Tesla hefur hafið þróun á nýrri minni og ódýrari týpu af jepplingi, samkvæmt heimildarmönnum Reuters . Rafbílaframleiðandinn hefur haft samband við birgja á síðustu vikum til að ræða áætlanir fyrir bílinn. Um er að ræða nýja týpu hjá Tesla, ekki aðra útgáfu af Model 3 eða Model Y bílunum. Með bílnum horfir Tesla að sögn tveggja heimildarmanna til þess að bjóða upp á talsvert lægra verð en á Model 3 bílnum, en ódýrasta útgáfan af honum kostar um 37 þúsund dali í Bandaríkjunum og 5,79 milljónir króna á Íslandi (án rafbílastyrks Orkusjóðs). Þeir segja að félagið hyggist lækka kostnað m.a. með því að nota minni rafhlöðu. Þar af leiðandi yrði drægni bílsins minni. Til samanburðar er uppgefin drægni ódýrustu útgáfunnar af Model Y um 534 km. samkvæmt WLTP. Áætlað er að bíllinn verði 4,28 metra langur, samkvæmt tveimur heimildarmönnum. Til samanburðar er Model Y um 4,8 metrar að lengd. Þá verði billinn talsvert léttari eða um 1,5 tonn en til samanburðar er Model Y um tvö tonn. Þrír heimildarmenn Reuters sögðu að stefnt sé að því að framleiðsla bílsins fari fram í verksmiðju félagsins í Sjanghaí í Kína. Talið er ólíklegt að framleiðsla muni hefjast í ár. Annar heimildarmaður sagði að Tesla horfi einnig til þess að auka framleiðslu sína í Bandaríkjunum og Evrópu. Í umfjölluninni er bent á að Elon Musk, forstjóri Tesla, hafi á árinu 2024 hætt við áform um framleiðslu ódýrari rafbíls og kaus fremur að leggja aukna áherslu á sjálfkeyrandi leigubíla og vélmenni. Óvíst sé hvort áform um nýjan ódýrari rafbíl sé merki um að Tesla sé aftur byrjað að einblína á fjöldamarkaðssetningu hefðbundinna rafbíla eða hvort nýja týpan verði í samræmi við sýn fyrirtækisins um sjálfkeyrandi bíla. Einn heimildarmaður segir að bíllinn gæti þjónað báðum markmiðum. Reuters segist ekki hafa fengið það á hreint hvort Tesla hafi formlega gefið grænt ljós fyrir framleiðslu bílsins. Tesla svaraði ekki fyrirspurnum fjölmiðilsins um málið.