Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Frumsýna Urban Cruiser og RAV4

Read Full Article →

Tveir bílar verða frumsýndir hjá Toyota um helgina en um er að ræða Urban Cruiser og RAV4. Frumsýningin fer fram hjá Toyota í Kauptúni, Reykjanesbæ, á Akureyri og Selfossi á laugardag milli kl. 12 og 16. Urban Cruiser er 100% rafmagnsbíll en hann er sportjeppi með fjölbreytta notkunarmöguleika. Rafhlaðan er 61 kWh sem skilar bílnum allt að 184 hestöflum og drægni er 350–395 km, eftir því hvort um er að ræða framhjóladrifna eða fjórhjóladrifna útgáfu. Þá verður ný kynslóð RAV4 Hybrid einnig frumsýnd en RAV4 hefur notið mikilla vinsælda hér á landi sem annars staðar og er mest seldi bíll sinnar gerðar í heiminum. RAV4 sameinar kosti borgar- og ferðabíls á skemmtilegan hátt og hentar einstaklega vel íslenskum aðstæðum. Sjá einnig Sjötta kynslóð RAV4 frumsýnd í Mechelen RAV4 Hybrid er í boði bæði fram- og afturhjóladrifinn. Sportjeppinn er með 2,5 lítra vél sem skilar framhjóladrifsbílnum 185 hestöflum og aldrifsbílnum 194 hestöflum. CO2 losun er 103-107 gr/km og eyðslan er 4,5-4,7 l/km samkvæmt upplýsingum frá framleiðanda. RAV4 í Plug-in Hybrid útfærslu verður kynntur hér á landi síðar á þessu ári.

Share this article