Bílaumboðið Hekla hagnaðist um 499 milljónir króna í fyrra, samanborið við 70 milljóna hagnað árið áður. Tekjur námu 16.836 milljónum króna, sem er 41% aukning milli ára en framlegð jókst einnig um 25% milli ára og nam 3.088 milljónum. Skýrist það af því að mikil aukning var á nýskráningum nýrra fólksbíla. Efnahagsreikningurinn stækkaði töluvert, sem skýrist af mikilli birgðasöfnun undir lok árs vegna hækkunar vörugjalda. Friðbert Friðbertsson er forstjóri Heklu og eigandi Jökla, móðurfélags Heklu. Hekla rak tvö dótturfélög á árinu, Bílaþing ehf. og Hekla notaða bíla ehf., en hlutdeild í afkomu var neikvæð um 148 milljónir á árinu. Lykiltölur / Hekla hf. 2025 2024 Tekjur 16.836 11.906 Eigið fé 1.913 2.466 Eignir 7.642 3.870 Afkoma 499 70 - í milljónum króna Fréttin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .