Bílaumboðið Hekla hefur náð samkomulagi um kaup á bifreiðaverkstæðinu Bílson sem er viðurkenndur þjónustuaðili fyrir Heklu vegna Volkswagen, VW atvinnubíla og Skoda. Samruni félaganna er nú til meðferðar hjá Samkeppniseftirlitinu sem hefur óskað eftir umsögnum hagaðila um viðskiptin. Bjarki Harðarson, stofnandi Bílson, á allt hlutafé bifreiðaverkstæðisins. Í samrunatilkynningu kemur fram að hann hafi um nokkurt skeið leitað kaupanda að félaginu í tengslum við starfslok sín. „Ástæðu viðskiptanna má rekja til fyrirhugaðra starfsloka seljanda Bílson, Bjarka Harðarsonar. Markmið viðskiptanna er að viðhalda aðgengi að viðgerðarþjónustu fyrir eigendur bifreiða af tegundunum Skoda og Volkswagen en Bílson hefur þjónustað þessi vörumerki um árabil.“ Bílson ehf. velti 574 milljónum króna árið 2025 samkvæmt samrunatilkynningu. Samkvæmt síðasta birta ársreikningi hagnaðist félagið um 57,9 milljónir króna árið 2024. Eignir í árslok 2024 námu 294 milljónum króna og eigið fé var um 214 milljónir. Hekla er umboðsaðili á Íslandi fyrir Audi, Volkswagen, Skoda, GWM og Mitsubishi og þjónustar jafnframt umræddar tegundir á verkstæði félagsins. Bílaumboðið, sem er í eigu Friðberts Friðbertssonar, velti 16,8 milljörðum króna árið 2025.