talsvert slasaður og hinn minna. Þrír voru fluttir á slysdeild eftir sprenginguna í húsnæði Kornax í Reykjavík í morgun. Einn er alvarlega slasaður og annar talsvert slasaður. Allt tiltækt slökkvilið og nær allir tiltækir lögreglumenn voru sendir á vettvang. Ekki er vitað hvað olli sprengingunni. Stórt gat er á hlið hússins og var Unnar spurður út í það. „Þetta er afleiðing sprengingarinnar sem við sjáum hér fyrir aftan okkur, sem varð hérna í morgun.“ Í fyrstu var tilkynnt um eld samhliða sprengingunni en enginn eldur var í húsinu þegar slökkvilið og lögregla komu að. Aðstæður voru að því leyti heppilegri en annars hefði verið. „Þær voru nokkuð góðar til björgunarstarfs því það var enginn eldur í rýminu. Það var búið að fjarlægja hluta þeirra sem voru slasaðir. Við fórum síðan að vinna okkur upp hæðina og tryggja frekar öryggi á vettvangi til að geta hlúð að þeim sem voru eftir á vettvangi sem við þurftum að nálgast.“ Unnar Már sagði að eiginlega allt tiltækt lið lögreglu, fimmtán til tuttugu menn, hefði verið sent á staðinn, þar var slökkviliðið einnig með allt sitt lið. Starfsfólk og sjálfboðaliðar Rauða krossins veittu sálræna aðstoð og aðhlynningu. Fyrirtæki í nálægum húsum veittu aðstöðu hjá sér svo hægt væri að huga að fólki. Á tíunda tímanum var farið að hleypa starfsfólki inn í húsið svo það gæti stöðvað reksturinn ef ákveðið yrði að gera það. Fréttin verður uppfærð með viðtali við slökkviliðsmann.