Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Sendiferðabílar Tesla komnir á göturnar

Read Full Article →

Tesla hefur loks sett á markað sinn fyrsta rafknúna sendiferðabíl, Tesla Semi, eftir margra ára tafir. Á vef WSJ segir að viðbrögð vörubílstjóra séu jákvæð en bílarnir bjóða upp á hraðari hleðslu og allt að 800 km drægni. Rafbílaframleiðandinn hyggst hefja afhendingu á Tesla Semi síðar á þessu ári frá verksmiðju Tesla í Nevada. Talið er að fyrirtækið geti afhent 5.000 – 15.000 bíla á þessu ári og muni auka framleiðslugetu í 50 þúsund bíla á næsta ári. Bandaríski vörubílstjórinn Dakota Shearer var einn þeirra sem fengu að prufa frumgerð af Tesla Semi en hann segir tæknina hafa skipt sköpum. Í einni akstursferð festist hann í þröngri beygju með 12 metra tengivagn. Í venjulegum sendiferðabíl hefði hann þurft að fara ítrekað út til að endurmeta stöðuna en í Tesla Semi hafði hann fulla yfirsýn yfir umhverfinu með skjáum sem sýndu allt í kring. Sjá einnig BYD skýtur Teslu ref fyrir rass Annar vörubílstjóri sem starfar hjá Hight Logistics í Kaliforníu, Angel Rodriguez, segir bílinn einnig mun þægilegri í notkun en hefðbundnir dísilbílar. „Þetta er mun minna álag á líkamann. Þú þarft ekki að nota kúplingu og skipta um gíra.“

Share this article