Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Fjölbreyttar útfærslur sem henta rekstri og þörfum ólíkra fyrirtækja

Read Full Article →

Á Verk & vit-sýningunni í ár mun Toyota kynna nýjustu atvinnubílana. Í aðalhlutverki er Toyota Proace Max L4H3 sendibíllinn, sem tilheyrir nýrri kynslóð atvinnubíla frá Toyota. Hlynur Ólafsson, sölustjóri Toyota Professional, segir að það skipti miklu máli að velja réttan bíl þegar kemur að rekstri fyrirtækis. Toyota Proace Max er fáanlegur í fjölbreyttum útfærslum og mismunandi lengdum, þannig að auðvelt ætti að vera að finna lausn sem hentar rekstri og þörfum fyrirtækja í ólíkum rekstri. „Toyota Proace Max L4H3 er stærsta útfærslan af Proace Max og hægt er að fá hann bæði sem hefðbundinn sendibíl eða með farþegabekk sem breytir honum í 7 manna sendibíl. Þetta gerir hann sérstaklega hentugan fyrir fyrirtæki sem þurfa bæði mikið flutningsrými og möguleika á að flytja mannskap,“ segir Hlynur. Eins og allir bílar í Toyota Proacelínunni er Proace Max fáanlegur annaðhvort 100% rafdrifinn eða með dísilvél. Dísilútgáfan er bæði í boði með beinskiptingu og sjálfskiptingu, þannig að viðskiptavinir geta valið þá lausn sem hentar þeirra rekstri best. Þá er Toyota með 7 ára ábyrgð á bílum eða 200.000 km hvort sem á undan kemur með möguleika á relax-ábyrgð sem framlengir ábyrgðartímann í 10 ár með sama km fjölda. „Einnig bjóðum við upp á þjónustupakka sem inniheldur þjónustu, smur og ábyrgðarskoðanir í 3 ár eða upp að 60.000 km en þetta þarf að nota innan 3 ára. Við erum svo með vegaaðstoð til 12 mánaða sem inniheldur aðstoð við straum- eða eldsneytisleysi, aðstoð við dekkjaskipti, flutning á verkstæði ef bíll bilar og flutning rafbíls heim eða á næstu hleðslustöð ef hann verður straumlaus,“ segir Hlynur. Nýr bíll í Proace-línunni „Á sýningunni kynnum við einnig Toyota Proace Max Dropside pallbíl, 7 manna, svokallaðan flokkabíl, sem er alveg nýr í línunni. Sá bíll er sérstaklega hannaður með þarfir sveitarfélaga og verktaka í huga, þar sem hann býður upp á gott pláss fyrir efni, verkfæri og mannskap,“ segir Hlynur. „Í Proace Max-pallbílaflokknum bjóðum við bíla í tveimur lengdum og með palli sem hægt er að sturta á þrjá vegu. Þá er hægt að velja umeinfalt hús eða tvöfalt hús, allt eftir þörfum hvers og eins,“ bætir Hlynur við. Í sendibílalínunni er Proace Max fáanlegur í útfærslunum L2H2, L3H2, L3H3, L4H2 og L4H3, þar sem L stendur fyrir lengd flutningsrýmis og Hfyrir hæð flutningsrýmis. Einnig eru sendibílarnir í boði sem svokallaðir crew cab, með fjögurra manna bekk fyrir aftan ökumannsrýmið. „Við munum einnig kynna Toyota Proace City BEV, 100% rafdrifinn sendibíl í flokki lítilla sendibíla. Toyota Proace City er einnig fáanlegur í tveimur lengdum, bæði með dísilvél og sem 100% rafmagnsbíll, og hentar vel fyrir minni fyrirtæki og þjónustuaðila sem starfa í þéttbýli,“ segir Hlynur. „Við erum því með lausnir fyrir allt frá litlum þjónustufyrirtækjum upp í stærri verktaka og opinbera aðila, hvort sem áherslan er á rafvæðingu, burðargetu, farþegarými eða sveigjanleika í flutningum.“ „Að lokum má segja frá því að væntanlegur er Toyota Hilux BEV sem er 100% rafmagn. Hann verður kynntur síðsumars og mun líka koma sem hefðbundinn dísil mild hybrid,“ segir Hlynur.

Share this article