Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Aukin sala vegna óvissu með vörugjöld

Read Full Article →

Toyota á Íslandi og TK bílar, systurfélög Toyota-umboðsins á Íslandi, högnuðust samanlagt um 1.120 milljónir króna í fyrra, samanborið við 1.151 milljón árið 2024. Hagnaður Toyota á Íslandi nam 755 milljónum og hagnaður TK Bíla nam 365 milljónum. Sala jókst nokkuð frá fyrra ári. Tekjur Toyota á Íslandi námu 16.498 milljónum króna og jukust um 10% milli ára. Tekjur TK Bíla námu 20.425 milljónum króna og jukust um 21% milli ára. Bróðurpartur veltu samstæðunnar rennur í gegnum bæði félögin en þar sem ekki er um samstæðureikninga að ræða liggur sú tala ekki fyrir. Í skýrslu stjórnar Toyota á Íslandi kemur fram að nýskráningar Toyota bifreiða á árinu hafi samtals verið 1.969 á árinu, samanborið við 1.981 árið 2024. Nýskráningar Lexus bifreiða tvöfölduðust milli ára, fóru úr 67 í 134. TK Bílar seldu samtals 1.021 nýjar Toyota bifreiðar, samanborið við 1.013 árið áður, og 131 Lexus bifreið, samanborið við 66 árið 2024. Salan það sem af er ári 2026 er sögð í samræmi við væntingar og gert ráð fyrir góðu rekstrarári, þar sem mikil eftirspurn er eftir bílum félaganna. Í skýrslu stjórnar TK Bíla er áætlað að heildarsala nýrra bifreiða verði 1.702 á árinu, þar af 1.547 Toyota bifreiðar og 155 Lexus bifreiðar. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article